Atvinnulíf

Skellir í vél á morgnana og nokkuð á­nægð með sjálfan sig í gjafavali

Rakel Sveinsdóttir skrifar
Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir, utanríkisráðherra og formaður Viðreisnar, finnst gott að eiga stund með sjálfri sér áður en dagurinn fer af stað, skellir þá oft í vél en fær sér líka kaffi og rennir yfir fréttamiðlana. Eiginmaðurinn á von á sérstaklega flottri jólagjöf þetta árið.
Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir, utanríkisráðherra og formaður Viðreisnar, finnst gott að eiga stund með sjálfri sér áður en dagurinn fer af stað, skellir þá oft í vél en fær sér líka kaffi og rennir yfir fréttamiðlana. Eiginmaðurinn á von á sérstaklega flottri jólagjöf þetta árið. Vísir/Vilhelm

Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir, utanríkisráðherra og formaður Viðreisnar, er ánægð með gjafavalið handa eiginmanninum í ár og gefur sjálfri sér 9,5 í einkunn. Þorgerður viðurkennir að fara allt of seint að sofa, en morgunstundina nýtir hún til að þvo þvott og setja í þvottavél.

Í kaffispjalli um helgar er rætt við fólk í ólíkum störfum. Við spyrjum alltaf um það hvenær fólk vaknar á morgnana, hvað er það fyrsta sem það gerir þá og hvenær fer fólk að sofa. Við spyrjum líka um skipulagið og helstu verkefnin í vinnunni.

Hvenær vaknar þú á morgnana?

„Ég vakna yfirleitt á milli sex og sjö. Á þriðjudögum og fimmtudögum er ég komin á fætur aðeins fyrr þar sem ég fer á morgunæfingu með vinkonum mínum þá daga. Það eru alveg heilagir morgnar fyrir mér. Enda um bæði líkamlega og andlega næringu að ræða.“

Hvað er það fyrsta sem þú gerir á morgnana?

„Ég byrja yfirleitt á því að renna yfir fréttamiðlana og fá mér kaffibolla. 

Mér finnst mjög gott að vera komin fyrst á fætur og eiga smá tíma með sjálfri mér áður en dagurinn fer af stað. Því þá er yfirleitt ekki mikil lognmolla. 

Svo nýti ég oft morgunstundina í til að þvo þvott og setja í þvottavél.“

Á skalanum 0-10: Hvaða einkunn gefur þú sjálfri þér fyrir gjafaval handa eiginmanninum? 

„Þetta árið: 9,5. Mér finnst gaman að gefa gjafir og vanda mig við að hitta í mark hjá fólkinu mínu. En það tekst nú ekki alltaf hjá gömlu.“

Þorgerði finnst gott að taka símtöl sem þarf að taka sem fyrst en dagarnir byrja á því að hitta fólkið sitt til að fara yfir tiltekin mál, stilla upp deginum og heyra síðan í stelpunum; Kristrúnu og Ingu. Vísir/Vilhelm

Í hvaða verkefni ertu að vinna helst í þessa dagana?

„Einmitt núna er ég einna helst að vinna í því að slaka á. Fólkið í kringum mig hefur verið að hvetja mig til þess í lengri tíma og ég ætla að leyfa mér að ná góðri hvíld yfir hátíðirnar. 

En ég elska vinnuna mína og held hreinlega að ég gæti ekki verið í skemmtilegri vinnu. Öll þau verkefni sem ég hef verið að vinna að síðasta árið – allt frá öryggis- og varnarmálum yfir í hagsmunagæslu fyrir okkur Íslendinga, þróunarsamvinnu og alþjóðapólitíkina almennt – eru svo áhugaverð og spennandi að takast á við. 

Utanríkisráðuneytið er stútfullt af hæfu og kraftmiklu fólki sem mér finnst æðislegt að fá að vinna með. Svo elska ég auðvitað pólitíkina og þingið – þar sem hefur verið nóg að gerast síðustu daga. Það er mjög vanmetinn vinnustaður! 

Svo finnst mér fátt skemmtilegra en að vera með fólkinu mínu í Viðreisn. Að vera formaður stjórnmálaflokks víkkar út sviðið með fjölbreyttum verkefnum.“

Hvernig skipuleggur þú þig í vinnu?

„Það er enginn dagur eins og hlutirnir geta breyst mjög hratt í því umhverfi sem ég vinn svo það getur stundum verið flókið að skipuleggja mikið. Ég reyni að ganga í verkin um leið og þau koma upp. Taka símtöl sem þarf að taka um leið og færi gefst. Þegar ég mæti til vinnu fer ég yfir þau gögn sem þarf að klára, hitti fólkið til að fara yfir tiltekin mál og stilli upp deginum. 

Svo heyri ég í stelpunum; Kristrúnu og Ingu. Og svo finnst mér gott að nýta þær stundir sem losna til að sökkva mér dýpra ofan í ákveðin mál. Þá kem ég betur undirbúin til leiks.“

Hvenær ferðu að sofa á kvöldin?

„Alltof seint. Og ég sef of lítið. Það er vandamál sem ég er meðvituð um og er verk í vinnslu. Ég ætla ekki að stæra mig af því að sofa lítið því það er ekki dyggð. Mig langar þvert á móti að hvetja fólk til að huga að svefninum sínum. Ég er að minnsta kosti að reyna það.“


Tengdar fréttir

Jólabarnið týndist: „Ég er að færast upp skalann aftur, segi sex“

Kristrún Frostadóttir, formaður Samfylkingarinnar, segist hafa týnt jólabarninu svolítið í sér um tíma. Það er þó að breytast aftur og í dag gefur hún sjálfri sér sex í einkunn sem jólabarn á skalnum 1-10. Með stækkandi fjölskyldu eru nýjar hefðir að bætast við um jólin.

Bjarni gefur sjálfum sér 8,5 í einkunn fyrir jólagjafakaup fyrir frúna

Bjarni Benediktsson, formaður Sjálfstæðisflokksins og fjármála- og efnahagsráðherra segir margar góðar hugmyndir geta vaknað þegar hann fer í bað snemma á morgnana. Og sendir þá tölvupósta og skilaboð út um allar trissur eða hlustar á hlaðvarpsþátt. Bjarni vaknar snemma, sofnar snemma og segist standa sig vel í að velja jólagjafir fyrir frúna.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×