Mun hærri dánartíðni og meiri örorka hjá fyrrum vöggustofubörnum Berghildur Erla Bernharðsdóttir skrifar 16. janúar 2026 17:23 Vöggustofunefnd skilaði í dag skýrslu um starfsemi Vöggustofu Thorvaldsensfélagsins á árunum 1974 -1979 . Vísir Dánartíðni er hærri og örorka meiri meðal þeirra sem dvöldu á vöggustofu Thorvaldsensfélagsins á áttunda áratug síðustu aldar en jafnaldra þeirra. Samkvæmt vöggustofunefnd er ekki hægt að slá því föstu að börnin hafi sætt illri meðferð þrátt fyrir að ýmislegt hafi verið ábótavant. Borgarstjóri ætlar að bregðast við tillögum nefndarinnar um úrbætur.
Vöggustofunefnd skilaði í dag af sér rannsóknarskýrslu um starfsemi Vöggustofu Thorvaldsensfélagsins í Reykjavík á árunum 1974 til 1979. Verkefni nefndarinnar var að kanna hvort börnin þar hefðu sætt illri meðferð í skilningi laganna, hvort eftirlit hafi verið nægjanlegt, hvort ákvarðanir um vistanir hafi verið í samræmi við lög og hver afdrif barnanna voru sem þar voru vistuð. Há dánartíðni og meiri örorka Alls voru 236 börn vistuð á Vöggustofunni á tímabilinu. Fram kemur í skýrslunni að dánartíðni einstaklinga sem dvöldu meira en mánuð á vöggustofum er næstum þrefalt hærri en jafnaldra þeirra en hlutföllin eru 13,4 prósent á móti 4,8 prósentum. Þá er örorka meðal þeirra sem dvöldu á heimilinu tvöfalt hærri en hlutfallið er 40 prósent á móti 20 prósentum hjá jafnöldrum þeirra. Ymsu ábótavant en ekki ill meðferð Nefndin kemst hins vegar að þeirri niðurstöðu að þótt ýmsum þáttum í starfseminni hafi verið ábótavant sé ekki hægt að slá því föstu að á tímabilinu hafi börn sætt illri meðferð í skilningi laganna. „Við staðreynum ekki að á vöggustofunni á tímabilinu hafi börn ekki sætt illri meðferð eða ofbeldi. Það eru þó ýmis atriði sem við teljum að hafi verið ábótavant,“ segir Trausti Fannar Valsson formaður Vöggustofunefndarinnar. Meðal atriða sem hafi verið ábótavant sé að aðeins tvær manneskjur hafi séð um ríflega 20 börn yfir nóttina sem voru flest á aldrinum 0-3 ára. Hann segir að rætt hafi verið við átta þáverandi starfsmenn og níu sem voru vistuð á sínum tíma á stofnunni ásamt því að skoða gögn. „Eitt af því sem kom okkur á vissan hátt á óvart er hvað það var snúið á ýmsan hátt að afla gagna,“ segir Trausti. Ekkert eftirlit Niðurstöður nefndarinnar eru einnig að málsmeðferð barnaverndar við töku ákvarðana um vistun barna á stofnuninni hafi oft og tíðum ekki verið í samræmi við lög. Þá hafi opinbert eftirlit með meðferð barna á stofnuninni hafi verið afar takmarkað og ekki í samræmi við lagakröfur um eftirlit með starfseminni á tímabilinu. „Athugasemd okkar er m.a. sú að málsmeðferð barnaverndarnefndar við vistun barna hafi ekki alltaf verið fullnægjandi,“ segir Trausti. Nefndin leggur til að borgin greiði fyrir sálfræðikostnað og dragi lærdóm á sviði barnaverndarmála. Loks er lagt til að vinnu vegna sanngirnisbóta verði flýtt á Alþingi. Borgarstjóri biður hlutaðeigandi afsökunar Heiða Björg Hilmisdóttir borgarstjóri ætlar að bregðast við ábendingum nefndarinnar