„Markmiðið var aldrei að kaupa eign til að selja með hagnaði“ Árni Sæberg skrifar 15. janúar 2026 13:23 Pétur Marteinsson vill verða oddviti Samfylkingarinnar. Vísir/Vilhelm Pétur Marteinsson, sem vill leiða lista Samfylkingar í Reykjavík í komandi borgarstjórnarkosningum, segir að markmið hans hafi aldrei verið að kaupa lóðir til þess að selja síðar með hagnaði. Fram hefur komið að hann hafi fengið 69 milljónir króna í sinn hlut eftir sölu á lóð í Skerjafirði fyrir tveimur árum. Hann segir undirbúning byggingu ódýrra íbúða á lóðinni hafa verið aðalstarf hans í fimm ár. Fyrir það hafi hann verið með reiknuð laun upp á 25 milljónir króna, sem gerir 417 þúsund krónur á mánuði.
Mikið hefur verið fjallað um lóð í Skerjafirði sem Reykjavíkurborg úthlutaði HOOS 1, félagi í jafnri eigu Péturs og tveggja viðskiptafélaga hans, eftir að félagið varð hlutskarpast í hönnunarsamkeppni. Fyrir úthlutunina greiddi félagið 47,5 milljónir króna. Samkvæmt samningi við borgina er um að ræða fimm þúsund fermetra lóð með byggingarrétt fyrir allt að 140 íbúðir. Fjárfestingarfélagið Miðbæjareignir/Kjölur keypti hlut í HOOS 1 upp á 42 milljónir króna árið 2021 og svo aftur árið 2023 þegar það keypti restina af hlutafénu fyrir 189 milljónir. Pétur og félagar fengu því samtals 207 milljónir króna fyrir félagið HOOS 1. Pétur fékk þannig 69 milljónir króna í sinn hlut, líkt og Vísir greindi frá í morgun. Lentu illa í kerfinu Pétur hefur nú birt færslu á Facebook um málið og segir þá félaga hafa farið á fullt í vinnu árið 2018, ráðið til sín arkitekta og verkfræðinga og einsettum sér að byggja yfir 70 íbúðir fyrir ungt fólk og fyrstu kaupendur. „Við vildum hefjast handa strax en lentum illa í kerfinu. Þá tóku við tafir, kærumál og pólitík. Ég hélt lengi í vonina og hafði þetta verkefni að aðalstarfi í hátt í 5 ár – en á árinu 2023 steig ég út og seldi minn hlut til nýrra hluthafa sem vildu gera uppbygginguna að veruleika. Ég hef því enga hagsmuni lengur af íbúðauppbyggingu á þessari lóð. Eftir á að hyggja er ég stoltur af verkefninu en auðvitað líka hundsvekktur að þessar íbúðir hafi ekki fengið að rísa og hýsa unga fólkið og fjölskyldurnar sem hefðu getað flutt þarna inn og búið sér heimili. Þessi reynsla er þó dýrmæt. Ég tel mig vita um sitthvað sem má betur fara hjá borginni og í kerfinu þegar kemur að húsnæðismálum.“ Ekki hreinn hagnaður af því að hluti fór í launin hans Þá segir hann að þær 69 milljónir króna sem félag hans fékk eftir söluna á lóðinni hafi ekki verið hreinn hagnaður, enda hafi sú upphæð dekkað laun fyrir vinnu hans og annan kostnað. „Á árunum 2018 - 2023 var ég með reiknuð laun fyrir þessa vinnu upp á 25 milljónir króna og greiddi af þeirri upphæð launaskatt, tryggingagjald og önnur launatengd gjöld. Þennan kostnað þurfti ég að greiða fyrir fram því að tekjurnar voru engar fyrr en ég seldi minn hlut í verkefninu árið 2023. Fyrir utan launakostnað fellur auðvitað til ýmiss annar kostnaður af svona starfsemi. Því er arður minn af verkefninu öllu lægri og fjármagnstekjuskattur er greiddur af þeirri upphæð. Markmiðið var aldrei að kaupa eign til að selja með hagnaði heldur að byggja ódýrar íbúðir. Og það var mikið kappsmál hjá mér – enda var það mitt aðalstarf í allan þennan tíma.“ Miðað við þetta reiknaði Pétur sér endurgjald, sem er í daglegu tali kallað laun, upp á 417 þúsund krónur á mánuði á þessu fimm ára tímabili. Samkvæmt reglum um reiknað endurgjald skuli maður sem starfar við eigin atvinnurekstur á að reikna sér endurgjald fyrir þá vinnu. Með þessi laun fer á sama hátt og almennar launagreiðslur til launþega, það er að segja að reikna þarf af þeim staðgreiðslu opinberra gjalda, greiða tryggingagjald og iðgjald í lífeyrissjóð. Reiknað endurgjald á ekki að vera lægra en launatekjur manns hefðu orðið ef hann hefði unnið fyrir ótengdan eða óskyldan aðila.
Samfylkingin Sveitarstjórnarkosningar 2026 Sveitarstjórnarmál Reykjavík Húsnæðismál Byggingariðnaður Mest lesið Akranes og Akureyri dæmi þar sem hættan sé raunveruleg Innlent Rispur á bílum út um allan bæ og tjón upp á hundruð þúsunda Innlent „Þetta var algjörlega magnað“ Innlent Hafi verið beggja vegna borðsins Innlent „Við erum ekkert að biðja um einhverja sérmeðferð“ Innlent Tugir slösuðust vegna skýstróka á Sikiley Erlent „Sólveig Anna virðist vera með mig algjörlega á heilanum“ Innlent Telur núna sannað að fundin sé hin rétta Brattahlíð Eiríks rauða Innlent Kom af fjöllum eftir tilkynningu Trump um orkuvopnahlé Erlent Nýtt flóð í Nepal hreif með sér brýr og hús Erlent Fleiri fréttir Myndir frá Austurvelli: „Fokkið ykkur úr firðinum“ Nýr meirihluti í Suðurnesjabæ „Við erum ekkert að biðja um einhverja sérmeðferð“ Brotist inn í tvö fyrirtæki Akranes og Akureyri dæmi þar sem hættan sé raunveruleg Of snemmt að segja til um hvernig eldurinn kom upp Hafi verið beggja vegna borðsins „Þetta var algjörlega magnað“ Rispur á bílum út um allan bæ og tjón upp á hundruð þúsunda Bein útsending: Niðurstöður Samtalsins kynntar Uppbyggilegra samtal en í athugasemdum „Sólveig Anna virðist vera með mig algjörlega á heilanum“ Mótmæla sjókvíaeldi í tveimur landshlutum „Ég hef áhyggjur af Alþýðusambandinu“ Spenna fyrir þingi ASÍ og framlög til sjóvarna ekki næg Halla Gunnars svarar fyrir sig á Sprengisandi Braust inn með hníf í annarri og hamar hinni Telur núna sannað að fundin sé hin rétta Brattahlíð Eiríks rauða Kalla eftir aðgerðum ekki yfirlýsingum Vill auka aðgengi að verkjalyfjum „Ég sé ekki að íslenskt samfélag vilji kasta því fyrir róða“ Vilja bílastæðin upp úr skotgröfunum Á annað hundrað sektaðir Þrír réðust á einn Halla ætli að sölsa undir sig ASÍ Guðmundur Ari nýr varaformaður Samfylkingar „Vona nú bara að hann fari að jafna sig á tapinu“ Bein útsending: Samtal um framtíðina Opið hús í Höfða í dag Kristrún flytur ræðu á flokksstjórnarfundi Sjá meira