Hagnaður bankans 8,2 milljarðar á þriðja ársfjórðungi Atli Ísleifsson skrifar 30. október 2025 07:32 Benedikt Gíslason, bankastjóri Arion banki, segir að afkoma bankans á þriðja ársfjórðungi hafi verið góð og bankinn náð síðum helstu fjárhagsmarkmiðum. Vísir/Vilhelm Hagnaður Arion banka á þriðja ársfjórðungi var 8,2 milljarðar króna samanborið við 7,9 milljarða króna á þriðja ársfjórðungi síðasta árs. Arðsemi eiginfjár sem tilheyrir hluthöfum Arion banka var 16,0 prósent á fjórðungnum, samanborið við 16,1 prósent á sama tíma í fyrra.
Þetta er á meðal þess sem fram kemur í árshlutauppgjöri Arion banka sem birt var í gær. Sé litið til fyrstu níu mánaða ársins er hagnaður bankans 24,4 milljarðar króna samanborið við 17,8 á fyrstu níu mánuðum ársins 2024. „Lykiltölur á þriðja ársfjórðungi 2025 Hagnaður sem tilheyrir hluthöfum Arion banka var 8,2 ma.kr. á fjórðungnum, samanborið við 7,9 ma.kr. á 3F 2024 Arðsemi eiginfjár sem tilheyrir hluthöfum Arion banka var 16,0%, samanborið við 16,1% á 3F 2024 Hagnaður á hlut var 5,95 krónur, samanborið við 5,62 krónur á 3F 2024 Vaxtamunur á vaxtaberandi eignir var 3,3%, samanborið við 3,1% á 3F 2024 Þóknanastarfsemin skilaði 4,0 mö.kr., samanborið við 3,9 ma.kr. á 3F 2024 Rekstur Varðar skilaði 0,7 ma.kr. hagnaði, samanborið við 1,7 ma.kr. á 3F 2024 Kjarnatekjur, þ.e. hreinar vaxta-, þóknana- og tryggingatekjur (án rekstrarkostnaðar tryggingastarfseminnar), jukust um 6,9% í samanburði við 3F 2024 Rekstrarkostnaður jókst um 2,9% í samanburði við 3F 2024 Virkt skatthlutfall var 26,3% á fjórðungnum Heildarkostnaður sem hlutfall af kjarnatekjum var 36,3%, samanborið við 37,5% á 3F 2024 Kostnaðarhlutfall var 32,6%, í samanburði við 34,4% á 3F 2024 Efnahagsreikningur bankans stækkaði um 1,4% á fjórðungnum Lán til viðskiptavina jukust um 29,2 ma.kr. eða 2,3% á fjórðungnum, einkum lán til fyrirtækja Hópmálsókn Neytendasamtakanna Í kjölfar dóms Hæstaréttar frá 14. október sl. sem varðar neytendalán sem bera breytilega vexti hefur Arion banki endurmetið mögulegt hámarkstjón sitt vegna mála sem hafa verið höfðuð gagnvart bankanum. Arion banki telur nú að mögulegt hámarkstjón vegna óverðtryggðra neytendalána gæti numið tæpum 500 m.kr. fyrir skatt ef niðurstaða Hæstaréttar yrði heimfærð á lán bankans. Að sama skapi gæti mögulegt hámarkstjón bankans vegna verðtryggðra neytendalána numið 4,5 ma.kr. fyrir skatt, en í þeim útreikningum er gert ráð fyrir að lægstu markaðsvextir útgefnir af Seðlabankanum verði lagðir til grundvallar. Bankinn hefur á þessum tímapunkti ekki fært varúðarniðurfærslur vegna þessa, sökum verulegrar óvissu um endanlega niðurstöðu dómstóla, en mun meta þörfina fyrir niðurfærslu eftir því sem málum vindur fram. Lykiltölur fyrir fyrstu 9 mánuði ársins 2025 Hagnaður sem tilheyrir hluthöfum Arion banka var 24,4 ma.kr. á 9M 2025, samanborið við 17,8 ma.kr. á 9M 2024 Arðsemi eiginfjár var 16,0%, samanborið við 12,2% á 9M 2024 Hagnaður á hlut var 17,55 krónur, samanborið við 12,45 á 9M 2024 Hreinn vaxtamunur var 3,3%, samanborið við 3,1% á 9M 2024 Hreinar þóknanatekjur námu 13,1 ma.kr. á fyrstu 9 mánuðum ársins í samanburði við 11,2 ma.kr. á 9M 2024 Aðrar rekstrartekjur voru 4,7 ma.kr. sem skýrist að mestu af virðishækkun þróunareigna Rekstur Varðar skilaði 0,9 ma.kr. hagnaði, samanborið við 2,0 mö.kr. á 9M 2024 Kjarnatekjur hækka um 13,9%, samanborið við 9M 2024 Rekstrarkostnaður hefur lækkað um 1,2%, samanborið við 9M 2024 Virkt skatthlutfall var hátt eða 28,8% og skýrist af