Fótbolti

Full­trúar UEFA gengu út eftir að Infantino mætti seint

Sindri Sverrisson skrifar
Forsetinn Gianni Infantino er mættur á þing FIFA en sýndi því ákveðna vanvirðingu að mati fulltrúa UEFA með því að mæta seint.
Forsetinn Gianni Infantino er mættur á þing FIFA en sýndi því ákveðna vanvirðingu að mati fulltrúa UEFA með því að mæta seint. Getty/Buda Mendes

UEFA, knattspyrnusamband Evrópu, sakar forseta FIFA, alþjóða knattspyrnusambandsins, um að setja sína eigin pólitísku hagsmuni í forgang og hafa af þeim sökum mætt of seint á 75. þing FIFA sem fram fer í Ascunsion, höfuðborg Paragvæ.

Infantino hefur verið á ferðalagi um Mið-Austurlönd ásamt Donald Trump, Bandaríkjaforseta, og mætti til Ascunsion eftir að þing sambandsins sem hann er í forsvari fyrir átti að hefjast. Upphafi þingsins var frestað um þrjá klukkutíma af þessum sökum.

Infantino útskýrði ferðalag sitt með því að hann hefði verið að nýta mikilvægt tækifæri til að vera „fulltrúi fótboltans“ í „mikilvægum samræðum“ við „leiðtoga heimsins í stjórnmálum og efnahagsmálum“, samkvæmt frétt BBC.

Til að mótmæla hegðun Infantino og lýsa vanþóknun sinni með táknrænum hætti þá yfirgaf hópur af fulltrúum Evrópu samkunduna á fimmtudag og sneri ekki aftur þann dag. Samkvæmt frétt The Athletic fór Alexander Ceferin, forseti UEFA, fyrir þessum hópi sem í voru allir átta fulltrúar Evrópu í FIFA-ráðinu. Ísland á ekki sæti í ráðinu en fulltrúar KSÍ eru hins vegar mættir á þingið eins og fulltrúar annarra knattspyrnusambanda.

UEFA segir í yfirlýsingu afar miður að gerðar hafi verið breytingar á dagskrá þingsins, á síðustu stundu, og að því verði að svara.

„Þing FIFA er ein mikilvægasta samkoma alþjóða fótboltans, þar sem allar 211 þjóðir íþróttarinnar koma saman til að ræða málefni sem hafa áhrif á íþróttina yfir allan heiminn.

Það hjálpar íþróttinni ekkert og virðist setja hana í aftursætið, að breyta dagskránni á síðustu stundu að því er virðist eingöngu til að þjóna pólitískum einkahagsmunum.

Við erum öll hérna til að þjóna fótboltanum, frá strætunum og að verðlaunapöllunum, og fulltrúar UEFA í FIFA-ráðinu töldu nauðsynlegt að sýna afstöðu sína með því að fara á þeim tíma sem dagskráin hafði áður gert ráð fyrir,“ segir í yfirlýsingunni.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×