„Fullyrðingar ákæruvaldsins eru á sandi byggðar“ Árni Sæberg skrifar 6. febrúar 2026 06:47 Þórarinn er ákærður vegna viðskipta hans með hlutabréf í Kviku. Vísir Þórarinn Arnar Sævarsson, einn eigenda fasteignasölunnar Remax, sem sætir ákæru fyrir markaðsmisnotkun telur fullyrðingar ákæruvaldsins um sekt hans á sandi byggðar. Í greinargerð hans kemur meðal annars fram að viðskipti hans með bréf í Kviku hafi numið 0,14 prósentum af heildarviðskiptum á ákærutímabilinu, þróun gengis félagsins hafi verið í takt við þróun gengis Arion banka á tímabilinu og hann hafi ekki reynt að hafa áhrif á dagslokagengi Kviku. Viðskipti hans með bréf í félaginu hafi aldrei hækkað gengið um meira en 1,5 prósent, sem er langt undir öllum viðmiðunarmörkum.
Líkt og greint var frá í október síðastliðnum kemur fram í ákæru á hendur Þórarni og IREF ehf., félagi sem hann á helming í, að meint misnotkun hafi farið fram árið 2020 á um tveggja mánaða tímabili og að hann hafi í 71 skipti lagt fram viðskiptafyrirmæli um kaup á hlutabréfum í Kviku banka hf. sem voru líkleg til að gefa ranga eða villandi mynd af eftirspurn og verði hlutabréfanna. Í ákæru segir enn fremur að brotin hafi verið framin með því að ganga kerfisbundið og ítrekað að hagstæðasta sölutilboði þegar það var hærra en síðasta viðskiptaverð, án þess að lögmæt viðskiptaleg sjónarmið hafi búið þar að baki, og setja inn fjölda kauptilboða sem leiddu til pörunarviðskipta sem voru til þess fallin að gefa ranga og villandi mynd af verði og eftirspurn eftir hlutabréfum í Kviku banka hf. Þá segir að með viðskiptunum hafi Þórarinn og IREF ítrekað átt síðustu viðskipti með hlutabréf í Kviku banka hf. innan viðskiptadags og þannig stuðlað að hækkun dagslokaverðs bréfanna eða að dagslokaverð endaði í efri mörkum fyrirliggjandi verðbils. Héraðssaksóknari krefst þess að Þórarinn Arnar verði dæmdur til refsingar og til greiðslu alls sakarkostnaðar. Aðalmeðferð síðar í mánuðinum Aðalmeðferð í máli Héraðssaksóknara á hendur Þórarni fer fram síðar í febrúar og aðilar hafa skilað greinargerðum sínum til Héraðsdóms Reykjavíkur. Vísir hefur greinargerðir Þórarins og IREF ehf. undir höndum. Þar segir að viðskiptalegar forsendur hafi legið að baki viðskiptunum og þrátt fyrir lágar fjárhæðir og það sem ákæruvaldið telur háar þóknanir þá hafi viðskipti sem ákært er fyrir verið arðbær. Keypt hafi verið hlutabréf fyrir samtals 7.041.451 krónur og greidd þóknun hafi numið 177.500 krónur eða sem nemur 2,5%. „Því fer fjarri að það teljist óvenjulega hátt.“ Við mat á refsinæmi viðskipta skipti hlutfall veltu umtalsverðu máli. Viðskipti Þórarins hafi aðeins 0,14 prósentum af heildarveltu tímabilsins eða ríflega sjö milljónum króna af 5.134 milljóna króna veltu. Viðskipti af þeirri stærðargráðu hafi engin marktæk áhrif á verð hlutabréfa. Upplýsingar um stærð viðskipta séu aðgengileg öllum markaðsaðilum. Hefði getað prentað viðskipti sem hefðu raunverulega haft áhrif Hlutabréf í Kviku hafi á ákærutímabilinu verið færð milli fjárfestingafélaga í eigu Þórarins og viðskiptafélaga hans. Hefði hann haft ásetning til að hækka verð hlutabréfa Kviku eða blekkja markaðsaðila með einhverjum hætti hefði hann með auðveldum hætti getað látið prenta umrædd viðskipti í viðskiptakerfi Kauphallarinnar. „Um var að ræða stórar tilfærslur sem hefðu haft marktækar verðbreytingar í för með sér. Það gerði hann hins vegar ekki enda aldrei verið tilgangur hans að veita rangar eða villandi upplýsingar um eftirspurn og verð hlutabréfa.