Þegar traustið brestur - Háskólinn á Bifröst Stefanía Hrund Guðmundsdóttir skrifar 7. febrúar 2026 23:30 Haustið 2024 hóf ég nám í áfallastjórnun við Háskólann á Bifröst. Námið er sérhæft, heillandi og mikilvægt og því fór ég í það með miklum áhuga. Kennslan var öflug, kennararnir með mismunandi reynslu úr þessum heimi og nemendahópurinn var samheldinn. Í janúar á þessu ári lauk ég náminu og varði meistararitgerð mína. Í vörninni var bent á villu í heimild og mér var tjáð að ekki væri hægt að gefa mér einkunn nema þetta yrði leiðrétt. Þegar ég kom heim sá ég fljótt að um mannleg mistök var að ræða og ég hafði blandað saman heimildum. Ég lét leiðbeinanda minn vita sama dag og vörnin var og í tölvupósti sem ég fékk í kjölfarið sagði hún að um „dæmigert gervigreindarbull“ væri að ræða. Þessi orð eru í mínum huga ekki óheppilegt orðalag heldur fela þau í sér ásökun um að ég hefði nýtt mér gervigreind í ritgerðinni en slík ásökun er alvarleg í akademísku samhengi og getur haft töluverð áhrif á framtíðina og orðspor nemenda. Ég óskaði eftir skýringum og leitaði til aðstoðarrektors skólans. Niðurstaðan var sú að ég fékk heimild til að draga ritgerðina til baka, leiðrétta heimildina og fá ritgerðina svo metna, ég gerði það og útskrifast með meistaragráðu núna í febrúar. Þrátt fyrir að mitt mál hafi endað vel er það alvarlegt í mínum huga að saka nemanda um notkun gervigreindar án rökstuðnings. Gervigreindin er ný áskorun fyrir háskólasamfélagið sem kallar á skýrar reglur, skýrt verklag og vandaða málsmeðferð þegar grunur um notkun á henni vaknar. Ásakanir verða að byggjast á haldbærum rökum og gagnsæju ferli en í mínum huga er það lágmarksréttlæti og það er mikilvægt bæði fyrir nemendur og starfsfólk til að byggja upp traust. Skömmu eftir að mitt mál kom upp varð umræða um notkun gervigreindar við Háskólann á Bifröst áberandi í fréttaflutningi um mál sem kom upp innan skólans, þar sem lýst var vantrausti á stjórnendur skólans en málið hefur verið áberandi í fjölmiðlum og vakið mikla athygli. Þrátt fyrir að siðanefnd Háskólans hafi hreinsað starfsmenn af öllum ásökunum breytir það ekki þeirri staðreynd að vantraust var samþykkt á Rektor og það hverfur ekki af sjálfu sér. Kaldhæðnin er augljós í mínum augum. Nemandi situr undir ásökunum um gervigreindarnotkun án rökstuðnings og skömmu síðar eru háttsettir starfsmenn skólans að nýta sér gervigreind til að leggja mat á fræðigreinar starfsmanna skólans. Tímasetningin á þessu öllu saman varð til þess að ég fór að velta fyrir mér mikilvægi traustsins innan háskólasamfélagsins, bæði trausts á milli nemenda og kennara en einnig milli starfsfólks og stjórnenda. Orðspor skólans út á við byggir allt á þessu trausti. Nemendur Háskólans á Bifröst fylgjast með málinu. Við skoðum flest fréttamiðla og sjáum þar nýjustu vendingar og nemendur ræða sinn á milli. Mikil óvissa er uppi og nemendur velta fyrir sér stöðu skólans, orðspori hans og framtíð. Ég hef heyrt nemendur velta því fyrir sér hvort þeir ætli sér að halda áfram í námi við skólann. Aðrir spyrja sig hvort það borgi sig að sækja um nám í skólanum eða hvort þeir ættu að leita annað. Jákvætt orðspor háskóla er ekki sjálfgefið, það er áunnið með tímanum og er virkilega brothætt – eins og sést best á þessu máli. Skóli sem kennir áfallastjórnun, sá eini á landinu, ætti að vita það betur en flestir hversu mikilvæg viðbrögð eru í máli sem þessu og hversu mikilvægt gagnsæi er og að það skipti öllu máli að axla ábyrgð og vera með skýr samskipti við hagsmunaaðila, bæði starfsfólk og nemendur. Traust er ekki sjálfgefið. Það er undirstaða akademísks samfélags. Þegar traustið veikist, eins og það hefur því miður gert hjá Háskólanum á Bifröst undanfarið, þarf að bregðast við af festu og ábyrgð - áður en skaðinn verður varanlegur. Boltinn er núna hjá stjórn skólans að standa vörð um hagsmuni starfsfólks, nemenda skólans og orðspor hans. Ábyrgðin er hjá þeim að sýna ábyrgð og taka á málunum sem koma upp og grípa til ráðstafana til að tryggja að starfsfólki og nemendum líði vel og að hagsmunir þeirra séu hafðir að leiðarljósi. Höfundur er útskriftarefni í áfallastjórnun frá Háskólanum á Bifröst. