Barnavernd á Íslandi fyrr og nú Ása Berglind Hjálmarsdóttir skrifar 5. febrúar 2026 11:16 Orð ná ekki utan um þann sársauka sem var lýst í átakanlegum þætti Kveiks um börn sem voru vistuð í Bakkakoti. Ekkert barn á að upplifa hrylling eins og þar var lýst. Því miður þá er saga okkar þannig að þetta er ekki einsdæmi. Það er og hefur verið eitthvað verulega rotið í samfélaginu okkar þegar kemur að því að gæta að þeim börnum sem standa höllum fæti í lífinu, börnum sem þurfa einmitt, þvert á móti, sérstakan stuðning og auka skammt af kærleika. Við þekkjum örugglega flest fullorðinn einstakling sem fékk ekki viðeigandi aðstoð frá kerfum sem áttu að vernda hann á barnsaldri. Ég vildi óska að ég gæti hvílt í þeirri trú að það tilheyrði fortíðinni og að nú værum við að standa okkur vel gagnvart þessum börnum. En því miður þá sjáum við ákveðna birtingarmynd enn í dag, til dæmis í úrræðaleysi þegar kemur að fíknimeðferðum barna á Íslandi og áralöngum niðurskurði í þeim málaflokki. Formaður félags fósturforeldra hefur einnig sagt að eftirliti með aðstæðum fósturbarna í dag sé enn ábótavant. Árið 2021 hafði engin markviss rannsókn verið gerð hér á landi um afdrif fyrrum fósturbarna á fullorðinsárum, þrátt fyrir áköll frá Sameinuðu þjóðunum, Félagi fósturforeldra, UNICEF, SOS-barnaþorpum og Barnaheillum eins og kemur fram í ritrýndri grein sem birtist í Tímariti félagsráðgjafa árið 2023. Þar segir enn fremur að norrænir rannsakendur hafi óskað eftir upplýsingum um afdrif fósturbarna á Íslandi þegar gerðar hafa verið samanburðarrannsóknir á Norðurlöndum. Þess vegna fóru höfundar greinarinnar í að kanna afdrif fyrrum fósturbarna. Vandamálið er hins vegar að ekki eru til gögn um það hvaða börn hafi farið í gegnum fósturkerfið á Íslandi og því þurftu rannsakendur að leita eftir þátttakendum í hinum ýmsu hópum á Facebook. Niðurstaða leitarinnar var 89 þátttakendur sem voru 18-40 ára þegar rannsóknin fór fram árið 2021. Niðurstöður voru meðal annars að 55% þeirra höfðu aðeins lokið grunnskólaprófi, samanborið við 24,1% Íslendinga á aldrinum 24-64 ára. Tæplega helmingur þátttakenda, eða 48% þeirra voru í launaðri vinnu samanborið við 70% almennings og 20% voru með örorkubætur, til samanburðar voru 2,9% Íslendinga á aldrinum 20-29 ára og 4,9% 30-39 ára með örorkubætur árið 2020. Í bókinni Barnavernd á Íslandi fyrr og nú er líka fjallað um þessa sömu rannsókn og þar kemur fram að nærri helmingur þátttakenda var búinn að eignast sitt fyrsta barn fyrir 21 árs aldur. Óhjákvæmilega hugsar maður til þess að svo ungir foreldrar sem sitja uppi með erfiða reynslu úr barnæsku geti átt erfiðara með að fóta sig í hlutverki foreldra, þrátt fyrir að maður gangi út frá því að allir foreldrar vilji gera sitt besta fyrir börnin sín, það er í eðli okkar. En það er augljóst að börn sem hafa upplifað áföll, skort á tengslum og ofan á allt, ófullnægjandi stuðning til að vinna með sín áföll standa höllum fæti á sínum fullorðinsárum. Í rannsókninni kom líka fram að meira en helmingur, eða 55%, sagðist ekki hafa fengið boð um fagleg viðtöl meðan þau voru í fóstri. Aðspurð sögðust 70% þátttakenda hafa þurft á fleiri viðtölum að halda. Þegar kom að stuðningi eftir að fóstri lauk sögðust 63% ekki hafa fengið neinn stuðning. Við munum ekki ná árangri í þessum málum fyrr en við förum að huga að því hvernig við komum í veg fyrir að áföll erfist á milli kynslóða. Um það hef ég skrifað í annarri grein. Við verðum að taka rækilega til í öllum kerfum sem snúa að því að búa börnum og fjölskyldum þeirra til öruggt og styðjandi umhverfi. Það er ekki bara löngu tímabært heldur lífsnauðsynlegt fyrir svo marga einstaklinga. Að lokum vil ég segja við þá hugrökku menn sem stóðu með sjálfum sér og ótal mörgum öðrum fórnarlömbum kerfisins í leiðinni að við trúum ykkur. Við finnum virkilega til með ykkur og við erum sammála um að við verðum að gera allt sem í okkar valdi stendur til þess að tryggja að ykkar saga sé ekki að endurtaka sig á Íslandi í dag. Höfundur er þingmaður Samfylkingarinnar. