Eignarhaldsfélag Ingu og hirðin hennar Davíð Bergmann skrifar 21. janúar 2025 16:01 Ég er ekki hissa á að stjórnarmyndunarviðræðurnar hafi tekið svona stuttan tíma, eins og raun bar vitni fyrir Ingu og hirðina hennar því hún seldi hugsjónina og stefnuna á útsölu bara til þess eins að komast til valda. Reyndar held ég að stefnan hafi verið engin og ekki heldur hugsjónin, þetta hafi allt saman verið eitt leikverk í gegnum árin. Ég spái því að þessi flokkur hennar eigi eftir að þurrkast út eins og Vinstri grænir og Píratar. Það verður engin eftirspurn eftir slíkum flokki sem fer bara eftir því hver vindáttin er hvert hann stefnir. Hefur einhvern tímann verið haldinn landsfundur hjá flokknum sem hlýtur að vera erfitt þar sem flokkurinn er ekki skráður sem stjórnmálasamtök, svo ég vitni beint í Morgunblaðið: „Skrifstofa Alþingis hefur staðfest að Flokkur fólksins uppfylli ekki skilyrði fyrir úthlutun fjárstyrkja til stjórnmálaflokka. Flokkurinn hefur þegið 240 milljónir króna þrátt fyrir að vera enn skráður sem „félagasamtök“ í fyrirtækjaskrá.“ 240 milljónir í ríkisstyrk til flokks sem er ekki skráður sem stjórnmálaflokkur Ekki ætlar fjórða valdið, fjölmiðlar þessa lands, að láta hana komast upp með það að segja að þetta hafi bara verið mistök þar sem liðin eru átta ár síðan það átti að skrá Flokk fólksins sem stjórnmálasamtök? Hvaða leikrit er þetta og getur svona flokkur setið í ríkisstjórn Íslands? Hver er trúverðugleikinn hérna? Það kæmi mér ekki á óvart að þarna sé einhver bókhaldsleikfimi í gangi. Félagasamtök, en samt að þiggja ríkisstyrk sem stjórnmálaflokkur úr ríkissjóði? Er þetta ekki skjalafals og á það að líðast þegar fólk er komið á þing, og hvað þá í ríkisstjórn? Með réttu ætti að rannsaka þetta mál ofan í kjölinn, hvernig hefur verið farið með almannafé þarna, og mér finnst það vera krafa kjósenda að vita það þegar það er búið að úthluta 240 milljónum til stjórnmálaflokks sem er ekki einu sinni stjórnmálaflokkur í fyrirtækjaskrá. Það tromp að ætla grenja framan í sjónvarpsvélarnar til að búa sér til pólitískt framhaldslíf og halda áfram að reka þetta eignarhaldsfélag fyrir sig og sína held ég að muni ekki selja næst en maður skal ekki útiloka þann möguleika því síðasta fíflið er ekki fætt hér á landi. Ég man ekki betur en að Inga hafi sagt það sjálf í kosningabaráttunni að það ætti ekki einu sinni að hringja í hana nema bætur yrðu skatta- og skerðingarlausar upp að 450.000 krónum, og hún myndi ekki kvika frá því. Blekið er varla orðið þurrt þegar eignarhaldsfélag „félagasamtök“ Ingu Sæland er búið að selja sál sína, stefnur og hugsjónir bara til þess eins að komast að kötlunum, ef þetta er ekki popúlismi í pólitík þá er hann ekki til. Eða hvað skyldi nú okkar helsti sérfræðingur í popúlisma segja um það, Eiríkur Bergmann prófessor í stjórnmálafræði? Soffía frænka í Kardemommubænum Stefnan um Evrópusambandið fór út um gluggann þegar Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir brosti til hennar sem hún