Kvartanir borist vegna aflýstra flugferða Tómas Arnar Þorláksson skrifar 28. júní 2025 20:38 Breki Karlsson, formaður Neytendasamtakanna. Vísir/Arnar Neytendasamtökunum hafa borist kvartanir vegna aflýstra flugferða til og frá landinu. Formaður samtakanna brýnir fyrir fólki að nýta rétt sinn þegar svo ber undir. Dæmi séu til um að flugfélög veigri sér við því að upplýsa um fullan rétt neytenda.
Af 20.200 flugferðum Icelandair frá og með maí og til og með september hefur aðeins 62 flugferðum verið aflýst. Ekki fengust nákvæmar tölur fyrir sama tímabil hjá flugfélaginu Play en stundvísi félagsins mældist 86,4 prósent á fyrri hluta árs. Greint var frá töluverðum breytingum hjá Play á dögunum. Flugferðum til og frá Norður-Ameríku verður hætt frá og með október og munu fjórar flugvélar sinna flugi til og frá Íslandi í stað sjö. Áfangastöðum í Evrópu frá Íslandi verður fækkað. Samkvæmt upplýsingum frá Isavia er fjöldi aflýstra flugferða til og frá Keflavíkurflugvelli svipaður og síðustu ár. Neytendasamtökunum hafa borist kvartanir vegna flugferða sem hefur verið aflýst. Formaður samtakanna brýnir fyrir fólki að vera meðvitað um rétt sinn þegar svo ber undir. „Þú átt rétt að velja annað hvort að fá endurgreitt í sömu mynt og þú greiddir. En þú átt líka rétt á því að velja um það að flugfélagið komi þér á þann áfangastað eða eins nálægt í tíma og hægt er og jafnvel með öðru flugfélagi án þess að þú greiðir aukakostnað fyrir það. Þetta er eitthvað sem að flugfélög eru ekki að auglýsa mikið því miður,“ segir Breki Karlsson, formaður Neytendasamtakanna, í kvöldfréttum Sýnar. Ekki öll félögin láti vita Það eigi við um öll flugfélög innan Evrópu. Breka þykir það miður að flugfélög eigi það til að upplýsa ekki neytendur um rétt sinn. „Flugfélögin bjóða þér endurgreiðslu eða jafnvel inneign í einhverju formi en segja þér ekki frá því að þú eigir þennan rétt að geta komist á áfangastað með öðru flugfélagi.“ Hann minnir jafnframt á að ef flug er fellt niður með skömmum fyrirvara geta farþegar átt rétt á bótum. Hann hvetur fólk til að nýta vef samtakanna eða Samgöngustofu til að leita réttar síns. „Ef þú færð ekki svör nægilega fljótt eða flugfélagið bregst ekki við með réttum hætti þá geturðu sent þeim tilkynningu um að þú munir sjá um þetta mál og senda svo reikninginn til þeirra. Sem sagt lagt út fyrir flugfarinu og svo geturðu innheimt það síðarmeir. Ef þú nýtir ekki réttinn þá er hann tapaður.“
Neytendur Fréttir af flugi Icelandair Play Mest lesið Tók málin í eigin hendur þegar erlenda vinnuaflið kom ekki Viðskipti innlent Einbeita sér að kaffinu eftir lokun kaffihúsanna Viðskipti innlent Tekur því að spara á verðtryggðri bók? Viðskipti innlent Síðustu kaffihúsum Kaffitárs lokað Viðskipti innlent Haraldur selur fyrir 94,5 milljónir í Skaga Viðskipti innlent Sjáðu húsið þitt í nýjum búningi áður en framkvæmdir hefjast Samstarf Bankaskattur kosti 323 þúsund á ári miðað við 50 milljóna lán Viðskipti innlent Kjörbúðinni lokað og ein verslun eftir í bænum Viðskipti innlent Ríkið lagði Lárus með minnsta mun Viðskipti innlent Ísland ekki jaðarmarkaður segir framkvæmdastjóri BMW Samstarf Fleiri fréttir Mega ekki auglýsa MBA-nám án þess að vera háskóli Löggan bankaði upp á á skírdag „Flestir sem eru á þessum lista eru dánir“ Grunur um salmonellu í nautahakki Bónus Brauð með súr ekki það sama og súrdeigsbrauð Gjaldskylda sett á við Egilshöll Boða lækkanir í Bónus og Hagkaupum með nýju samstarfi Skattalækkanir vinni beinlínis gegn Seðlabankanum Sjá meira