„Stuðlabergið er bara komið út í sjó“ Lovísa Arnardóttir skrifar 8. febrúar 2026 22:02 Mynd sem Birna Viðarsdóttir íbúi tók í gær. Eins og má sjá er stuðlabergið alveg komið út í sjó. Birna Viðarsdóttir Mikið landrof hefur orðið í Reynisfjöru. Íbúar segjast aldrei hafa átt von á öðru eins. Náttúruvársérfræðingur segir austanáttina hafa verið stöðuga á svæðinu síðustu vikur og hafaldan með. Hún á von á því, sem og íbúar, að eitthvað af sandinum sem hafi færst til komi aftur. Það er þó alveg óvíst hvort hann komi allur til baka.
Guðna Einarssyni, bónda og landeiganda í Reynisfjöru, var mjög brugðið að sjá breytinguna á Reynisfjörunni um helgina. „Þetta er þekkt hjá okkur, Reynisfjaran nær á milli Dyrhólaeyjar og Reynisfjalls, og við höfum oft upplifað að sandurinn hafi færst fram og til baka. Það grefur úr austur við Reynisfjall en hleður í vestur við Dyrhólaey. Sjórinn er búinn að hreinsa burt allan sandinn sunnan undir Reynisfjallinu og stuðlaberginu. Stuðlabergið er bara komið út í sjó og hann bara flytur þetta vestar á fjörurnar. Hann segir þetta sérstaklega gerast í austanáttum og svo þegar vindurinn fer í suðvestanáttir þá komi sandurinn oft til baka,“ segir Guðni. Hér sést hversu stutt er í göngustíg að bílastæði frá stuðlaberginu. Vísir/Vilhelm Gætu orðið berskjaldaðir við bílastæðið „En þetta sem gerðist þarna núna hefur aldrei gerst áður. Þetta er í það miklu mæli. Það gróf svo langt inn þarna við Reynisfjallið, þar er mikið aðdýpi. Þetta er sjálfsagt um hundrað metrar sem hefur grafið þarna inn. Þar fyrir utan er mikið dýpi og það er sjálfsagt eitthvað komið þarna inn. Ef það gerir mikið brim, þá gætum við orðið berskjaldaðir varðandi bílastæðið í Reynisfjöru.“ Hann áætlar að það séu um hundrað metrar í bílastæðið. „Við eigum von á því að þessi sandur skili sér til baka ef það breytir um vindátt og strauma, en það er spurning hvort við fáum mikið brim og vont veður áður en það gerist,“ segir Guðni. Eins og má sjá á myndum er mikið stórgrýti í fjörunni sem ekki hefur sést þar áður. Hann segir sjóinn hafa rótað því upp og vestar á fjöruna. Hver steinn sé stór og líklega um tonn að þyngd. Mynd sem Birna Viðarsdóttir tók árið 2023. Eins og má sjá er fjaran gjörbreytt frá þeim tíma. Birna Viðarsdóttir Fjaran gjörbreytt „Þetta eru ógurlegir kraftar. Blágrýti eru steinar sem eru frá einu og upp í tvö tonn. Það gengur mikið á.“ Hann segir fjöruna ekkert hættulegri í þessum aðstæðum en hún sé gjörbreytt frá því sem hún var í haust. „Fólk kemur og sér hvernig þetta er og fólk kemst ekkert ofan í fjöruna fyrir framan göngustíginn heldur getur farið vestur á fjöruna. Það er mjög mikilfenglegt að sjá þetta eins og þetta er núna í dag. Fjaran er ekkert hættulegri, hún er gjörbreytt.“ Guðni segist hafa séð þetta fyrst í fyrradag og segir hafa brugðið. „Ég átti ekki von á því að þetta myndi gerast, og ég átti ekki von á að þetta myndi gerast svona hratt. Sjórinn hefur aldrei farið svona langt inn, allavega hvað núlifandi menn muna.“ Eins og má sjá gátu ferðamenn áður gengið ströndina og að Dyrhólaey. Það er ekki möguleiki að gera það í dag. Myndin er úr safni Vísis. Vísir/Sigurjón Guðni segir veðrið búið að vera óvanalegt. „Þessar stífu austanáttir sem eru búnar að vera svo vikum skiptir, það er mjög hvasst við suðurströndina og hefur verið mikið brim samfara þessu. Þessi veðurstaða sem er búin að vera og hefur gert það að verkum að við fáum ekki vetur enn þá,“ segir Guðni. Hann segir þetta veður þó mjög þægilegt og að vera laus við snjóinn spari pening. „Þetta er eitthvað sem enginn ræður við og við verðum bara að bíða og sjá og vona að sandurinn gangi til baka. Þetta hefur engin áhrif á Reynisfjöruna. Hún er enn áhugaverður og mikilfenglegur staður.“ Myndina tók Birna Viðarsdóttir árið 2023.Birna Viðarsdóttir Jóhanna Malen Skúladóttir, náttúruvársérfræðingur á Veðurstofu Íslands, segir hafa verið stöðuga austanátt undanfarið og hafaldan hafi verið eftir því. „Hún hefur sópað þessu vestur og væntanlega þegar vindáttin snýst kemur þetta til baka,“ segir hún um landrofið í Reynisfjöru. Hún segir óvanalegt að vindáttin haldist sú sama svona lengi á einum stað. Hafaldan sé afar kröftug þarna og það útskýri væntanlega breytinguna á landinu. Myndin er tekin af ljósmyndara Vísis árið 2024. Vísir/Vilhelm Brá verulega Birna Viðarsdóttir býr á Norður-Hvoli í um tíu kílómetra fjarlægð frá Reynisfjöru og tók myndir í gær sem má sjá í fréttinni. Hún segir breytinguna verulega. „Ég fór í gær og manni brá að sjá þetta. Maður hefði aldrei trúað þessu. Það er bara við hliðið, þar sem er venjulega stígur til að ganga í hellinn eftir fjörunni, þar er sjórinn ólgandi. Manni brá verulega að sjá þetta.“ Hún segir steinana stóra sem hafa færst til í fjörunni. „Maður fer þarna öðru hvoru, þetta er uppáhalds staðurinn minn, svo ofboðslega fallegt,“ segir hún.
