Neytendur

Ís­lenska ánægjuvogin: Við­skipta­vinir Indó og mið­aldra konur á­nægðust

Árni Sæberg skrifar
Tryggvi Björn Davíðsson, framkvæmdastjóri Indó, sem bar sigur úr býtum í ánægjuvog ársins.
Tryggvi Björn Davíðsson, framkvæmdastjóri Indó, sem bar sigur úr býtum í ánægjuvog ársins. Vísir/Vilhelm

Niðurstöður Íslensku ánægjuvogarinnar sýna fram á að konur á aldrinum 55 til 64 ára á landsbyggðinni er ánægðasti hópur neytenda á Íslandi en karlmenn 35 til 44 ára á landsbyggðinni sá óánægðasti. Indó hreppti fyrsta sæti ánægjuvogarinnar annað árið í röð.

Niðurstöður Íslensku ánægjuvogarinnar fyrir árið 2025 voru kynntar við hátíðlega athöfn í dag en þetta er tuttugasta og sjöunda árið sem ánægja viðskiptavina íslenskra fyrirtækja er mæld með þessum hætti. Íslenska ánægjuvogin verðlaunar þau fyrirtæki sem skara fram úr í ánægju viðskiptavina á sínum markaði. 

Upptöku af athöfninni má sjá í spilaranum hér að neðan:

Áhersla á þjónustu skilar sér í ánægju viðskiptavina

Í fréttatilkynningu frá Stjórnvísi, sem á Íslensku ánægjuvogina, segir að niðurstöður sýni að þau fyrirtæki sem mælast með hæstu ánægju viðskiptavina eiga það sameiginlegt að vera nýskapandi, leggja áherslu á þjónustu og sterka stafræna upplifun, oft á mörkuðum sem hafi tekið miklum breytingum á undanförnum árum. 

„Íslenska ánægjuvogin hefur þann tilgang að hvetja íslensk fyrirtæki til að hlúa að ánægju viðskiptavina og veita þeim samræmdan og hlutlausan mælikvarða á frammistöðu sína á milli ára og í samanburði við helstu samkeppnisaðila. Það er mikill heiður fyrir fyrirtæki að vera hæst á sínum markaði í Íslensku ánægjuvoginni og mörg setja sér markmið því tengt,“ er haft eftir Gunnhildi Arnardóttur, framkvæmdastjóra Íslensku ánægjuvogarinnar og Stjórnvísi. 

Þá segir að í þetta skiptið hafi skyndibitamarkaður verið mældur í fyrsta sinn. Til þess að mælast í Íslensku ánægjuvoginni þurfi fyrirtæki að ná ákveðinni stærð og markaðshlutdeild.

Ánægja með Indó og Dropp helst mikil

Indó sé sigurvegari Íslensku ánægjuvogarinnar árið 2025 með 84,7 stig, flest allra fyrirtækja. Þetta sé í annað skiptið sem niðurstöður hafa verið birtar fyrir Indó og í bæði skiptin hafi fyrirtækið sigrað. Í öðru sæti sé Dropp með 83,9 stig, aðeins tæpu einu stigi á eftir. 

Dropp hafi verið sigurvegari Ánægjuvogarinnar árið 2023. Costco eldsneyti hafi verið 3. hæsta fyrirtækið með 81,3 stig.

Töluverð breidd hafi mælst á ánægju þeirra fyrirtækja sem voru mæld og einkunnir hafi verið frá 60,8 til 84,7 af 100 mögulegum.

„Það er ljóst að ánægja viðskiptavina er ekki föst stærð og það er ekkert sem heitir að hafa áskrift að Ánægjuvoginni. Fyrirtækin þurfa stöðugt að vinna að ánægju viðskiptavina. Á nokkrum mörkuðum má sjá umtalsverðar breytingar á niðurstöðum fyrirtækja milli ára, þar sem sum hafa bætt stöðu sína verulega, á meðan önnur hafa lækkað frá fyrri mælingu.” er haft eftir Gunnhildi.

Ólík upplifun þjóðfélagshópa

Loks segir að að gögnin sýni fram á ólíka upplifun út frá kyni, aldri og búsetu. Konur á aldrinum 55 til 64 ára á landsbyggðinni sé ánægðasti hópur neytenda á Íslandi en karlmenn 35 til 44 ára á landsbyggðinni sá óánægðasti.

Um Íslensku ánægjuvogina:

Íslenska ánægjuvogin er í eigu Stjórnvísi og Prósent sá um framkvæmd á Íslensku ánægjuvoginni 10. árið í röð. Gögnum var safnað frá apríl til desember árið 2025. Könnunin var send í tölvupósti á könnunarhóp Prósents á um 2.000 manna úrtak á hverjum markaði. 175 til 1.000 svör bárust fyrir hvert fyrirtæki. Niðurstöður voru vigtaðar með tilliti til kyns, aldurs og búsetu þýðisins.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×