sagði að væri ekki á dagskrá og væri andstæðingur þess, og það sama var sagt með Borgarlínuna, öll prinsip fokin út í veður og vind og þessi flokkur stendur ekki fyrir neitt nema innistæðulaus loforð. Það hefur heldur betur heyrst í henni í pontu niðri á þingi þar sem hún hefur sett á svið hvern leikþáttinn á fætur öðrum sem sumir hefðu getað passað Kardemommubænum velþegar Soffía frænka fer upp á há-a c-ið á milli þess sem hún hefur verið með dramaleikþættina með grátstafina í hálsinum yfir fátækt á Íslandi og sérlagi barna. Það var á milli falsgeyplubrosanna og söngatriðanna til sýna hvað hún væri nú alþýðuleg. Ég hef aldrei keypt þessa leikþætti hennar og hef alla tíð þótt þeir klénir og lélegir. Hún hefur aldrei verið neitt annað en lélegur leikari í mínum huga og jafn lélegur stjórnmálamaður. Hvernig er hægt að taka mark á svona stjórnmálamanni sem varla er búinn að snúa bakinu í kjósendur? Þá er hún búin að svíkja allt sem hún segist standa fyrir svo er hún ekki einu sinni í skráðum stjórnmálaflokki. Er það löglegt? Hvað þá að bjóða sig fram og komast í ríkisstjórn? Hvaða rugl er þetta eiginlega! Það loforð um að bætur skyldu vera skatta og skerðingar lausar upp að 450.000 kr. var fokið út í veður og vind strax þegar fyrsta símtalið kom frá Kristrúnu, þegar henni og hennar hirð var boðið að koma til stjórnarmyndunarviðræðna þá var gefinn afsláttur af öllu og hún afhjúpaði það sem þetta eignarhaldsfélag er, með ekkert innihald, allt þetta orðagjálfur niður á þingi í gegnum árin var ekkert annað en froða, svo ég taki það orð frá henni sem hana var svo tamt um að nota sjálf. Ragnar Reykás Þessi nýi samgöngu- og sveitarstjórnarráðherra hlýtur að vera Ragnar Reykás í dulargervi, sem var einu sinni helsti andstæðingur Borgarlínunnar; eitt af hans fyrstu embættisverkum var að mæta í Nautholtsvík með gulan hjálm og í neongulu vesti að taka fyrstu skóflustunguna fyrir brú sem er fyrsti áfangi í gerð Borgarlínunnar. Það er sá hinn sami sem fór fyrir hóp sem er á móti bókun 35 sem ætlar að sitja hjá eða samþykkja þau lög á komandi þingi bara til þess eins að geta fengið að sitja áfram í ráðherrastóli. Eins hjákátlegt og það hljómar þá reyndi hann að verja það í Silfrinu í gær að hann væri skráður á eyðibýli í Arnarfirði með lögheimili sitt og væri að þiggja greiðslur að upphæð 185.000 kr. á mánuði til að geta keyrt um í kjördæmi sínu til að hitta kjósendur sína. Hver tekur mark á svona manni? Svo fólk átti sig á upphæðinni og þetta sé sett í samhengi þá er hann að fá 8.880.000 á kjörtímabilinu í búsetustyrk sem hann ætlar að nota til aksturs. Ekki veit ég hvernig hann ætlar að fara að þessu og hafa tíma til þess að keyra svona mikið á kostnað okkar skattgreiðanda. Hvernig er hægt að taka mark á svona manni, hvað þá þegar hann situr í umboði okkar í ráðherrastól? Tvöföldum launum Síðan er það borgarfulltrúinn Kolbrún Baldursdóttir sem komst inn á þing sem þiggur laun hjá okkur skattgreiðendum á tveimur stöðum og skammast sín