Hrund nýr fjármálastjóri Íslandshótela Atli Ísleifsson skrifar 16. júní 2025 10:30 Hrund Hauksdóttir. Hrund Hauksdóttir hefur verið ráðin fjármálastjóri Íslandshótela.
Í tilkynningu seggir að hún hafi hafið störf hjá félaginu á fjármálasviði í september 2023 og hafi nú tekið við sem fjármálastjóri félagsins. Hrund hefur einnig setið í stjórn félagsins frá árinu 2025. „Hrund hefur starfað sem löggiltur endurskoðandi frá árinu 2018 og hefur víðtæka reynslu af fjármálum, endurskoðun og áhættustýringu. Hún starfaði hjá BDO ehf. á árunum 2018 - 2023 þar sem hún sinnti fjölbreyttum endurskoðunar- og ráðgjafaverkefnum fyrir fyrirtæki í ólíkum geirum, meðal annars í sjávarútvegi og hótel- og veitingarekstri ásamt fyrir sveitarfélög og fjármálafyrirtæki. Á árunum 2013 - 2017 starfaði Hrund sem sérfræðingur á endurskoðunarsviði Deloitte og kom þar að endurskoðun stærstu fjármálafyrirtækja landsins, meðal annars Íslandsbanka og Arion banka, sem og rekstrarfélaga verðbréfasjóða og smærri fjármálafyrirtækja. Frá 2005 til 2013 starfaði Hrund hjá Landsbankanum, þar af sem forstöðumaður Eigna- og skuldaáhættu á árunum 2008–2013. Hún stýrði þar teymi sérfræðinga innan áhættustýringar og bar ábyrgð á greiningu markaðs-, eigna- og skuldaáhættu bankans. Hrund starfaði einnig í útibúi bankans í London sem tengiliður við áhættustýringu á Íslandi og sinnti áður verkefnastjórn og uppgjörstengdum verkefnum á áhættusviði bankans. Hrund er með M.Acc. gráðu í reikningshaldi og endurskoðun frá Háskóla Íslands og B.S. gráðu í viðskiptafræði frá Háskólanum í Reykjavík,“ segir í tilkynningunni.
Vistaskipti Hótel á Íslandi Ferðaþjónusta Mest lesið Karl Wernersson opnar sig Viðskipti innlent Borealis stefnt vegna hundruða milljóna króna leiguskuldar Viðskipti innlent Yfir hundrað prósenta munur á verði fyrir umfelgun Neytendur Hvar á sonur minn að geyma húsnæðissparnaðinn sinn? Viðskipti innlent Sektað fyrir að láta gesti skanna QR-kóða til að sjá verðið Viðskipti innlent Vinkonur í bissness: Búnar að yfirtaka bílskúr foreldranna Atvinnulíf Róar áhyggjufulla Hafnfirðinga Viðskipti innlent 281 sagt upp í fimm hópuppsögnum Viðskipti innlent Ráðinn forstjóri Elkem á Íslandi Viðskipti innlent Bláa lónið má kaupa annan ferðaþjónusturisa Viðskipti innlent Fleiri fréttir Segja Adomat reyna að koma höggi á Borealis Borealis stefnt vegna hundruða milljóna króna leiguskuldar Karl Wernersson opnar sig Hvar á sonur minn að geyma húsnæðissparnaðinn sinn? Sektað fyrir að láta gesti skanna QR-kóða til að sjá verðið Bláa lónið má kaupa annan ferðaþjónusturisa 281 sagt upp í fimm hópuppsögnum Ráðinn forstjóri Elkem á Íslandi Róar áhyggjufulla Hafnfirðinga Orð Andra Snæs um apaheila dæmi sig sjálf Samkaup kaupir Fjarðarkaup Loka kaffihúsinu Örnu á Eiðistorgi Nýtt gjald hefur áhrif á íslenska seljendur Nýttu hagnaðinn í styrki fyrir íþróttastarfsemi Mega kaupa Öryggismiðstöðina og Opin kerfi Bláa lónið á markað í nóvember Klakki, áður Exista, gjaldþrota Hótelævintýri lauk með gjaldþrotum upp á milljarð Getur ekki lengur orða bundist Hefja viðræður um sölu Blikastaðalandsins Bein útsending: Hátæknibrennsla á Íslandi Gangast í ábyrgð fyrir 3,4 milljarða króna láni Ráðin mannauðsstjóri Advania Tekjur Nova í hæstu hæðum Live verður Lifa Treble hlaut Nýsköpunarverðlaunin Hagnast um 33 milljarða en sjá viðvörunarljós Náðu að halda kaupunum leyndum Aukinn vaxtamunur og hagnaður upp á tæpa 22 milljarða Bein útsending: Nýsköpunarþing 2026 - Tækifæri og áskoranir á landsbyggðinni Sjá meira