Valdboð í stað samtals – hættulegur tíðarandi Finnbjörn A. Hermannsson skrifar 2. febrúar 2026 11:01 Íslenskt samfélag hefur lengi byggt styrk sinn á samtali, samráði og gagnkvæmri virðingu á vinnumarkaði. Sú hefð hefur verið hornsteinn stöðugleika, félagslegs öryggis og trausts milli aðila. Nú blasir hins vegar við alvarleg stefnubreyting. Stjórnvöld virðast hafa ákveðið að samtal við verkalýðshreyfinguna sé ekki lengur nauðsynlegt. Í stað þess er gripið til einhliða valdboða sem grafa undan réttindum launafólks og rjúfa þann félagslega sáttmála sem byggður hefur verið upp í áratugi. Skýrt dæmi um þennan hættulega nýja tíðaranda er frumvarp stjórnvalda um breytingar á atvinnuleysistryggingakerfinu. Frumvarpið felur í sér verulegar skerðingar á réttindum launafólks, eykur óöryggi og flytur ábyrgð og áhættu af samfélaginu yfir á einstaklingana sjálfa – án raunverulegs samráðs við verkalýðshreyfinguna. Engin andstaða – pólitískur samhljómur Þann 27. janúar mælti Ragnar Þór Ingólfsson ráðherra fyrir frumvarpinu á Alþingi. Enginn setti fram efnislega gagnrýni. Enginn spurði hver bæri byrðarnar. Enginn velti fyrir sér félagslegum afleiðingum breytinganna og enginn vakti athygli á hversu illa málið er unnið. Eftir ræðu ráðherrans kom í pontu þingmaður Sjálfstæðisflokksins – sem minnt skal á að er í stjórnarandstöðu – og fékk vart hamið sig vegna kæti yfir því að málið væri komið fram, frumvarp sem viðkomandi lýsti yfir stuðningi við af heilum huga. Þessi uppákoma segir meira en mörg orð um þann pólitíska samhljóm sem ríkir um að ganga gegn réttindum launafólks, óháð því hvort menn sitja í ríkisstjórn eða stjórnarandstöðu. Fyrir utan verkalýðshreyfinguna heyrðist enginn mótmæla. Sú þögn er ekki merki um styrk frumvarpsins heldur veikleika umræðunnar – og veikleika Alþingis. Sú þögn segir meira en mörg orð um augljósan skort á þinglegu aðhaldi. Í frumvarpinu er vísað til óskýrra og óútfærðra hugmynda um svokallaðar vinnumarkaðsaðgerðir sem eiga að vega upp á móti skerðingum á réttindum launafólks. Þessar aðgerðir eru hvorki skilgreindar með skýrum hætti né studdar fjármagni. Þrátt fyrir það er lagt til að ráðist verði í róttækar kerfisbreytingar án þess að fyrir liggi trúverðug útfærsla eða heildstæð greining á félagslegum og efnahagslegum áhrifum þeirra. Þetta eru kunnugleg vinnubrögð: að fela kostnaðarlækkun á bak við einhliða skerðingu á réttindum launafólks, án rökstuðnings eða ábyrgðar. Hvar eru fulltrúar launafólks? Sérstaka athygli vekur að stjórnmálamenn sem kenna sig við „félagshyggju“, „jafnaðarmennsku“ og segjast jafnvel vera málsvarar „fólksins“ virðast hafa misst allan áhuga þegar kemur að því að verja grundvallarréttindi almennings. Sömu aðilar sem tala fyrir jöfnuði og félagslegu réttlæti í kosningabaráttum sitja nú annaðhvort hljóðir eða styðja beinlínis frumvarp sem felur í sér skerðingar á félagslegum réttindum. Vaknar þá óhjákvæmilega spurningin: Á launafólk á Íslandi enga raunverulega fulltrúa á Alþingi? Ef svo er, hvers vegna ákveða þeir sem segjast vera það að þegja þegar mest á reynir og jafnvel að styðja þess aðför? Hvers vegna er þögnin valin í stað þess að standa vörð um almannahagsmuni og félagslegan stöðugleika? Réttindi gerð tortryggileg Sama hugmyndafræði birtist nú í umræðunni um veikindarétt og réttindi opinberra starfsmanna. Þar hafa atvinnurekendur og talsmenn þeirra – ekki síst innan Viðskiptaráðs, áróðursstofu íslenskrar nýfrjálshyggju, – haldið því fram að svindl og skipulögð misnotkun fái þrifist. Þessir ósönnu sleggjudómar eru látnir standa óátaldir. Á sama tíma áforma stjórnvöld með „jafnaðarmenn“ og fulltrúa „fólksins“ í broddi fylkingar að ráðast á samningsbundin réttindi með afnámi áminningarskyldu gagnvart ríkisstarfsmönnum. Þetta eru ekki tilviljanakenndar aðgerðir heldur hluti af samfelldri og skipulagðri atlögu að réttindum launafólks. Hér er um að ræða bein og með öllu óásættanleg afskipti stjórnvalda af málefnum vinnumarkaðarins. Vitanlega þarf að leiða mál sem þetta til farsælla lykta með samráði og samningum. Atvinnuleysistryggingar sem kerfi aga og refsingar Atvinnuleysistryggingar eru ekki góðgerðarstarfsemi. Þær eru tryggingakerfi sem launafólk hefur sjálft greitt fyrir; byggðar á þeirri grundvallarsýn til samfélags og meðborgara að fólk eigi rétt á