ekki í mínútu fyrir það. Konan sem ætlar að berjast fyrir fátæklingana og ekki síst börn þeirra og hefur verið hvað mest hávær um spillingu í þeirri tíð sem hún sat í borgarstjórn, þá kemur bara í ljós að það er sama rassgatið undir henni eins og hinum sem hún er að gagnrýna, þarna ríður siðblindan ekki einteymingi. Það er ekki mikill trúverðugleiki hér á ferð í þessu en Ingu Sælands hefur tekist blinda landsmenn og sér í lagi þá sem hafa það sem verst í þessu samfélagi, segjast vera málsvari fátæka fólksins og hennar hirð sem er engin innistæða fyrir. Þetta fólk er bara að hugsa um sig og sína. Svör Eyjólfs Ármannssonar „Ragnar Reykás“ endurspeglaði svo vel í gær í þættinum Silfrinu á RÚV um hvað þetta fjallar. Mér sýnist verkum þeirra bara á þessum örfáu vikum sem þau hafa verið við völd ekki boða gott og mig hryllir við tilhugsunina að þetta fólk sé komið í ríkisstjórn Íslands; Mig grunar að það muni aldrei skapast friður í kringum þetta fólk og ég ætla að setjast við sjónvarpið með popp og coke þegar alþingi Íslendinga verður sett og fylgjast með leikriti fáránleikans og segja upp enska boltanum til að hafa tíma til að fylgjast með þessu. Höfundur er áhugamaður um betra samfélag og Miðflokksmaður. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Davíð Bergmann Mest lesið Norræna módelið: Af hverju refsum við kaupendum en ekki þeim sem selja? Drífa Snædal Skoðun Hægrisveiflan ýkta Egill Ö. Hermannsson Skoðun Þú átt nóg og þú ert nóg Ragnhildur Katla Jónsdóttir Skoðun Eru andstæðingar þjóðarmorðs í Palestínu sérlegir stuðningsmenn Hamas-samtakanna? Finnur G Olguson Skoðun Ráðherrann sem skiptir litlu máli Arnar Sigurðsson Skoðun Þroskahjálp 50 ára: Krefjumst þess að stjórnvöld standi við þau réttindi sem þau hafa sjálf lögfest Bryndís Snæbjörnsdóttir Skoðun Halldór 31.10.26 Halldór Sundlaugin er ekki vandamálið Unnur Helga Óttarsdóttir Skoðun Vafasama Viðreisn Júlíus Valsson Skoðun Hvað hafa börnin gert fyrir okkur? Skoðun Skoðun Skoðun Hvað viltu verða þegar þú verður stór? Jónína Lovísa Kristjánsdóttir skrifar Skoðun Vafasama Viðreisn Júlíus Valsson skrifar Skoðun Þú átt nóg og þú ert nóg Ragnhildur Katla Jónsdóttir skrifar Skoðun Eru jólin hátíð barnanna eða bara þeirra sem hafa efni á þeim? Inga V. Henriksen Bergdal skrifar Skoðun Hægrisveiflan ýkta Egill Ö. Hermannsson skrifar Skoðun Ráðherrann sem skiptir litlu máli Arnar Sigurðsson skrifar Skoðun Þroskahjálp 50 ára: Krefjumst þess að stjórnvöld standi við þau réttindi sem þau hafa sjálf lögfest Bryndís Snæbjörnsdóttir skrifar Skoðun Norræna módelið: Af hverju refsum við kaupendum en ekki þeim sem selja? Drífa Snædal skrifar Skoðun Hvað hafa börnin gert fyrir okkur? skrifar Skoðun Hugmyndakassinn Perla Hafþórsdóttir skrifar Skoðun Losun Íslands á jarðefnaeldsneyti og ómarkviss og ósanngjörn skattheimt Aðalsteinn Júlíus Magnússon skrifar Skoðun Hvar endar ráðaleysið? Þegar sveitarfélögin eru komin í gildru skammtímaniðurskurðar Sigurður Sigurðsson skrifar Skoðun