Nefndarmaður hefði kosið að halda stýrivöxtunum óbreyttum Atli Ísleifsson skrifar 4. desember 2025 10:48 Fulltrúar peningastefnunefndar Seðlabankans. Ásgerður Ósk Pétursdóttir, Tómas Brynjólfsson, Herdís Steingrímsdóttir, Ásgeir Jónsson og Þórarinn G. Pétursson. Seðlabankinn Herdís Steingrímsdóttir, nefndarmaður í peningastefnunefnd Seðlabankans, studdi tillögu seðlabankastjóra um að lækka stýrivexti um 25 punkta í síðasta mánuði en hefði þó kosið að halda vöxtum óbreyttum.
Þetta kemur fram í fundargerð peningastefnunefndar vegna vaxtaákvörðunar 19. nóvember sem birt var á vef Seðlabankans í gær. Peningastefnunefnd Seðlabanka Íslands ákvað á fundinum að lækka stýrivexti bankans um 25 punkta og fóru þeir úr því að vera 7,5 prósent og í 7,25 prósent. Ákvörðunin kom nokkuð á óvart þar sem flestir greiningaraðilar höfðu spáð því að stýrivöxtum yrði haldið óbreyttum. Í fundargerðinni segir að Ásgeir Jónsson seðlabankastjóri hafi lagt til að vextir bankans yrðu lækkaðir um 0,25 prósentur. „Allir nefndarmenn studdu tillöguna en Herdís Steingrímsdóttir hefði þó fremur kosið að halda vöxtum óbreyttum. Ljóst væri að frekari skref til lækkunar vaxta væru háð því að skýrar vísbendingar kæmu fram um að verðbólga væri að hjaðna í 2½% markmið bankans. Mótun peningastefnunnar næstu misseri myndi sem fyrr ráðast af þróun efnahagsumsvifa, verðbólgu og verðbólguvæntinga,“ sagði í fundargerðinni. Ekki í fyrsta sinn Þetta er ekki í fyrsta sinn sem Herdís segist á fundi peningastefnunefndar vilja halda vöxtum óbreyttum þegar ákveðið var að lækka vexti. Á vaxtaákvörðunardegi 21. maí síðastliðinn lagði seðlabankastjóri sömuleiðis fram tillögu um 25 punkta lækkun stýrivaxta – úr 7,75 prósentum í 7,5 prósent. Allir nefndarmenn studdu tillöguna en Herdís sagðist þó fremur hafa kosið að halda vöxtum óbreyttum þá. Að þessum tveimur tilvikum frátöldum hafa nefndarmenn peningastefnunefndar verið einhuga í ákvörðunum sínum síðasta árið.
Seðlabankinn Íslenska krónan Mest lesið Kaupa Sóma og Þykkvabæ Viðskipti innlent Sendir flugmönnum tóninn: „Maður mjólkar ekki dauða kú“ Viðskipti innlent Uppsagnir hjá Bláa lóninu Viðskipti innlent Hásetar fengu tæpar níu milljónir fyrir fimmtán daga Viðskipti innlent Yrði fjórði stærsti lífeyrissjóðurinn Viðskipti innlent Ákvörðun um næsta fund tekin yfir helgina Viðskipti innlent Reynsluakstur: Mjúkur lúxus og moldarslettur í sama pakka Samstarf Eftir sumarið tekur við óvissa Viðskipti innlent Land Rover veisla á laugardaginn Samstarf Meira atvinnuleysi og fjöldauppsagnir í maí Viðskipti innlent Fleiri fréttir Kaupa Sóma og Þykkvabæ Ákvörðun um næsta fund tekin yfir helgina Eftir sumarið tekur við óvissa Yrði fjórði stærsti lífeyrissjóðurinn Kjörin formaður SÍA Sendir flugmönnum tóninn: „Maður mjólkar ekki dauða kú“ Meira atvinnuleysi og fjöldauppsagnir í maí Hásetar fengu tæpar níu milljónir fyrir fimmtán daga Flugrisi eignast allan flugflota Air Atlanta Greiða sér rúmlega tvo milljarða í arð Fá að kaupa Pei og Motus „Við þurfum að fara að spýta í lófana“ Gervigreindargjöf til lýðræðisins Hópuppsögn hjá Rapyd á Íslandi Helmingur Air Atlanta seldur úr landi Uppsagnir hjá Bláa lóninu Segir vanda Icelandair djúpstæðari en samningar flugmanna Fljúga til Færeyja árið um kring Verðbólga hjaðnar minna en vonir stóðu til Verslunin Air lokar í Kringlunni Fundi frestað til morguns Beina því til Storytel að gæta varúðar í markaðssetningu Skipulagsbreytingar hjá Símanum Advania lýkur kaupum á Evolv Stjórn Icelandair með fullt traust til Boga Hyggja á hóteluppbyggingu á milli Hveragerðis og Selfoss Vilja að frítekjumörk örorkulífeyris verði endurskoðuð Klíník og klíník í eina sæng Lokar Sjoppunni eftir sextán ára rekstur Tuttugu stærstu eiga 400 milljarða í öðrum félögum Sjá meira