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Deilur í Háskólanum á Bifröst Gervigreind Háskólar Mest lesið Hinn háskalegi hugsunarháttur Sighvatur Björgvinsson Skoðun Frítt í strætó í dag Margrét Rós Sigurjónsdóttir Skoðun Er ekki kominn tími til að endurskoða íslenska kjarasamningamódelið? Þórir Garðarsson Skoðun Hvernig lögum við fegurðarskyn okkar að orkuskiptabyltingunni? Páll Jakob Líndal Skoðun Hún þekkir mig með hjartanu Thelma Jónsdóttir Skoðun Rætin Rót í þrettán ár Ketill Guðmundsson Skoðun Samsköttun hjóna – allt annar hlutur? Gunnar Ármannsson Skoðun Alþjóðadagur friðarmenningar 21. september Gunnar Hersveinn Skoðun Sigurganga málaflokka Flokks fólksins Jónína Björk Óskarsdóttir Skoðun Heilbrigð skynsemi Einar Bárðarson Skoðun Skoðun Skoðun Uppsagnir í Stjórnarráðinu Hrafnkell Tumi Kolbeinsson skrifar Skoðun Sigurganga málaflokka Flokks fólksins Jónína Björk Óskarsdóttir skrifar Skoðun Getureglan og froðan Sigurður Sigurðsson skrifar Skoðun Rætin Rót í þrettán ár Ketill Guðmundsson skrifar Skoðun Hvernig lögum við fegurðarskyn okkar að orkuskiptabyltingunni? Páll Jakob Líndal skrifar Skoðun Frítt í strætó í dag Margrét Rós Sigurjónsdóttir skrifar Skoðun Er ekki kominn tími til að endurskoða íslenska kjarasamningamódelið? Þórir Garðarsson skrifar Skoðun Hinn háskalegi hugsunarháttur Sighvatur Björgvinsson skrifar Skoðun Alþjóðadagur friðarmenningar 21. september Gunnar Hersveinn skrifar Skoðun 37% og reikningskúnstir Viðskiptaráðs Hjálmar Bogi Hafliðason skrifar Skoðun Hvers vegna hrynur námsárangur á Íslandi en ekki á Englandi? Guðrún Sævarsdóttir skrifar Skoðun Heilbrigð skynsemi Einar Bárðarson skrifar Skoðun Samsköttun hjóna – allt annar hlutur? Gunnar Ármannsson skrifar Skoðun Tæknin í okkar þágu – ekki öfugt Halla Tómasdóttir skrifar Skoðun Pólland setur jurtaríkið á matseðilinn Ingrid Kuhlman skrifar Skoðun Hún þekkir mig með hjartanu Thelma Jónsdóttir skrifar Skoðun Hvalveiðum er lokið... í bili Sigurlaug Knudsen Stefánsdóttir skrifar Skoðun Hver borgar? — Seinni hluti: Já 2026 Gestur Valgarðsson skrifar Skoðun Parkour skúrinn - Síðasta vígið Davíð Már Sigurðsson, Tommi Thor Guðmundsson,Viktor Yngvi Ísaksson skrifar Skoðun Þú, ég og dildóinn Eva Pandora Baldursdóttir skrifar Skoðun SÁÁ, milljarðarnir og aðhaldið sem vantar Kristín I. Pálsdóttir skrifar Skoðun Sheeran og Gaza Arnar Eggert Thoroddsen skrifar Skoðun Sameinumst um 2,5 prósent markmið Seðlabankans Bragi Bjarnason skrifar Skoðun Lestur er meira en ein aðferð Guðmundur Engilbertsson skrifar Skoðun Hver skilgreinir svarið? Erna Bjarnadóttir skrifar Skoðun Krónan varð eftir – nú þarf að láta hana virka Örn Sigurdsson skrifar Skoðun Grænlandssamningurinn Arnór Sigurjónsson skrifar Skoðun Uppsagnir hafnar en ríkið er ekki tilbúið að taka við Sigrún Guðmundsdóttir skrifar Skoðun Þegar faglegt sjálfstæði verður að neitunarvaldi Ketill Guðmundsson skrifar Skoðun Penelópa í Valhöll Júlíus Valsson skrifar Sjá meira
Skoðun Er ekki kominn tími til að endurskoða íslenska kjarasamningamódelið? Þórir Garðarsson skrifar
Skoðun Parkour skúrinn - Síðasta vígið Davíð Már Sigurðsson, Tommi Thor Guðmundsson,Viktor Yngvi Ísaksson skrifar