Körfubolti

Leik lokið: Stjarnan 71-74 Haukar | Ís­lands­meistararnir tylla sér á toppinn

Andri Már Eggertsson skrifar
Valur - Haukar Bónus Deild Kvenna Vetur 2026
Valur - Haukar Bónus Deild Kvenna Vetur 2026 vísir/Diego

Ríkjandi Íslandsmeistarar Hauka tylltu sér á topp Bónus deildar kvenna í körfubolta í kvöld með sigri gegn Stjörnunni er liðin mættust í spennandi leik í ÞG Verk höllinni í Garðabæ. Lokatölur 71-74 sigur Hauka.

Þrátt fyrir að vera töluvert neðar í deildinni fyrir leik kvöldsins mættur Stjörnukonur tilbúnar til leiks í kvöld og leiddu með ellefu stigum, 40-29, þegar að flautað var til hálfleiks.

Það býr hins vegar mikið í liði Íslandsmeistaranna og þær slógu frá sér í seinni hálfleik. Lokamínúturnar voru æsispennandi og þrigga stiga karfa Diljár Agnar Lárusdóttur fyrir Stjörnuna þegar rétt um 41 sekúnda eftir lifðu leiks sá til þess að aðeins Haukar leiddu aðeins með einu stigi, 71-72. 

Haukakonur náðu hins vegar að hanga á forystu sinni og sigldu að lokum heim þriggja stiga sigri, 71-74 og tylltu sér þar með á topp Bónus deildarinnar, hið minnsta um stundarsakir.

Nánari umfjöllun um leikinn sem og viðtöl birtast hér á Vísi seinna í kvöld.




Fleiri fréttir

Sjá meira
×