Breytingar á framkvæmdastjórn HS Orku Silja Rún Sigurbjörnsdóttir skrifar 27. janúar 2026 14:53 Aðsend Breytingar hafa verið gerðar á framkvæmdastjórn HS Orku en þar hafa tvö ný svið verið stofnuð. Breytingarnar tóku gildi um nýliðin áramót.
Finnur Sveinsson hefur verið ráðinn framkvæmdastjóri hins nýja sviðs sjálfbærni og aðfangastýringar. Hann hefur síðastliðin fjögur ár stýrt sjálfbærnideild fyrirtækisins auk þess að annast viðskiptastjórn nýframkvæmda. Finnur er viðskiptafræðingur frá Háskóla Íslands og með meistaragráðu í umhverfisfræði frá Gautaborgarháskóla. Hann hóf störf hjá HS Orku í árslok 2020 sem viðskiptastjóri og deildarstjóri sjálfbærni. Þar áður bjó hann í tólf ár í Svíþjóð og starfaði sem ráðgjafi á sviði sjálfbærni og samfélagsábyrgðar. Lilja Magnúsdóttir hefur verið ráðin framkvæmdastjóri auðlinda sem er einnig nýstofnað svið. Hún er með doktorsgráðu í orkuverkfræði frá Stanford-háskólanum í Bandaríkjunum og meistaragráðu í vélaverkfræði frá Háskóla Íslands. Hún hefur einnig lokið námi í verkefnastjórnun og leiðtogaþjálfun hjá Endurmenntun Háskóla Íslands. Hún hóf störf hjá HS Orku árið 2020 og leiddi deild auðlindastýringar árin 2023 til 2025. Áður starfaði Lilja sem yfirverkfræðingur í hönnun og þróun hjá sólarrafhlöðudeild Tesla í Kaliforníu þar sem hönnun hennar leiddi til einkaleyfis. Einnig verða breytingar á framkvæmdastjórn á sviði þróunar og framkvæmda en Sunna Björg Helgadóttir, sem hefur gegnt stöðunni hingað til, hefur verið ráðin forstjóri Rio Tinto á Íslandi. Yngvi Guðmundsson tekur verið sem framkvæmdastjóri þróunar og framkvæmda. Hann hefur verið yfirverkfræðingur HS Orku frá árinu 2017. Yngvi er með meistaragráðu í vélaverkfræði frá Stellenbosch-háskólanum í Suður-Afríku og BS-gráðu í vélaverkfræði frá Háskóla Íslands. Hann tekur við stöðunni 1. mars 2026. Áður en hann gekk til liðs við HS Orku var hann verkefnastjóri jarðhitaverkefna hjá Verkís, 2012 til 2017, og verkefnastjóri ÍAV við byggingu Hörpu, 2007-2010.
Vistaskipti Orkumál Mest lesið Hafna ásökunum um hönnunarstuld Viðskipti innlent Birgitta Líf ráðin framkvæmdastjóri Viðskipti innlent Eldrauð Kauphöll Viðskipti innlent Iðnaðurinn forherðist í andstöðu gegn ESB Viðskipti innlent Opna Lindex þar sem Útilíf var Viðskipti innlent Verða af hundruðum þúsunda á ári þegar akstursdagbókin gleymist Samstarf Taka skemmtiferðaskip í Vör Viðskipti innlent Netflix kaupir gervigreindarfyrirtæki Affleck Viðskipti erlent Losun Landsvirkjunar jókst vegna virkjanaframkvæmda Viðskipti innlent Hagnaður tveimur milljörðum meiri en árið áður Viðskipti innlent Fleiri fréttir Iðnaðurinn forherðist í andstöðu gegn ESB Opna Lindex þar sem Útilíf var Hafna ásökunum um hönnunarstuld Losun Landsvirkjunar jókst vegna virkjanaframkvæmda Birgitta Líf ráðin framkvæmdastjóri Eldrauð Kauphöll Taka skemmtiferðaskip í Vör Hagnaður tveimur milljörðum meiri en árið áður Pipar/TBWA með flesta Lúðra Skipti ekki máli hvaðan olían er Pálmi til liðs við Sagafilm Máttu ráðast í húsleit hjá Skel og Lyfjum og heilsu Þorsteinn nýr formaður stjórnar Samtaka iðnaðarins Bein útsending: Iðnþing 2026 Birgitta Líf gefur ekkert upp um næstu skref Hildur fer frá Hörpu til KPMG Ríkarður ráðinn aðstoðarforstjóri Hrafn frá Össuri til Gosfélagsins Útflutningstekjur tækni- og hugverkaiðnaðar hærri en í sjávarútvegi í fyrsta sinn Stríðið geti ýtt undir stöðuna í hagkerfinu Bein útsending: Orkueyjan og alþjóðleg samkeppni Hagkerfið allt í hættu 69 sagt upp í tveimur hópuppsögnum Átökin geri baráttuna við verðbólguna enn erfiðari Mun leiða Fab Lab Reykjavík Jón Örn genginn í eigendahópinn Óvíst að fullyrðing um kjaragliðnun standist skoðun Halla ráðin markaðsstjóri BM Vallár Andri Þór hættir sem forstjóri Ölgerðarinnar Gjaldþrot Play nemur 21 milljarði króna Sjá meira