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Ása Berglind Hjálmarsdóttir Barnavernd Mál fósturbarna á Bakkakoti Mest lesið Þjóðin sagði nei – megum við þá ganga frá eftir okkur? Hilmar Kristinsson Skoðun Foreldrar og þjálfarar: Hvar liggja mörkin? Ragna Ingólfsdóttir Skoðun Ríkisstjórnin tapaði – og ætti að segja af sér Eldur Smári Kristinsson Skoðun Eigum við ekki bara að taka til heima hjá okkur? Guðjón Idir Skoðun Við munum ekki hafa neitt neitunarvald Hjörtur J. Guðmundsson Skoðun Hugvekja á Höfuðdaginn Ívar Örn Hauksson Skoðun Stríð ESB gegn jöfnuði og velferð Andri Sigurðsson Skoðun Opið bréf til óákveðinna kjósenda Gylfi Zoega Skoðun Halldór 29.08.26 Halldór The EU Referendum Dorrit Moussaieff Skoðun Skoðun Skoðun Þjóðin sagði nei – megum við þá ganga frá eftir okkur? Hilmar Kristinsson skrifar Skoðun Foreldrar og þjálfarar: Hvar liggja mörkin? Ragna Ingólfsdóttir skrifar Skoðun Ríkisstjórnin tapaði – og ætti að segja af sér Eldur Smári Kristinsson skrifar Skoðun Eigum við ekki bara að taka til heima hjá okkur? Guðjón Idir skrifar Skoðun Hugvekja á Höfuðdaginn Ívar Örn Hauksson skrifar Skoðun Við munum ekki hafa neitt neitunarvald Hjörtur J. Guðmundsson skrifar Skoðun NEI heldur öllu opnu. JÁ er vegferð að lokun Haraldur Ólafsson skrifar Skoðun Hvað græði ég á að segja já? Björn B Björnsson skrifar Skoðun Opið bréf til óákveðinna kjósenda Gylfi Zoega skrifar Skoðun Þyrnirinn sem náði í gegn Sigurður Árni Reynisson skrifar Skoðun Stærsta lygin Sverrir Björnsson skrifar Skoðun Hver á þennan bústað, já eða nei? Sigþrúður Ármann skrifar Skoðun Stjórnum okkur sjálf og höfum áhrif í Evrópu Viktor Orri Valgarðsson skrifar Skoðun Hvers virði er velvild Trump? Paal Frisvold skrifar Skoðun Lýðræðisveislan 2026 Birgir Björn Sigurjónsson skrifar Skoðun Ungum Íslendingum er betur borgið utan ESB Jón Gunnar Jónsson skrifar Skoðun Hvaða dyr viljum við hafa opnar? Reynsla Spánar og Portúgals Anna Margrét Bjarnadóttir skrifar Skoðun Veistu hvaða sírenur syngja til þín? Vilbert Gústafsson skrifar Skoðun Það er sitthvað bogið við banana Eggert Gunnarsson skrifar Skoðun Já fyrir íslenskuna! Logi Einarsson skrifar Skoðun Segðu ekki nei, segðu kannski, kannski, kannski Hólmar Örn Finnsson skrifar Skoðun Hverjum treystir þú? María Rut Kristinsdóttir skrifar Skoðun Spænskir strandveiðisjómenn til Íslands Bergþór Ólason skrifar Skoðun Ryksugan hans Halldórs Svanhvít Aðalsteinsdóttir skrifar Skoðun Evrópusambandið byggir ekki á því að aðildarríkin séu sammála. Þvert á móti Martha Árnadóttir skrifar Skoðun Barist fyrir veröld sem var Elías Þórsson skrifar Skoðun Við höfum tekið margar góðar ákvarðanir Hjörtur J. Guðmundsson skrifar Skoðun Kjósum með opnum huga Kristín A. Árnadóttir skrifar Skoðun Um Kanada og Ísland Eliza Reid skrifar Skoðun Frístundamiðstöðvar lagðar niður, á hverjum bitnar það? Sigrún Ósk Arnardóttir skrifar Sjá meira
Skoðun Hvaða dyr viljum við hafa opnar? Reynsla Spánar og Portúgals Anna Margrét Bjarnadóttir skrifar
Skoðun Evrópusambandið byggir ekki á því að aðildarríkin séu sammála. Þvert á móti Martha Árnadóttir skrifar