Óvissa á alþjóðavettvangi undirstrikar mikilvægi ríflegs gjaldeyrisforða Atli Ísleifsson skrifar 24. september 2025 08:32 Ásgeir Jónsson er seðlabankastjóri og formaður fjármálastöðugleikanefndar bankans. Vísir/Anton Brink Fjármálakerfið hér á landi stendur traustum fótum og er eiginfjár- og lausafjárstaða kerfislega mikilvægra banka sterk og aðgengi að markaðsfjármögnun greitt. Umtalsverð óvissa er þó í alþjóðamálum og langtímavextir hafa víða hækkað vegna vaxandi efasemda um sjálfbærni opinberra fjármála. Óvissa á alþjóðavettvangi undirstrikar mikilvægi ríflegs gjaldeyrisforða.
Þetta er meðal þess sem fram kemur í yfirlýsingu fjármálastöðugleikanefndar Seðlabankans sem birt var klukkan 8:30. Í yfirlýsingunni segir að alþjóðlegir eignamarkaðir séu hátt verðlagðir og snörp verðleiðrétting gæti haft áhrif á aðgengi og kjör íslenskra fyrirtækja á erlendri fjármögnun. Óvissa á alþjóðavettvangi undirstriki mikilvægi ríflegs gjaldeyrisforða og traustrar erlendrar eignastöðu þjóðarbúsins. „Staða kerfislega mikilvægra banka er traust og erlend fjármögnunarskilyrði hagstæð um þessar mundir. Álagspróf Seðlabankans bendir til þess að þeir hefðu nægan viðnámsþrótt til að viðhalda framboði lánsfjár og styðja við hagkerfið í alvarlegu áfalli. Mikilvægt er að bankarnir viðhaldi sterkri eiginfjárstöðu og nægu lausu fé til að takast á við möguleg áföll. Heimili og fyrirtæki hafa heilt yfir viðhaldið viðnámsþrótti sínum þrátt fyrir viðvarandi verðbólgu og háa raunvexti. Hóflegur skuldavöxtur og traust eiginfjárstaða, sem m.a. má rekja til þétts taumhalds þjóðhagsvarúðarstefnunnar, hafa átt sinn þátt í að vanskil eru enn lítil,“ segir í yfirlýsingunni. Dregur úr hækkun húsnæðisverðs Áfram segir að dregið hafi úr hækkun húsnæðisverðs og þá hafi spenna á húsnæðismarkaði minnkað. „Framboð er töluvert og lengur tekur að selja húsnæði en áður, sér í lagi nýbyggingar. Velta á húsnæðismarkaði er þó enn talsverð og kaupendum fyrstu fasteignar hefur fjölgað. Vaxandi ógn við rekstrar- og netöryggi fjármálainnviða er fylgifiskur mikillar óvissu í alþjóðamálum og tæknivæðingar á fjármálamarkaði. Áfram þarf að efla viðbúnað fyrir mikilvæga innviði og vinna markvisst að því að auka viðnámsþrótt í greiðslumiðlun. Fjármálastöðugleikanefnd ákvað að halda gildi sveiflujöfnunaraukans óbreyttu í 2,5% í samræmi við stefnu nefndarinnar um beitingu aukans. Nefndin mun sem fyrr beita þeim stýritækjum sem hún hefur yfir að ráða til að varðveita fjármálastöðugleika þannig að fjármálakerfið geti staðist áföll, miðlað lánsfé og greiðslum og dreift áhættu með viðhlítandi hætti,“ segir í yfirlýsingu nefndarinnar. Vefútsending klukkan 9:30 Vefútsending frá kynningu vegna yfirlýsingar nefndarinnar og útgáfu Fjármálastöðugleika hefst klukkan 9:30. Ásgeir Jónsson, seðlabankastjóri og formaður fjármálastöðugleikanefndar, Tómas Brynjólfsson, varaseðlabankastjóri fjármálastöðugleika, og Flóki Halldórsson, framkvæmdastjóri fjármálastöðugleikasviðs, gera grein fyrir yfirlýsingu fjármálastöðugleikanefndar og efni Fjármálastöðugleika. Hægt verður að fylgjast með útsendingunni í beinu streymi í spilaranum að neðan.
Seðlabankinn Efnahagsmál Mest lesið Hvar á sonur minn að geyma húsnæðissparnaðinn sinn? Viðskipti innlent Sektað fyrir að láta gesti skanna QR-kóða til að sjá verðið Viðskipti innlent Yfir hundrað prósenta munur á verði fyrir umfelgun Neytendur Vinkonur í bissness: Búnar að yfirtaka bílskúr foreldranna Atvinnulíf Róar áhyggjufulla Hafnfirðinga Viðskipti innlent Bláa lónið má kaupa annan ferðaþjónusturisa Viðskipti innlent Samkaup kaupir Fjarðarkaup Viðskipti innlent 281 sagt upp í fimm hópuppsögnum Viðskipti innlent Orð Andra Snæs um apaheila dæmi sig sjálf Viðskipti innlent Ráðinn forstjóri Elkem á Íslandi Viðskipti innlent Fleiri fréttir Hvar á sonur minn að geyma húsnæðissparnaðinn sinn? Sektað fyrir að láta gesti skanna QR-kóða til að sjá verðið Bláa lónið má kaupa annan ferðaþjónusturisa 281 sagt upp í fimm hópuppsögnum Ráðinn forstjóri Elkem á Íslandi Róar áhyggjufulla Hafnfirðinga Orð Andra Snæs um apaheila dæmi sig sjálf Samkaup kaupir Fjarðarkaup Loka kaffihúsinu Örnu á Eiðistorgi Nýtt gjald hefur áhrif á íslenska seljendur Nýttu hagnaðinn í styrki fyrir íþróttastarfsemi Mega kaupa Öryggismiðstöðina og Opin kerfi Bláa lónið á markað í nóvember Klakki, áður Exista, gjaldþrota Hótelævintýri lauk með gjaldþrotum upp á milljarð Getur ekki lengur orða bundist Hefja viðræður um sölu Blikastaðalandsins Bein útsending: Hátæknibrennsla á Íslandi Gangast í ábyrgð fyrir 3,4 milljarða króna láni Ráðin mannauðsstjóri Advania Tekjur Nova í hæstu hæðum Live verður Lifa Treble hlaut Nýsköpunarverðlaunin Hagnast um 33 milljarða en sjá viðvörunarljós Náðu að halda kaupunum leyndum Aukinn vaxtamunur og hagnaður upp á tæpa 22 milljarða Bein útsending: Nýsköpunarþing 2026 - Tækifæri og áskoranir á landsbyggðinni Eina landið í Vestur-Evrópu þar sem verðbólga eykst ekki „Ísland er demanturinn í kórónunni í okkar félagi“ Verðbólga stendur í stað Sjá meira