Leita að nafni á farþegamiðstöð fyrir skemmtiferðaskip Lovísa Arnardóttir skrifar 14. janúar 2026 10:56 Farþegamiðstöðin er við Viðeyjarsund. Faxaflóahafnir Faxaflóahafnir leita til almennings um nafn á nýja fjölnota farþegamiðstöð í Reykjavík. Farþegamiðstöðin rís nú við Viðeyjarsund í Reykjavík og tekur á móti fyrstu farþegum skemmtiferðaskipa í vor. Farþegamiðstöðin er sú fyrsta sem opnar í Reykjavík í 60 ár. Vinningshafi hlýtur siglingu til Bretlandseyja.
Í tilkynningu kemur fram að utan annatíma skemmtiferðaskipa, frá október og út mars ár hvert, fái farþegamiðstöðin annað hlutverk sem vettvangur fyrir fjölbreytta viðburði og samkomur. Hægt að skila tillögum til 1. febrúar Í tilkynningu segir að Faxaflóahafnir leiti til almennings um nafn á húsið. Hægt sé að skila inn tillögum í gegnum vefsíðuna nafnasamkeppni.is fram til 1. febrúar. „Við viljum að nafnið sé þjált, falli vel að íslenskri málhefð og sé ekki tungubrjótur fyrir þau sem tala önnur mál,“ segir í tilkynningunni. Svona á miðstöðin að líta út. Faxaflóahafnir Þar kemur einnig fram að farþegamiðstöðin marki ákveðin tímamót í móttöku skemmtiferðaskipa á Íslandi og muni leysa af hólmi tímabunda aðstöðu sem fyrir er á hafnarsvæðum Faxaflóahafna. Þá sé einnig um að ræða fyrstu farþegamiðstöðina sem opnar í Reykjavík frá því að Bifreiðastöð Íslands, BSÍ, opnaði árið 1965. Samkvæmt tilkynningu hlýtur vinningshafi að launum siglingu fyrir tvo í skemmtiferðaskipti frá nýju farþegamiðstöðinni við Viðeyjarsund til Bretlands, dagana 2. til 12. júlí 2026, og flug til Íslands eftir siglinguna. Ferðin inniheldur glæsilegt herbergi með svölum og margvísleg fríðindi. Lagt er af stað frá nýju farþegamiðstöðinni í Reykjavík og komið verður við á Ísafirði, Akureyri, Maloy í Noregi, Lerwich á Hjaltlandseyjum, Inverness og Edinborg í Skotlandi áður en lagst er að bryggju í Southampton. Vigdís Hafliðadóttir er formaður dómnefndar. Faxaflóahafnir Dómnefnd samkeppninnar skipa Gunnar Tryggvason hafnarstjóri, Líf Magneudóttir stjórnarformaður Faxaflóahafna og Vigdís Hafliðadóttir, listamaður, heimspekingur, sjónvarpskona og textahöfundur, sem jafnframt er formaður dómnefndar.
Hafnarmál Skemmtiferðaskip á Íslandi Menning Reykjavík Mest lesið Þúsundir hringja í Skattinn Viðskipti innlent „Það er bara ólöglegt“ Viðskipti innlent Íris ráðin til SI Viðskipti innlent Eigum við að vera kurteis í samskiptum við gervigreindina? Atvinnulíf Jón Ásgeir fær ekki meira frá ríkinu Viðskipti innlent „Heimsmarkaðsverð eitt og sér stýrir ekki verði úti í búð” Neytendur Fjöldi apóteka sameinast undir vörumerki Apótekarans Viðskipti innlent Sekta Sýn fyrir að sýna efni ekki við hæfi barna fyrir vatnaskil Viðskipti innlent Borgar sig að taka út séreignasparnaðinn og ávaxta sjálfur? Viðskipti innlent Fara fram á lögbann á Isavia Viðskipti innlent Fleiri fréttir Íris ráðin til SI Þúsundir hringja í Skattinn „Það er bara ólöglegt“ Fjöldi apóteka sameinast undir vörumerki Apótekarans Fara fram á lögbann á Isavia Engar forsendur fyrir því að hækkanir skili sér að fullu út í bensínverð Framtalsfrestur að renna út: „Það gengur alveg rosalega vel“ Sekta Sýn fyrir að sýna efni ekki við hæfi barna fyrir vatnaskil Bjartur og Vésteinn Örn til SFF Leggja til verðþak vegna olíufélaga sem þyki varla treystandi Snarpri en verðmætri loðnuvertíð að ljúka Jón Ásgeir fær ekki meira frá ríkinu Magnús hættir hjá Orkusölunni Eiga í viðræðum um sjónvarpsinnviðafélag Hulda tekur við nýrri deild hjá Eimskip „Dómstólar staðfesta að ostur er ostur“ Stefna á að banna gervigreindarklám í Evrópu Spá líka vaxtahækkun en enn meiri verðbólgu Verslun Kappahl í Smáralind og netverslun opnaðar á laugardag Síminn og Sýn semja um kaup á Vísi og útvarpsstöðvum Telja bensínlítrann tuttugu krónum of dýran „Vonandi verður ein vaxtahækkun nóg“ Opna menningarmiðstöð í Smáralind Spá 0,25 prósenta hækkun stýrivaxta Borgar sig að taka út séreignasparnaðinn og ávaxta sjálfur? Þúfan veltir þungu flatbökuhlassi Óskar Ingi fjármálastjóri Beru „Blasir við öllum“ að athugasemdir SA skili ekki árangri Húrra dregur saman seglin Innleiða gervigreindina í MS Sjá meira