“ Tók aldrei þátt í lokauppboðum Þá segir að Þórarinn hafi aldrei tekið þátt í lokunaruppboðum. Þátttaka í þeim hefði tryggt lokaverð ef ásetningur hans hefði staðið til slíks. Þungamiðja ákærunnar séu viðskipti við lokun markaðar sem eigi að hafa verið misvísandi gagnvart fjárfestum sem taka ákvarðanir á grundvelli lokaverðs. Það sé rangt eins og ítarlega sé rakið í greinargerðinni, skýrslu sem unnin var af Veritas ráðgjöf og greinargerð meðákærða IREF ehf. „Takmörkuð rannsóknarvinna var framkvæmd af lögreglu og ákæruvaldi. Hin takmarkaða rannsóknarvinna var auk þess framkvæmd af þröngsýni þar sem einungis var horft til viðskipta ákærða án þess að þau hafi verið sett í samhengi við ytri aðstæður.“ Alltaf innan verðbils Kaupgengi hlutabréfanna hafi ávallt verið innan verðbils og hvergi sé skilgreint hvað telst vera „marktækar breytingar á verði“. Af þeim sökum beri að beita mjög ströngu sakarmati og gera mjög strangar sönnunarkröfur. Verðbreytingar hafi verið smávægilegar og falli innan þess sem eðlilegt telst á hlutabréfamarkaði. Þórarinn undirstriki að hlutabréfaverð í Kviku hafi verið hækkandi allt ákærutímabilið og hefði gert í nokkurn tíma á undan og í marga mánuði á eftir. Verð á hlutabréfamörkuðum sveiflist dag frá degi og innan viðskiptadags. Hækkanirnar hafi verið óverulegar og langt fyrir neðan þau viðmiðunarmörk sem norrænar kauphallir leggja til grundvallar. Þau viðmiðunarmörk eru á bilinu tvö til fjögur prósent og samkvæmt greiningu Veritas var verðbreyting í þeim viðskiptum sem ákært er fyrir aldrei meiri en 1,5 prósent. „Sú fullyrðing að ákærði hafi reynt að hafa áhrif á dagslokagengi í viðskiptum fær því augljóslega ekki staðist, enda bersýnilega ekki um marktækar verðbreytingar að ræða út frá þeim viðmiðunum sem eftirlitskerfi Kauphallarinnar og norrænar kauphallir starfa eftir. Því til viðbótar voru fjöldi annarra markaðsaðila sem áttu viðskipti á eftir honum dag hvern, þó einnig hafi komið fyrir að ákærði hafi átt síðustu viðskipti dagsins. Þær verðhækkanir voru þó smávægilegar, brot út prósenti og byggðust á mjög litlu viðskiptamagni,“ segir í greinargerðinni. Gengið hækkaði mikið á tímabilinu vegna samruna Þórarinn leggur áherslu á að viðskipti við lokun markaða eru ekki ólögmæt í sjálfu sér heldur þurfi eitthvað meira að koma til. Viðskiptin þurfi að fela í sér ranga eða misvísandi upplýsingagjöf til markaðarins, samanber orðalagið „misvísandi gagnvart fjárfestum“ „Engin tilraun hefur verið gerð til þess að sýna fram á að svo sé. Ákærði byggir á því að samanburðargreining Veritas sýni að fullyrðingar ákæruvaldsins eru á sandi byggðar. Hækkanir á hlutabréfaverði Kviku voru í samræmi við hækkanir á hlutabréfaverði Arion banka og fylgni milli bankanna var mikil, að teknu tilliti til þeirra jákvæðu frétta sem bárust af Kviku á ákærutímabilinu sem augljóslega höfðu mikil áhrif á eftirspurn og verð hlutabréfa í Kviku í langan tíma á eftir. Rannsókn lögreglu var áfátt um mikilvæg atriði. Af þeim sökum ber að beita mjög ströngu sönnunarmati í málinu.