um aðgerðir í framhaldinu. „Við ætlum sannarlega að bjóða þeim sem dvöldu á stofnuninni á tímabilinu upp á sálfræðitíma og viðtöl líkt og gert var þegar fyrri skýrslan kom út,“ segir Heiða. Nefndin kemst að þeirri niðurstöðu að þar sem ekki sé sannað að fólk sem dvaldi sem börn á Vöggustofunni á tímabilinu hafi sætt illri meðferð sé óvíst hvort vistin hafi fullnægt skilyrðum um greiðslu sanngirnisbóta á grundvelli eldri laga. Eins og er gilda engin lög um sanngirnisbætur. Heiða segir að þegar fyrri skýrsla um vöggustofur kom út hafi verið lögð áhersla á það við Alþingi að klára löggjöf um sanngirnisbætur. Það þurfi að vera skýrt hvernig á að haga slíkum bótum og við hvaða aðstæður. Þegar fyrri vöggustofuskýrsla kom út fyrir árin 1949-1973 kom fram að börnin þar höfðu sætt illri meðferð á ýmsum tímabilum, bað borgin þau sem voru vistuð þar sem börn afsökunar. Heiða segir það líka eiga við nú. „Mér finnst full ástæða til biðja alla þá sem eiga um sárt að binda vegna þessa afsökunar,“ segir Heiða.
Vöggustofur í Reykjavík Vistheimili Reykjavík Barnavernd Mest lesið Opnar sig um gróf ummæli um hjónabandið Innlent Vísað út úr flugvél: „Þetta er bara ömurlegt“ Innlent Finnur ekki fyrir sársauka Innlent Ólga í Samfylkingu: „Þessi ólög eru ekki í okkar nafni sett“ Innlent Rýmdu skrifstofur Hagkaupa vegna hótunar Innlent Sorglegt hve fáir Kópavogsbúar hafi skrifað undir listann Innlent Boðar harðar árásir og hernám Kharg-eyju Erlent Sjálftakan „til háborinnar skammar“ Innlent Árásarmaður Tinnu fær ekki áheyrn: Taldi brotið á mannréttindum minnihlutahópa Innlent Hótaði að beita skotvopni Innlent Fleiri fréttir Fara fram á að fjármálaáætlunin sé endurreiknuð Eldur í Árbænum Vill ekki ganga svo langt að kalla þetta klofningu flokksins Sjálftakan „til háborinnar skammar“ Eldfim staða, sorglegt áhugaleysi og ráðgáta Vísað út úr flugvél: „Þetta er bara ömurlegt“ Hafnar kreddum um verðbólguna Stefnir í uppbótartíma Starfsáætlun Alþingis kippt úr sambandi Tóku þátt í að uppræta rafmyntaþvætti sem teygði anga til Íslands Hótaði að beita skotvopni Finnur ekki fyrir sársauka Árásarmaður Tinnu fær ekki áheyrn: Taldi brotið á mannréttindum minnihlutahópa MDE vísar frá tveimur málum gegn Íslandi Flekahreyfingar innan Samfylkingar Rýmdu skrifstofur Hagkaupa vegna hótunar Ráðstöfun Baldurs til Eyja brjóti gegn samningi Samkeppniseftirlitið dragi upp skakka mynd af matvælaverðinu Brúin yfir Djúpafjörð boðin út Hermann Nökkvi verður aðstoðarmaður Vilhjálms Árnasonar Sorglegt hve fáir Kópavogsbúar hafi skrifað undir listann Leggja til að mestu gljúfurkerfi landsgrunnsins verði vernduð „Ljóst að deilunni er ekki lokið“ Bein útsending: Funda um verðbólgu, verðlag og laun Ólga í Samfylkingu: „Þessi ólög eru ekki í okkar nafni sett“ Færa umferð af norður- á suðurakbraut á Breiðholtsbraut Mættu með stungusár á lögreglustöðina Veglegt veiðihús rís fyrir silungasvæðið Þjónusta þjarka og falskra aðganga gengur kaupum og sölu Opnar sig um gróf ummæli um hjónabandið Sjá meira