óhagstæðri samsetningu tekna Heildarkostnaður sem hlutfall af kjarnatekjum var 38,3%, samanborið við 43,8% á 9M 2024 Kostnaðarhlutfall var 32,8%, samanborið við 40,6% á 9M 2024 Efnahagsreikningur bankans hefur stækkað um 7,3% frá árslokum 2024 Arðgreiðsla og kaup eigin hlutabréfa námu samtals 19,1 ma.kr. á 9M 2025 Eiginfjárhlutfall bankans (CAR hlutfall) var 21,9% og hlutfall almenns eiginfjárþáttar 1 var 18,0% í lok september. Hlutföllin taka tillit til óendurskoðaðs hagnaðar fjórðungsins að teknu tilliti til væntrar arðgreiðslu, sem nemur 50% af hagnaði í samræmi við arðgreiðslustefnu bankans. Eiginfjárhlutfall samkvæmt reglum Fjármálaeftirlits Seðlabanka Íslands var 21,5% í lok september og hlutfall eiginfjárþáttar 1 17,6%. Eiginfjárhlutfall og hlutfall almenns eiginfjárþáttar 1 eru vel umfram kröfur sem settar eru fram í lögum og af Fjármálaeftirliti Seðlabanka Íslands. Haft er eftir Benedikt Gíslasyni, bankastjóra Arion banka, að afkoma bankans á þriðja ársfjórðungi hafi verið góð og bankinn náð síðum helstu fjárhagsmarkmiðum. „Þrátt fyrir hátt vaxtastig hefur verið góður gangur í hagkerfinu og ber starfsemi okkar þess merki. Á fjórðungnum var góður útlánavöxtur þegar kemur að fyrirtækjum en við sjáum merki þess að það er að hægja á. Sem fyrr felst mikill styrkur í fjölbreytni þeirrar þjónustu sem við bjóðum og skila allar viðskiptaeiningar Arion samstæðunnar góðri afkomu. Eiginfjár- og lausafjárstaða er áfram mjög góð. Forviðræður Arion banka og Kviku banka við Samkeppniseftirlitið vegna samrunaáforma félaganna eru hafnar. Við gerum ráð fyrir að forviðræðurnar taki einhvern tíma en þær gefa okkur kost á að ræða ýmis álitamál við fulltrúa Samkeppniseftirlitsins og skiptast á upplýsingum áður en samruninn verður tilkynntur með formlegum hætti til eftirlitsins. Við höfum mikla trú á því að saman myndi Kvika og Arion öflugt fjármálafyrirtæki þar sem styrkleikar hvors um sig nýtast vel viðskiptavinum og hluthöfum til góða. Nýfallinn vaxtadómur Hæstaréttar í máli gegn Íslandsbanka hefur eðlilega mikil áhrif á íbúðalánamarkaðinn. Dómurinn fjallaði um óverðtryggt íbúðalán með breytilega vexti og gefur nokkuð skýra forskrift varðandi það hvernig lánveitendur mega breyta vöxtum slíkra lána, reynist skilmálar að hluta ólögmætir. Almennt má segja að vaxtabreytingarskilmálar lána Arion banka séu frábrugðnir þeim skilmálum sem dómur Hæstaréttar varðaði. Bæði er í skilmálum Arion banka um að ræða tæmandi talningu þeirra þátta sem horft er til við breytingu vaxta, ólíkt því sem á við um skilmála Íslandsbanka, auk þess sem hver þáttur er afmarkaður frekar með stuttri útskýringu. Mál gegn Arion banka, sem snýr að vaxtabreytingarskilmálum bankans á verðtryggðu íbúðaláni, verður tekið fyrir í Hæstarétti 17. nóvember, en bæði héraðsdómur og Landsréttur hafa dæmt skilmálana lögmæta. Dómur Hæstaréttar í máli Íslandsbanka hefur skapað aukna óvissu varðandi afleiðingar þess ef vaxtabreytingarskilmálar verðtryggðra lána verði metnir ólögmætir að hluta eða öllu leyti, m.a. þar sem vextir verðtryggðra lána fylgja almennt ekki stýrivöxtum. Við leitum nú leiða til að bjóða verðtryggð íbúðalán því óvissan og biðstaðan er óheppileg fyrir marga viðskiptavini okkar. Að veita einstaklingum íbúðalán er hluti af kjarnastarfsemi okkar og við vonumst til að geta kynnt slík lán á næstu vikum sem yrðu þá í boði a.m.k. þar til niðurstaða Hæstaréttar varðandi lögmæti vaxtabreytingarákvæða verðtryggðra lána liggur fyrir,” segir Benedikt Gíslason.
