Skilur að fólk hafi áhyggjur af falli Bitcoin en er sjálfur rólegur Bjarki Sigurðsson skrifar 7. febrúar 2026 14:32 Kristján Ingi Mikaelsson hefur ekki miklar áhyggjur af falli Bitcoin. Vísir/Vilhelm Virði rafmyntarinnar Bitcoin hefur fallið um tæp þrjátíu prósent á einum mánuði. Sérfræðingur segir myntina eiga það til að hreyfast hratt og skilur áhyggjur fólks sem fjárfest hefur í henni, en telur þó að virðið nái sér á strik á ný.
Þann sjöunda október á síðasta ári var virði einnar Bitcoin-myntar fimmtán milljónir króna. Á föstudag var virðið það lægsta síðan í september 2024 þegar ein mynt fékkst á sjö og hálfa milljón. Virðið féll því um fimmtíu prósent á fjórum mánuðum. Breytist oft hratt Virði myntarinnar hefur í gegnum tíðina verið mjög breytilegt og hreyfst hratt við vendingar í alþjóðamálum, til að mynda hækkaði það gríðarlega þegar Bandaríkjastjórn tilkynnti að hún hefði fjárfest í myntinni og svo lækkaði það þegar Bandaríkjaforseti tilkynnti að hann ætlaði að leggja tolla á fjölda ríkja heims. Kristján Ingi Mikaelsson, sjóðsstjóri hjá Visku sjóðum og einn fremsti sérfræðingur landsins í rafmyntum, segir alltaf erfitt þegar eignir manns lækka í virði. Hann hefur þó enn fulla trú á myntinni. „Þetta er langt frá því að vera það stærsta sem maður hefur séð í þessu. Ég hef verið að tala fyrir Bitcoin opinberlega síðan 2018 og mér hefur aldrei þótt heimurinn vera á betri stað fyrir Bitcoin til að láta ljós sitt skína. Heimurinn er búinn að vera á leiðinni í vonda átt þegar kemur að eignafrelsi, ritskoðun og alls konar málum til að varðveita sína fjármuni. Bitcoin er dreifð eign sem enginn getur tekið af þér og það er gríðarlega mikils virði í heimi eins og hann er í dag,“ segir Kristján Ingi. Íslendingar ekki mikið í Bitcoin Aðrir Norðurlandabúar fjárfesti meira í Bitcoin en Íslendingar. „Það hefur sögulega ekkert verið mjög mikið og maður hefði haldið að þjóð sem lenti í gjaldeyrishöftum og miklu fjármálaáfalli myndi taka þessu betur. En fólk átti mjög erfitt með að kaupa þetta snemma á síðasta áratug,“ segir Kristján Ingi.
Rafmyntir og sýndareignir Mest lesið Dóttirin föst á amerískum tíma og minningar um ást og andarteppu Atvinnulíf Lágjaldaflugfélagið Spirit Airlines hættir rekstri Viðskipti erlent Bensínverð hefur lækkað Viðskipti innlent Ætlar að hækka tolla á bíla frá Evrópu í 25 prósent Viðskipti erlent Atvinnuleysi minnkar milli mánaða Viðskipti innlent Olían ekki verið dýrari síðan Pútín réðst inn í Úkraínu Viðskipti erlent Ferð í Silfru valin sú besta af því besta á heimsvísu Viðskipti innlent Lúxusbílaframleiðandi bauð íslenskum bræðrum í draumaferð til Kína Samstarf Óvissa með nöfnin og reynt að róa uggandi starfsmenn Viðskipti innlent Arion banki hækkar vexti Viðskipti innlent Fleiri fréttir Lágjaldaflugfélagið Spirit Airlines hættir rekstri Ætlar að hækka tolla á bíla frá Evrópu í 25 prósent Olían ekki verið dýrari síðan Pútín réðst inn í Úkraínu Vill 22 billjónir frá OpenAI: „Það er ekki í lagi að stela góðgerðafélagi“ Verði að koma betur í veg fyrir að yngri en þrettán ára séu á Facebook og Instagram Furstadæmin yfirgefa OPEC Tim Cook stígur til hliðar Sementsrisi dæmdur fyrir að fjármagna Ríki íslams Leggur hundrað prósenta toll á einkaleyfisvarin lyf Sjá meira