afkomu og reisn þegar það missir vinnuna. Að breyta atvinnuleysistryggingum í kerfi aga og refsinga sem byggir á tortryggni, skerðingum og þvingunum er bæði rangt og skammsýnt. Slík stefna leiðir ekki til virkari vinnumarkaðar heldur aukins óöryggis og þrýstings á önnur velferðarkerfi samfélagsins. Varðstaða um almannahagsmuni ASÍ mun ekki sætta sig við þessa þróun. Við munum halda áfram að verja samningsbundin réttindi launafólks, krefjast raunverulegs samráðs og benda af festu á afleiðingar þeirra ákvarðana sem nú eru teknar í skjóli þagnar, samhljóms og pólitísks ábyrgðarleysis. Verkalýðshreyfingin getur ekki brugðist hlutverki sínu með því að þegja þegar ráðist er á grunnstoðir vinnumarkaðarins. Hennar pólitík er aðeins ein: að standa vörð um almannahagsmuni. Valdboð í stað samtals er ekki leiðin fram á við – þau eru atlaga að lýðræðinu, að vinnumarkaðnum og að grundvallarréttindum launafólks. Slík stefna er ekki til farsældar fallin. Hún getur af sér sundrungu og rof á samfélagssáttmálanum. Höfundur er forseti Alþýðusambands Íslands. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Finnbjörn A. Hermannsson ASÍ Kjaramál Mest lesið Við munum ekki hafa neitt neitunarvald Hjörtur J. Guðmundsson Skoðun NEI heldur öllu opnu. JÁ er vegferð að lokun Haraldur Ólafsson Skoðun Opið bréf til óákveðinna kjósenda Gylfi Zoega Skoðun Þyrnirinn sem náði í gegn Sigurður Árni Reynisson Skoðun Hvað græði ég á að segja já? Björn B Björnsson Skoðun Halldór 29.08.26 Halldór Hugvekja á Höfuðdaginn Ívar Örn Hauksson Skoðun The EU Referendum Dorrit Moussaieff Skoðun Stærsta lygin Sverrir Björnsson Skoðun Hvaða dyr viljum við hafa opnar? Reynsla Spánar og Portúgals Anna Margrét Bjarnadóttir Skoðun Skoðun Skoðun Hugvekja á Höfuðdaginn Ívar Örn Hauksson skrifar Skoðun Við munum ekki hafa neitt neitunarvald Hjörtur J. Guðmundsson skrifar Skoðun NEI heldur öllu opnu. JÁ er vegferð að lokun Haraldur Ólafsson skrifar Skoðun Hvað græði ég á að segja já? Björn B Björnsson skrifar Skoðun Opið bréf til óákveðinna kjósenda Gylfi Zoega skrifar Skoðun Þyrnirinn sem náði í gegn Sigurður Árni Reynisson skrifar Skoðun Stærsta lygin Sverrir Björnsson skrifar Skoðun Hver á þennan bústað, já eða nei? Sigþrúður Ármann skrifar Skoðun Stjórnum okkur sjálf og höfum áhrif í Evrópu Viktor Orri Valgarðsson skrifar Skoðun Hvers virði er velvild Trump? Paal Frisvold skrifar Skoðun Lýðræðisveislan 2026 Birgir Björn Sigurjónsson skrifar Skoðun Ungum Íslendingum er betur borgið utan ESB Jón Gunnar Jónsson skrifar Skoðun Hvaða dyr viljum við hafa opnar? Reynsla Spánar og Portúgals Anna Margrét Bjarnadóttir skrifar Skoðun Veistu hvaða sírenur syngja til þín? Vilbert Gústafsson skrifar Skoðun Það er sitthvað bogið við banana Eggert Gunnarsson skrifar Skoðun Já fyrir íslenskuna! Logi Einarsson skrifar Skoðun Segðu ekki nei, segðu kannski, kannski, kannski Hólmar Örn Finnsson skrifar Skoðun Hverjum treystir þú? María Rut Kristinsdóttir skrifar Skoðun Spænskir strandveiðisjómenn til Íslands Bergþór Ólason skrifar Skoðun Ryksugan hans Halldórs Svanhvít Aðalsteinsdóttir skrifar Skoðun Evrópusambandið byggir ekki á því að aðildarríkin séu sammála. Þvert á móti Martha Árnadóttir skrifar Skoðun Barist fyrir veröld sem var Elías Þórsson skrifar Skoðun Við höfum tekið margar góðar ákvarðanir Hjörtur J. Guðmundsson skrifar Skoðun Kjósum með opnum huga Kristín A. Árnadóttir skrifar Skoðun Um Kanada og Ísland Eliza Reid skrifar Skoðun Frístundamiðstöðvar lagðar niður, á hverjum bitnar það? Sigrún Ósk Arnardóttir skrifar Skoðun Þegar síminn víkur fær leikurinn meira pláss Vala Steinsdóttir,Kristín Ólöf Grétarsdóttir skrifar Skoðun The EU Referendum Dorrit Moussaieff skrifar Skoðun Lokum ekki augunum fyrir tækifærum – segjum já og sjáum samninginn Árni Rúnar Þorvaldsson skrifar Skoðun Fullveldi er ekki stofustáss María Kristín Gylfadóttir skrifar Sjá meira
Skoðun Hvaða dyr viljum við hafa opnar? Reynsla Spánar og Portúgals Anna Margrét Bjarnadóttir skrifar
Skoðun Evrópusambandið byggir ekki á því að aðildarríkin séu sammála. Þvert á móti Martha Árnadóttir skrifar
Skoðun Þegar síminn víkur fær leikurinn meira pláss Vala Steinsdóttir,Kristín Ólöf Grétarsdóttir skrifar
Skoðun Lokum ekki augunum fyrir tækifærum – segjum já og sjáum samninginn Árni Rúnar Þorvaldsson skrifar