Landsbankinn hagnast um tæpa 30 milljarða á níu mánuðum Eiður Þór Árnason skrifar 23. október 2025 19:35 Landsbankahúsið er staðsett við Hafnartorg í miðborginni. Eldra húsnæði bankans hefur verið selt. Vísr/Anton Brink Landsbankinn hagnaðist um 29,5 milljarða króna eftir skatta á fyrstu níu mánuðum ársins. Þar af nam hagnaður 11,1 milljarði á þriðja ársfjórðungi. Hreinar vaxtatekjur voru 49,4 milljarðar króna á fyrstu níu mánuðum ársins og hreinar þjónustutekjur 9,2 milljarðar króna.
Þetta kemur fram í tilkynningu frá bankanum og fjárhagsuppgjöri hans fyrir tímabilið. Dregið hefur úr útlánum til heimila og stjórnendur gjaldfært varúðarfærslu upp á 2,4 milljarða vegna hugsanlegra áhrifa nýlegs dóms Hæstaréttar í máli gegn Íslandsbanka. Landsbankinn greiddi síðari hluta arðgreiðslu ársins til hluthafa í september og námu arðgreiðslur ársins samtals 18,89 milljörðum króna. Íslenska ríkið á 98,2% hlutafjár í bankanum. Arðsemi eiginfjár jókst milli ára og var 12,2% samanborið við 11,7% á sama tímabili árið áður. Á sama tíma nam vaxtamunur sem hlutfall af meðalstöðu heildareigna 2,9%. Selt gamla Landsbankahúsið og hlut í Greiðslumiðlun Íslands Afkoma tryggingafélagsins TM, dótturfélags Landsbankans, af vátryggingarsamningum var 1,5 milljarðar króna á tímabilinu 28. febrúar til 30. september 2025. Þar af voru 528 milljónir króna á þriðja ársfjórðungi. Samsett hlutfall TM er 88,7% á fyrstu níu mánuðum ársins 2025. Kostnaðarhlutfall Landsbankans var 33,2% á fyrstu níu mánuðum 2025, samanborið við 32,3% á sama tímabili árið 2024. Eiginfjárhlutfall í lok tímabilsins var 24,0% en fjármálaeftirlit Seðlabanka Íslands gerir heildarkröfu um 20,4% eiginfjárgrunn. Í júlí síðastliðnum tók Landsbankinn tilboði Landsbyggðar ehf. í Landsbankahúsið við Austurstræti 11 og Hafnarstræti 10, 12 og 14. Söluverð húsanna var 2,85 milljarðar króna. Í dag greindi Landsbankinn einnig frá því að hann hafi selt hlut sinn í Greiðslumiðlun Íslands ehf. (GMÍ) til Símans. GMÍ rekur innheimtufyrirtækið Motus og lánaþjónustuna Pei. Eignarhlutur Landsbankans í félaginu var 47,9% og er heildarvirði þess metið á 3,5 milljarða króna í viðskiptunum sem eru háð samþykki Samkeppniseftirlitsins. Gjaldfæra varúðarfærslu upp á 2,4 milljarða vegna dóms Hæstaréttar Lilja Björk Einarsdóttir, bankastjóri Landsbankans, segir afkomuna á fyrstu níu mánuðum ársins vera góða og sömuleiðis afkoman af tryggingum TM. „Kostnaðarhlutfall á fyrstu níu mánuðum ársins var 33% og hefur sjaldan verið lægra. Í kjölfar dóms Hæstaréttar höfum við gjaldfært varúðarfærslu upp á 2,4 milljarða vegna þess hluta lánasafns bankans sem varðar fasteignalán til neytenda,“ segir Lilja í tilkynningu og vísar þar til dóms í máli gegn Íslandsbanka þar sem skilmálar óverðtryggðs láns með breytilegum vöxtum voru dæmdir ólögmætir. Landsbankinn bíður þess að Hæstiréttur taki fyrir svipað mál gegn bankanum. Samdráttur í íbúðalánum „Útlánavöxtur var hóflegur og var allur hjá fyrirtækjum. Við gerum ekki ráð fyrir miklum útlánavexti á næstunni og við finnum fyrir hægari umsvifum hjá fyrirtækjum, líkt og fjallað er um í nýrri hagspá Greiningardeildar Landsbankans sem kom út í gær. Þá varð samdráttur í íbúðalánum sem skýrist af því að fleiri velja verðtryggð lán hjá lífeyrissjóðum. Við munum leggja okkur fram við að bjóða samkeppnishæf íbúðalán, hvort sem er fyrir fyrstu kaupendur eða aðra,“ bætir Lilja við. „Í kjölfar dóms Hæstaréttar í máli Íslandsbanka erum við nú að fara fara yfir skilmála um breytilega vexti á nýjum íbúðalánum og er sú vinna á lokametrunum. Landsbankinn er stærsti lánveitandinn á íbúðalánamarkaði og við höfum lagt áherslu á að vinna þetta mál hratt og vel enda mikilvægt að draga úr óvissu eins og kostur er við þessar aðstæður.“ Í tengslum við söluna á eldra húsnæði Landsbankans bætir Lilja við að bankinn hafi þar með minnkað við sig og fermetrum í rekstri verið fækkað um 40% á síðustu árum. Fréttin hefur verið uppfærð.