Arion banki Fjármálafyrirtæki Uppgjör og ársreikningar Mest lesið Viðskipti í Suður-Kóreu stöðvuð eftir hlutabréfadýfu Viðskipti erlent „Það veit enginn hvert þessar breytingar eru að leiða okkur“ Atvinnulíf Útflutningstekjur tækni- og hugverkaiðnaðar hærri en í sjávarútvegi í fyrsta sinn Viðskipti innlent Stríðið geti ýtt undir stöðuna í hagkerfinu Viðskipti innlent Boðar ódýrara súkkulaði í sumar vegna hruns á kakóverði Neytendur Pepsi víkur fyrir Coca-Cola í vélum Icelandair Neytendur Hagkerfið allt í hættu Viðskipti innlent 69 sagt upp í tveimur hópuppsögnum Viðskipti innlent Í hvað eru peningarnir þínir að fara? Samstarf Jón Örn genginn í eigendahópinn Viðskipti innlent Fleiri fréttir Útflutningstekjur tækni- og hugverkaiðnaðar hærri en í sjávarútvegi í fyrsta sinn Stríðið geti ýtt undir stöðuna í hagkerfinu Bein útsending: Orkueyjan og alþjóðleg samkeppni Hagkerfið allt í hættu 69 sagt upp í tveimur hópuppsögnum Átökin geri baráttuna við verðbólguna enn erfiðari Mun leiða Fab Lab Reykjavík Jón Örn genginn í eigendahópinn Óvíst að fullyrðing um kjaragliðnun standist skoðun Halla ráðin markaðsstjóri BM Vallár Andri Þór hættir sem forstjóri Ölgerðarinnar Gjaldþrot Play nemur 21 milljarði króna Boðar aðgerðir á allra næstu dögum gegn verðbólgu Dæmdir fyrir að taka við fé fyrir Teslur sem þeir afhentu aldrei Affineva bar sigur úr býtum Munaðarlausi apinn í Japan farinn að hafa áhrif á Íslandi Gugga fer í fyrirtækjarekstur „Það er einhvers konar pissa í skóinn sinn-hagfræði“ Sýn skilaði hagnaði á fjórða ársfjórðungi Kvikutoppar fóru fýluferð í Landsrétt og borga tugi milljóna Bein útsending: Lokakeppni Gulleggsins 2026 Tekist á um kaupfox og hefð vegna 80 ára jeppa Mikið í húfi ef ekki dregur úr verðbólgu og vaxtalækkun ekki í sjónmáli Tilboð Icelandair það eina og langt yfir áætlun Lilja nýr markaðs- og upplifunarstjóri hjá Högum Verðbólga stendur í stað þvert á spár Bjarni Guðjóns hættir hjá VÍS Festa kaup á hugbúnaðarfyrirtækinu Evolv Selja húsnæði Vélfags á Ólafsfirði Óttar og Jón Arnór látnir róa vegna tengsla við viðskiptavin Sjá meira
Útflutningstekjur tækni- og hugverkaiðnaðar hærri en í sjávarútvegi í fyrsta sinn Viðskipti innlent
Útflutningstekjur tækni- og hugverkaiðnaðar hærri en í sjávarútvegi í fyrsta sinn Viðskipti innlent