„Biðröðin er löng“ Rafn Ágúst Ragnarsson skrifar 17. janúar 2026 11:55 Sigurður Hannesson er framkvæmdastjóri Samtaka iðnaðarins. Vísir/Samsett Ekkert lát virðist vera á tollahótunum frá Bandaríkjaforseta og síðast í gær lét hann það í veðri vaka að beita þau ríki sem leggja ekki lag sitt við tilraunir hans til að leggja undir sig Grænland tollum. Framkvæmdastjóri Samtaka iðnaðarins segist þó bjartsýnn á að hagsmunagæsla samtakanna og stjórnvalda nái árangri.
Undanfarin misseri hefur íslenskur þungaiðnaður mætt talsverðum ógnum vegna óreiðu í alþjóðamálum enda hafa Íslendingar einnig þurft að kljást við tollaógnir frá Evrópusambandinu og þann möguleika að landið yrði undir í tollastríði þvert yfir Atlantshafið. Langtímaáætlanir hálfómögulegar Sigurður Hannesson framkvæmdastjóri Samtaka iðnaðarins segir viðvarandi óvissuástand í heimsmálunum gera það að verkum að fyrirtæki á Íslandi hafi takmarkað svigrúm til langtímaáætlana. „Í þessu óvissuástandi sem ríkir í heiminum skiptir enn meira máli, það er lykilatriði, að stjórnvöld á Íslandi skapi stöðugleika í rekstrarumhverfi fyrirtækja,“ segir hann. Hundur étur hund Samtök iðnaðarins sé vel vakandi og vinni vel með stjórnvöldum að hagsmunagæslu. „Varðandi bandarikin er Ísland eins og flestöll ríki heims að vinna að viðskiptasamningum í þessu breytta landslagi og við höfum mikla trú á því að þar leynist tækifæri til að efla tengsl ríkjanna og auka viðskipti með gagnkvæmum ávinningi að leiðarljósi,“ segir Sigurður. Íslenskur iðnaður sé auðvitað ekki í kjörinni samningastöðu í heimi þar sem hundur étur hund. „Það eru auðvitað mörg riki sem eru í þessari biðröð, og biðröðin er löng og of snemmt að segja til um árangurinn. En við erum bjartsýn á að þarna leynist tækifæri sem hægt sé að sækja og nýta,“ segir Sigurður Hannesson, framkvæmdastjóri Samtaka iðnaðarins.
Stóriðja Skattar, tollar og gjöld Bandaríkin Hótanir Bandaríkjanna vegna Grænlands Mest lesið Þrotabú Play krefur Einar um skaðabætur Viðskipti innlent Högnuðust um milljarð Viðskipti innlent Á áttunda tug starfsmanna Netapp sagt upp Viðskipti innlent Verðbólga ekki meiri í tvö ár Viðskipti innlent Ekki sjái fyrir endann á uppsögnum Viðskipti innlent OpenAI hættir við að gefa út nýtt „svikult“ líkan Viðskipti erlent Vaxtahækkunarferli lokið en langt í lækkun Viðskipti innlent Olíuflæðið nálgast fyrra horf en verð lækkar ekki Viðskipti erlent Telja gagnaver skila litlum ávinningi í Noregi Viðskipti innlent Hannes Þór, Hannes Þór og Allan greiða sér 100 milljónir í arð Viðskipti innlent Fleiri fréttir Vaxtahækkunarferli lokið en langt í lækkun Ekki sjái fyrir endann á uppsögnum Þrotabú Play krefur Einar um skaðabætur Verðbólga í tveggja ára hámarki eftir að skattalækkun rann út Telja gagnaver skila litlum ávinningi í Noregi Á áttunda tug starfsmanna Netapp sagt upp Verðbólga ekki meiri í tvö ár Högnuðust um milljarð Rúmlega tuttugu sagt upp hjá ÍAV Hannes Þór, Hannes Þór og Allan greiða sér 100 milljónir í arð Uppsagnir í Arion banka Loka Krambúðinni á Húsavík Atvinnulausum Íslendingum fjölgaði um 700 á einu ári Verulegur samdráttur hjá Isavia 50skills tryggir 729 milljónir í fjármögnun Mikill munur á afkomu almannatengla Vill að ríkissáttasemjari fái auknar valdheimildir í kjaradeilu Selja fyrir 400 milljónir í Síldarvinnslunni Setja upp fjörutíu smáhýsi í Þjórsárdal Sextán starfsmönnum sagt upp á Siglufirði Vilja að 23 lóðir verði seldar undan Vatnsendaerfingja Launahækkanir gætu orðið upptaktur að harðri lendingu Tíu milljarðarnir sem ráðherra segir hafa farið til bílaleiga Sonja ráðin viðskiptastjóri hjá OK Atvinnuleysi jókst á ný í ágúst Bein útsending: Kynna yfirlýsingu fjármálastöðugleikanefndar Skýr merki um kólnandi vinnumarkað og hægari umsvif Breytingar í stjórn SVÞ og Örn ráðinn verkefna- og tengslastjóri Bein útsending: Manneskjan í miðju umbreytinga „Er tilgangurinn sérhagsmunir Viðreisnar?“ Sjá meira