Neytendur

Gátu ekki fært sönnur á full­yrðingar um virkni sveppa­dropa og dufts

Atli Ísleifsson skrifar
Hemmett ehf, rekstraraðili Hugur Studio, var sektað um 100 þúsund krónur vegna rangra fullyrðinga félagsins.
Hemmett ehf, rekstraraðili Hugur Studio, var sektað um 100 þúsund krónur vegna rangra fullyrðinga félagsins. Vísir/Vilhelm

Neytendastofa hefur sektað Hemmett ehf, rekstraraðila Hugur Studio, um 100 þúsund krónur vegna rangra fullyrðinga félagsins um virkni sveppadropa og sveppadufts sem það hafði til sölu.

Stofnunin hafði áður óskað eftir sönnunum fyrir fullyrðingum sem birtar voru á vefsíðu félagsins þar sem því var meðal annars haldið fram að vörurnar „framkölluðu ró, bættu svefngæði, lækki kortisól og þar með streitustig, styðji við ónæmiskerfið og frumur líkamans með andoxunarefnum og dragi jafnvel úr áhrifum ADHD og lyfjaþörf“.

Á vef Neytendastofu segir að félagið hafi dregið úr fullyrðingunum undir meðferð málsins. Ekki hafi þó verið veitt fullnægjandi sönnunargögn fyrir fullyrðingunum sem stofnunin taldi afdráttarlausar varðandi virkni varanna og þann árangur sem vænta mætti af notkun þeirra.

„Taldi Neytendastofa fullyrðingarnar veita rangar upplýsingar um helstu einkenni varanna sem væru líklegar til að valda því að hinn almenni neytandi tæki viðskiptaákvörðun sem hann myndi ekki annars hafa tekið. Fullyrðingarnar væru því líklegar til að raska verulega fjárhagslegri hegðun neytanda. Þá taldi Neytendastofa að með birtingu fullyrðinga um virkni sveppadropa og -dufts hafi félagið haldið því ranglega fram að vörurnar geti læknað sjúkleika eða röskun á líffærastarfsemi.

Taldi stofnunin hæfilegt að sekta félagið um 100.000 kr. vegna brota sinna,“ segir á vef Neytendastofu.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×