Landsbankinn Fjármálafyrirtæki Uppgjör og ársreikningar Mest lesið Samþykktu tíu milljarða arðgreiðslu sama dag og greint var frá uppsögnum Viðskipti innlent Kvika sendi starfsmönnum kalda kveðju Viðskipti innlent Flugvirkjar skora á Icelandair að hverfa frá áformum sínum Viðskipti innlent Kynntust í janúar og kynna nýja lausn fyrir matvælaframleiðendur Atvinnulíf Dæmi um að tvö hundruð manns bítist um auglýst starf Viðskipti innlent Körfuboltakempa nýr útibússtjóri á Króknum Viðskipti innlent Kanónur ætla að opna Kaffi Kjötborg Viðskipti innlent Hreyfing í viðræðum Icelandair og flugmanna Viðskipti innlent Loftslagsgjöldin orðin milljarðakostnaður í þungum rekstri Icelandair Viðskipti innlent Tóku rök félagsins til greina og tvöfölduðu svo sektina Viðskipti innlent Fleiri fréttir Hættu við samrunann vegna afskipta Samkeppniseftirlitsins Kvika sendi starfsmönnum kalda kveðju Máli Alcoa gegn Eimskip vísað frá Icelandair hefur flug til Qaqortoq Körfuboltakempa nýr útibússtjóri á Króknum Flugvirkjar skora á Icelandair að hverfa frá áformum sínum Hreyfing í viðræðum Icelandair og flugmanna Samþykktu tíu milljarða arðgreiðslu sama dag og greint var frá uppsögnum Dæmi um að tvö hundruð manns bítist um auglýst starf Tóku rök félagsins til greina og tvöfölduðu svo sektina Loftslagsgjöldin orðin milljarðakostnaður í þungum rekstri Icelandair Alvotech rauk upp eftir tíðindi í morgun Turninn á Lækjartorgi fær nýtt líf Kanónur ætla að opna Kaffi Kjötborg Stærsti hluti landbúnaðarlands ekki í virkri notkun Uppsagnir hjá Kviku banka Luku fimm hagræðingaraðgerðum á einu ári Varaseðlabankastjóri segir fólki að grafa upp plastgreiðslukortin Staða Icelandair: „Þetta er hinn kaldi raunveruleiki“ Rauður dagur í Kauphöllinni Ný verslun Elko opnuð í Smáralind Signý tekur við af Jónasi Gesti hjá Deloitte Hjallastefnan fær loksins húsnæði Boðar Icelandair og flugmenn til fundar annað kvöld Bein útsending: Ásgeir og Tómas sitja fyrir svörum Viðvarandi óvissa, versnandi verðbólguhorfur og háir vextir gætu reynt á Tíu ára forritari upplýsir um markaðsvirði pókémonspila Leiðin að lægri vöxtum sé sú sama með krónu og evru Bein útsending: Valkostir Íslands í gjaldmiðlamálum Kaldvík sett í skammarkrókinn í Ósló Sjá meira