Mjög leiðinlegt mál en tilboðið hafi aldrei verið samþykkt Kolbeinn Tumi Daðason skrifar 10. október 2025 15:01 Fjölbýlishúsið við Stekkjarberg 11a í Setberginu í Hafnarfirði fyrir miðju. Helgi Gíslason hjá Byggingafélaginu Landsbyggð segir að upplýsingagjöf til ekkju í Hafnarfirði í fasteignaviðskiptum hefði mátt vera betri. Eftir standi að seljandi hafi ekki verið búinn að samþykkja tilboð.
Hjónin Atli Þór Albertsson og Guðný Ósk Sigurgeirsdóttir sem reka fasteignasöluna Stofuna vöktu athygli á máli móður Guðnýjar sem taldi sig vera búna að fá samþykkt kauptilboð hjá fasteignasölunni Hraunhamri í íbúð í fjölbýlishúsi sem Byggingafélagið Landsbyggð byggði. Þau röktu söguna í færslu á Facebook sem vakið hefur mikla athygli. Í grófum dráttum lýsa þau því að hafa samþykkt að greiða uppsett verð á íbúð í nýbyggingunni. Í framhaldinu hafi hún selt íbúð sína, látið fasteignasöluna vita sem hafi sagt að búið væri að selja öðrum íbúðina. Helgi segir miður að Atli Þór og Guðný Ósk hafi ákveðið að reka málið á samfélagsmiðlum og að fjölmiðlar fjölluðu um það. „Þessi ágæta kona er bara í langri keðju sem hefur tekið mjög langan tíma að selja. Hún var ekki að klárast og ég undirritaði ekki tilboðið við hana,“ segir Helgi. Um er að ræða nýtt fjölbýlishús við Stekkjarberg í Hafnarfirði. Helgi segir málið í grunninn mjög einfalt. Hann hafi ekki viljað samþykkja tilboð í eignina. „Þetta er ekki flókið. Það voru engin viðskipti í gangi. Tilboðinu var ekki tekið.“ Hann lítur svo á að Atli Þór og Guðný Ósk séu í atvinnurógri gegn Hraunhamri. Þau reki fasteignasölu og séu því í beinni samkeppni. Þessu hafna Atli og Guðný og segjast ekki selja fasteignir verktaka, meðal annars vegna starfshátta sem þau kunni ekki að meta. Þau segja móður Guðnýjar hafa fengið skýr skilaboð um að tilboðið hennar, um uppsett verð, hafi verið samþykkt. Helgi segir að þau sem löggiltir fasteignaeigendur eigi að vita betur og hefðu átt að ganga á eftir því að seljandi samþykkti kauptilboðið skriflega. „Við hefðum alveg getað verið með betri upplýsingagjöf,“ segir Helgi og hið sama gildi um fasteignasöluna Hraunhamar. „Okkur þykir þetta mjög leiðinlegt, það er ekkert gaman að standa í svona.“ En eftir standi, að aldrei hafi verið skrifað undir samning. Helgi Jón Harðarson eigandi fasteignasölunnar Hraunhamars í Hafnarfirði segist í samtali við Vísi undrast málið. Hann botni ekkert í kollegum sínum í fasteignabransanum að vaða fram með ásakanir. Hraunhamar hafi selt íbúðir í fjölbýlishúsinu hratt og vel og nánast án auglýsinga. Eitthvað hafi selst á ásettu verði og svo hafi verð á sumum íbúðum hækkað vegna eftirspurnar eins og gangi. Þá segist hann undrast, sem eigandi Hraunhamars, að Atli Þór og Guðný hafi ekki hringt eitt símtal í sig áður en þau hafi vaðið fram á Facebook með frásögn sína. Fréttin var uppfærð með viðbrögðum Helga Jóns hjá Hraunhamri.
Fasteignamarkaður Hús og heimili Hafnarfjörður Mest lesið Hagkerfið allt í hættu Viðskipti innlent Boðar ódýrara súkkulaði í sumar vegna hruns á kakóverði Neytendur 69 sagt upp í tveimur hópuppsögnum Viðskipti innlent Pepsi víkur fyrir Coca-Cola í vélum Icelandair Neytendur Sönnuðu ekki fullyrðingar um lækningamátt og fá háa sekt Neytendur Átökin geri baráttuna við verðbólguna enn erfiðari Viðskipti innlent Ráku blaðamann vegna falskra gervigreindartilvitnana Viðskipti erlent Talsverðar hækkanir á heimsmarkarðsverði olíu Viðskipti erlent Mun leiða Fab Lab Reykjavík Viðskipti innlent Í hvað eru peningarnir þínir að fara? Samstarf Fleiri fréttir Sönnuðu ekki fullyrðingar um lækningamátt og fá háa sekt Pepsi víkur fyrir Coca-Cola í vélum Icelandair Boðar ódýrara súkkulaði í sumar vegna hruns á kakóverði Setti Ölgerðina í bann en hefur nú snúist hugur Ein og hálf milljón í sekt vegna villandi auglýsinga Bílstólarnir gagnlausir ef þeir eru vitlaust festir Á að fá endurgreidd gler eftir gallaða sjónmælingu Engin svör að fá sem skýra „rán um hábjartan dag“ Fjölga verslunum í Danaveldinu Innkalla ungbarnakex vegna aðskotahluta Aðskotahlutur í lifrarpylsu: „Mál sem við tökum mjög alvarlega“ Allt að 120 prósenta hækkun verðskrár Sjá meira