“ Jákvæðu fréttirnar sem vísað er til eru fréttir af samruna Kviku og TM en tilkynnt var um upphaf samrunaviðræðna á því tímabili sem Þórarinn á að hafa framið meinta markaðsmisnotkun. Í kjölfar fréttaflutningsins hækkaði gengi Kviku talsvert. Taldi verð hlutabréfanna sanngjarnt Loks segir að samkvæmt lögum um verðbréfaviðskipti sé ekki um markaðsmisnotkun að ræða ef aðilinn sem átti viðskiptin eða gaf fyrirmæli um þau getur sýnt fram á að ástæður að baki þeim séu lögmætar og að viðskiptin eða fyrirmælin hafi verið í samræmi við viðurkennda markaðsframkvæmd á viðkomandi skipulegum verðbréfamarkaði. „Sannað er að lögmætar viðskiptalegar ástæður lágu að baki viðskiptum ákærða. Ákærði taldi verð hlutabréfanna sanngjarnt og samþykkti sölutilboð sem Íslandsbanki bauð og kallaði hagstæðasta sölutilboð.“ Með vísan til alls framangreinds sé ósannað að Þórarinn hafi hagað viðskiptum sínum með þeim hætti að þau væru líkleg til að gefa ranga eða villandi mynd af eftirspurn og verði hlutabréfanna, svo að varði hann refsingu samkvæmt um lögum verðbréfaviðskipti.
Fjármálamarkaðir Kvika banki Efnahagsbrot Mest lesið Stýrivextir verði 8,25 prósent fyrir árslok Viðskipti innlent Eldsneytisbirgðastaða Icelandair góð en fylgst er með stöðunni Viðskipti innlent Samkeppniseftirlitið ógildir samruna Ferro zinks og Metals Viðskipti innlent Fyrsta skemmtiferðaskipið mætt Viðskipti innlent Kvika lækkar hressilega í fyrstu viðskiptum Viðskipti innlent Boða lækkanir í Bónus og Hagkaupum með nýju samstarfi Neytendur Markaðsstjóri Domino's á Íslandi hættur Viðskipti innlent Þrír bætast í eigendahópinn hjá LEX Viðskipti innlent „Alltaf að líða þannig í vinnunni þinni að þú skiptir máli“ Atvinnulíf Arion banki og Kvika blása af samrunann Viðskipti innlent Fleiri fréttir Samkeppniseftirlitið ógildir samruna Ferro zinks og Metals Eldsneytisbirgðastaða Icelandair góð en fylgst er með stöðunni Fyrsta skemmtiferðaskipið mætt Tekur við sem forstjóri S4S Stýrivextir verði 8,25 prósent fyrir árslok Stefna Rannís vegna neitunar um endurgreiðslu Ársfundur Orkuveitunnar í beinni á Vísi Simmi Vill festir kaup á Mosfellingi Innkalla Smash Style hamborgara vegna salmonellu Eftirlitið útiloki samruna Kviku og stærri banka Bein útsending: Staða orkumála vegna stríðsátaka í Mið-Austurlöndum Þrír bætast í eigendahópinn hjá LEX Spá aukinni verðbólgu í apríl Kvika lækkar hressilega í fyrstu viðskiptum Arion banki og Kvika blása af samrunann Bein útsending: Ísland 2036: Fjártæknieyjan og framtíðin Markaðsstjóri Domino's á Íslandi hættur Jóhann Ingi til Securitas Umsóknum synjað og kurr í greininni Gagnastuldur af Booking sé fullkomið hráefni í markviss netsvik Heimilar ráðherra að ákvarða hámarksverð eldsneytis Vilja að skattahvatar fyrir tækni- og hugverkaiðnað verði festir í sessi Ríflega 7.500 sóttu um 200 sumarstörf Ráðinn framkvæmdastjóri Betri samgangna Eimskip ákært vegna sölu tveggja skipa Yngri en 30 ára neikvæðust í garð annarra samgöngumáta en einkabíls Máttu fella úr gildi skráningu Stripadvisor Spá enn vaxtahækkun í maí Valdís tekur við sem formaður KÍÓ Lækka vask á eldsneyti og sjá til þess að verðlækkanir skili sér strax Sjá meira