Fríhöfnin fær nýtt nafn og verður lokað um tíma í vikunni Elín Margrét Böðvarsdóttir skrifar 5. maí 2025 14:03 Fríhafnarverslanir í Keflavík verða allar lokaðar frá því annað kvöld og fram á miðvikudagsmorgun, bæði í komu- og brottfararsal og við hlið. Vísir/Sigurjón Nýr rekstraraðili tekur við rekstri fríhafnarverslana í Keflavík á miðvikudaginn og verða verslanirnar því lokaðar tímabundið vegna breytinga frá því annað kvöld og fram á miðvikudagsmorgun. Þá opna fríhafnarverslanir í Keflavík undir nýju nafni, Ísland - Duty Free.
Þetta kemur fram í tilkynningu frá nýjum rekstraraðila þar sem segir ennfremur að aukin áhersla verði lögð á íslensk vörumerki. Tímabundnar lokanir eru boðaðar í nokkrar klukkustundir vegna breytinga sem marka fyrsta skrefið í endurhönnun allra verslana sem stefnt er að að verði lokið á næsta ári að því er segir í tilkynningunni. Þannig munu allar fríhafnarverslanir loka tímabundið annað kvöld sem hér segir: Brottfararverslun: Lokar 6. maí kl. 20:00 og opnar aftur 7. maí kl. 04:00 Komuverslun: Lokar 6. maí kl. 23:00 og opnar aftur 7. maí kl. 07:00. Verslun við brottfararhlið: Lokar 6. maí kl. 20:00 og opnar aftur 7. maí kl. 9:00. Fram kemur í tilkynningunni að á meðan lokun stendur fái farþegar sem ekki geti verslað 20% afsláttarmiða sem gildir í eitt ár og verður hægt að nota í verslunum Ísland Duty Free. „Með opnun Ísland – Duty Free mun vöruframboðið taka nokkrum breytingum og vöruúrval aukast en sérstök áhersla verður lögð á fjölbreytt framboð íslenskra vörumerkja þar sem að lágmarki 30% af öllu vöruframboði verður íslenskt,“ segir í tilkynningunni. Umdeildar breytingar sagðar ýta undir einokun Fyrirhugaðar breytingar á rekstri fríhafnarverslana hafa verið nokkuð umdeildar að undanförnu. Fram hefur komið í fréttum að það er þýska fyrirtækið Heinemann sem tekur við rekstri fríhafnarinnar að undangengnu útboðsferli um sérleyfi til reksturs verslunarinnar sem fram fór í fyrra. Félag atvinnurekenda hefur til að mynda lýst áhyggjum af því að nýr rekstraraðili hafi krafið framleiðendur um að lækka vöruverð, en framkvæmdastjóri félagsins hefur sagt íslenska ríkið hafa með þessu framselt Heinemann einokunarstöðu á Keflavíkurflugvelli. Fjármála- og efnahagsráðherra deilir hins vegar ekki þeim áhyggjum Félags atvinnurekenda en haft var eftir ráherranum í fréttum á dögunum að „í markaðshagkerfi þurfa menn bara að synda.“ Markmiðið að gera upplifun viðskiptavina sem ánægjulegasta Ekki er vikið að þessum áhyggjum í tilkynningu nýs rekstraraðila en haft er eftir Frank Hansen, framkvæmdastjóra Ísland Duty Free, í tilkynningunni að um sé að ræða ánægjuleg tímamót. „Við höfum einsett okkur að bjóða viðskiptavinum okkar upp á framúrskarandi úrval af erlendum og íslenskum vörum. Þær breytingar sem við erum að gera á verslununum er eingöngu fyrsta skrefið í vegferð næsta árið, þar sem verslanir okkar í Keflavík verða endurhannaðar með það að markmiði að gera upplifun viðskiptavina sem ánægjulegasta. Þegar verslanir okkar verða komnar í sína endanlegu mynd á næsta ári mun það ekki fara fram hjá nokkrum sem þar verslar að hann er staddur á Íslandi, það mun endurspeglast í hönnun, miklu úrvali af íslenskum vörumog fjölbreyttum tilboðum til okkar viðskiptavina,“ er haft eftir Frank í tilkynningunni. Meðfylgjandi mynd sem barst ásamt fréttatilkynningunni sem sýnir hvernig hönnun verslananna mun líta út þegar endanlegt útlit lítur dagsins ljós á næsta ári. Einhvern veginn svona mun fríhafnarverslun Ísland Duty Free líta út.Ísland – Duty Free
Keflavíkurflugvöllur Verslun Neytendur Mest lesið Löggan bankaði upp á á skírdag Neytendur „Flestir sem eru á þessum lista eru dánir“ Neytendur Mælir með eistnesku poppi til að vekja börnin almennilega Atvinnulíf Dótturfélagið úrskurðað gjaldþrota Viðskipti innlent Traustur samstarfsaðili í byggingariðnaði Samstarf Stóra apasjálfu-málið vekur upp enn fleiri spurningar Atvinnulíf Eiginkona stofnandans tekur við stjórnartaumunum Viðskipti innlent Ný þjálfun í golfi: „Ég vildi að sjálfsögðu ná meiri árangri“ Atvinnulíf Indó tekur upp gjaldeyrisálag: „Erfitt en nauðsynlegt skref“ Viðskipti innlent Færðu Finnum Jónsbók Viðskipti innlent Fleiri fréttir Færðu Finnum Jónsbók Eiginkona stofnandans tekur við stjórnartaumunum Indó tekur upp gjaldeyrisálag: „Erfitt en nauðsynlegt skref“ Dótturfélagið úrskurðað gjaldþrota Vara við svikaherferð í nafni bankans Auglýsa eftir sérfræðingum í Litáen og endurskipuleggja deild Endurræsing hafin hjá Norðuráli B12 Space gjaldþrota Hafa lokið ellefu milljarða króna fjármögnun Yngsti bílasali landsins á lánsbíl frá mömmu Birta Karen ráðin til Viðskiptaráðs Algengast að færri en fjórir skoði eign í fyrstu viku á sölu Ríkið fær tuttugu milljarða frá Landsvirkjun Prentsmiðjan Ísafold gjaldþrota: „Þetta er bara vonlaus business" Samningur um World Class í Eyjum ekki stöðvaður en enn til skoðunar Ráðin forstöðumaður laganáms við lagadeild HR Dagar hf. ráða nýjan fjármálastjóra Hvað spara börnin mín á því að sleppa bílakaupum? „Þetta er ekki græðgi“ Semja um kaup Lyfju á Borgarapóteki Spá Íslandi áfram í topp tíu í landsframleiðslu Ráðin nýr sjálfbærnistjóri Póstsins Sprotafyrirtæki í alvarlegri stöðu Samkeppniseftirlitið ógildir samruna Ferro zinks og Metals Eldsneytisbirgðastaða Icelandair góð en fylgst er með stöðunni Fyrsta skemmtiferðaskipið mætt Tekur við sem forstjóri S4S Stýrivextir verði 8,25 prósent fyrir árslok Stefna Rannís vegna neitunar um endurgreiðslu Ársfundur Orkuveitunnar í beinni á Vísi Sjá meira