Hvers virði er verndarskyldan ef upplýsingagjöfin skapar hættuna? Herdís Ósk Sveinbjörnsdóttir skrifar Skoðun Óðinn heldur fyrir heila augað Hrafnkell Tumi Kolbeinsson skrifar Skoðun Hneykslan og hræsni: Hvers vegna sum hatursorðræða er ásættanleg en önnur ekki Ian McDonald skrifar Skoðun Samstaða um Suðurnesin sem drifkraft vaxtar skrifar Skoðun Eru andstæðingar þjóðarmorðs í Palestínu sérlegir stuðningsmenn Hamas-samtakanna? Finnur G Olguson skrifar Skoðun Sundlaugin er ekki vandamálið Unnur Helga Óttarsdóttir skrifar Skoðun Það er ekki nóg að hækka róminn Þorgrímur Sigmundsson skrifar Skoðun Má manneskja skipta um trú — og halda lífi? Hilmar Kristinsson skrifar Skoðun Tilkoma gervigreindar – kötturinn í Undralandi? Ólafur Aron Sveinsson skrifar Skoðun Veistu hvaða netvíti á að varast? Vilhjálmur Alvar Þórarinsson skrifar Skoðun Borgarnesréttlætið – saga úr umferðinni Guðmundur H Guðjónsson skrifar Skoðun Viðskiptaráð og Láki jarðálfur Andri Snær Magnason skrifar Skoðun Fertugt félag sem ætlar ekki að setjast í helgan stein Guðrún Barbara Tryggvadóttir skrifar Skoðun Ráðherra innviða tók af skarið: Reglugerð um vanhæfismörk við stjórn ökutækis loks gefin út Vilhjálmur Hjálmarsson skrifar Skoðun Um fóbíu og hatur á Íslam Sverrir Agnarsson skrifar Skoðun Gerast enn kraftaverk á Íslandi? Valerio Gargiulo skrifar Skoðun Viðey – perla í dvala Gunnar Salvarsson skrifar Skoðun Er öryggi barna sökkvandi skip? Alfa Jóhannsdóttir skrifar Sjá meira
Eru andstæðingar þjóðarmorðs í Palestínu sérlegir stuðningsmenn Hamas-samtakanna? Finnur G Olguson Skoðun
Þroskahjálp 50 ára: Krefjumst þess að stjórnvöld standi við þau réttindi sem þau hafa sjálf lögfest Bryndís Snæbjörnsdóttir Skoðun
Skoðun Eru jólin hátíð barnanna eða bara þeirra sem hafa efni á þeim? Inga V. Henriksen Bergdal skrifar
Skoðun Þroskahjálp 50 ára: Krefjumst þess að stjórnvöld standi við þau réttindi sem þau hafa sjálf lögfest Bryndís Snæbjörnsdóttir skrifar
Skoðun Norræna módelið: Af hverju refsum við kaupendum en ekki þeim sem selja? Drífa Snædal skrifar
Skoðun Losun Íslands á jarðefnaeldsneyti og ómarkviss og ósanngjörn skattheimt Aðalsteinn Júlíus Magnússon skrifar
Skoðun Hvar endar ráðaleysið? Þegar sveitarfélögin eru komin í gildru skammtímaniðurskurðar Sigurður Sigurðsson skrifar
Skoðun Hvers virði er verndarskyldan ef upplýsingagjöfin skapar hættuna? Herdís Ósk Sveinbjörnsdóttir skrifar
Skoðun Hneykslan og hræsni: Hvers vegna sum hatursorðræða er ásættanleg en önnur ekki Ian McDonald skrifar
Skoðun Eru andstæðingar þjóðarmorðs í Palestínu sérlegir stuðningsmenn Hamas-samtakanna? Finnur G Olguson skrifar
Skoðun Ráðherra innviða tók af skarið: Reglugerð um vanhæfismörk við stjórn ökutækis loks gefin út Vilhjálmur Hjálmarsson skrifar
Eru andstæðingar þjóðarmorðs í Palestínu sérlegir stuðningsmenn Hamas-samtakanna? Finnur G Olguson Skoðun
Þroskahjálp 50 ára: Krefjumst þess að stjórnvöld standi við þau réttindi sem þau hafa sjálf lögfest Bryndís Snæbjörnsdóttir Skoðun