Reynisfjara Ferðaþjónusta Mýrdalshreppur Tengdar fréttir Nýtt skilti komið upp og rauða ljósið mun loga oftar Rautt ljós mun loga 30 prósent oftar í Reynisfjöru eftir endurmat á hættustigum. Nýju viðvörunarskilti var komið upp í fjörunni á laugardag. 11. ágúst 2025 06:24 Öryggissérfræðingur hefur trú á boðuðum aðgerðum í Reynisfjöru Sérfræðingur á sviði öryggismála hjá Ferðamálastofu hefur mikla trú á að þær aðgerðir sem landeigendur Reynisfjöru ákváðu að grípa til í gær muni koma til með að bæta öryggi töluvert á svæðinu. Hann segir að kjarninn í góðum gæða -og öryggiskerfum sé að rýna hvað betur megi gera þegar slys verða. 6. ágúst 2025 12:44 Mest lesið Fjölskyldufaðir þungt haldinn á spítala eftir alvarlega árás á þorrablóti Innlent „Þarf maður að fara að finna einhverja nýja fjöru?“ Innlent „Skaðinn er ekki skeður þó að járnbrautarslysið vofi yfir“ Innlent Rektor Háskólans á Bifröst segir af sér Innlent Drífa Snædal snýr aftur Innlent Ný Ölfusárbrú farin að taka á sig mynd Innlent Tók hálftíma að þróa fullkomna eftirlíkingu af rödd Höllu Innlent Gabríel á bak við lás og slá fram á föstudag Innlent Goddur jarðsunginn Innlent Flutti til Reykjavíkur í dag Innlent Fleiri fréttir „Þarf maður að fara að finna einhverja nýja fjöru?“ „Skaðinn er ekki skeður þó að járnbrautarslysið vofi yfir“ Fjölskyldufaðir þungt haldinn á spítala eftir alvarlega árás á þorrablóti Tók hálftíma að þróa fullkomna eftirlíkingu af rödd Höllu Rektor Háskólans á Bifröst segir af sér Ný Ölfusárbrú farin að taka á sig mynd „Það er ekkert sem tekur við og enginn sem ber ábyrgð“ Drífa Snædal snýr aftur Goddur jarðsunginn Tifandi tímasprengja, oddviti í beinni og breytt Reynisfjara Handtekin fyrir að beita opinberan starfsmann ofbeldi „Þörfin er gríðarleg“ Gabríel á bak við lás og slá fram á föstudag Blíðan haft áhrif á gróður sem lætur þó ekki plata sig Reiknar með einu gosi í viðbót Flutti til Reykjavíkur í dag Málið mögulega fyrir dómstóla: „Ekkert eðlilegt við það að fá símtal frá stjórnendum“ Réttað yfir manni sem er grunaður um að nauðga barni og konu sinni Saka stjórnendur Bifrastar um að hafa beitt nemendur þrýstingi Saka stjórnendur um að þrýsta á nemendur að styðja rektor Biðla enn til almennings sjö árum eftir hvarf Jóns Þrastar Þorsteinn fær áheyrn Hæstaréttar Ari Edwald leiðir Miðflokkinn í borginni Stjórnarformaðurinn verður forstjóri Reykjalundar Íslenska ríkið ræður lobbýista í Washington Jarðskjálftahrinan við Eldey heldur áfram Þetta eru launin sem frambjóðendur geta vænst með kjöri í vor „Vísun máls til siðanefndar getur ekki talist aðför“ Fjórir handteknir í tengslum við líkamsárásir „Stuðlabergið er bara komið út í sjó“ Sjá meira
Nýtt skilti komið upp og rauða ljósið mun loga oftar Rautt ljós mun loga 30 prósent oftar í Reynisfjöru eftir endurmat á hættustigum. Nýju viðvörunarskilti var komið upp í fjörunni á laugardag. 11. ágúst 2025 06:24
Öryggissérfræðingur hefur trú á boðuðum aðgerðum í Reynisfjöru Sérfræðingur á sviði öryggismála hjá Ferðamálastofu hefur mikla trú á að þær aðgerðir sem landeigendur Reynisfjöru ákváðu að grípa til í gær muni koma til með að bæta öryggi töluvert á svæðinu. Hann segir að kjarninn í góðum gæða -og öryggiskerfum sé að rýna hvað betur megi gera þegar slys verða. 6. ágúst 2025 12:44