Dans verkalýðsleiðtoga í kringum gullkálfinn Ole Anton Bieltvedt skrifar 21. desember 2024 06:03 Ég hélt lengi vel, að formaður Verkalýðsfélags Akraness og Starfsgeinasambandsins, Vilhjálmur Birgisson, væri „góður maður og gegn“, vænn og velviljaður gagnvart „Guði og mönnum“ - dýr, umhverfi, náttúra og lífríki jarðar meðtalin -, ekki maður peningahyggju og græðgi, hvorki fyrir hönd sjálfs sín né annarra. Framganga hans og málflutningur í hvalveiðimálum, sem hann styður með ráðum og dáð, eins og á mála hjá Kristjáni Loftssyni væri, er mér því mikið undrunarefni og vonbrigði. Lengi má manninn reyna. Ljóðlína úr Hávamálum rifjast upp: „Margur verður af aurum api“. Vilhjálmur réttlætir málstað sinn og baráttuna fyrir áframhaldandi hvalveiðum með því, að starfsmenn Hvals hf séu í Verkalýðsfélagi Akraness, þeir hafi miklar og góðar tekjur af starfi sínu, borgi útsvar og skatta af þessum tekjum. Hrein peningahyggja Þessi afstaða er því hrein peningahyggja, og er þetta enn eitt dæmi þess, að tilgangurinn helgar meðalið, líka þó ljótt og lágkúrulegt sé. Vilhjálmur hefur svo bætt því við, svona til að reyna að vara andlitið, sýna sína mannúð og velvild til dýra, að enginn væri að leika sér að því að láta þess dýr þjást við veiðar. Þetta er auðvitað hreint froðusnakk, því Vilhjálmur og allir, sem vita vilja, vita full vel, að Hvalur hefur ekki getað og mun aldrei geta veitt hvali á manneskjulegan og dýravænan hátt, þannig, að þeir drepist án þjáningar. Sú mynd, sem MAST dró upp í skýrslu sinni frá 8. maí í fyrra, fyrir veiðitímabilið 2022, þar sem fram kom, að lífið hafði verið murkað úr 41% dýranna með hörmulegum hætti, er sennilega sú skásta, sem verið gat, því veiðimenn vissu, að eftirlitsmenn væru um borð, og vönduðu sig væntanlega eftir föngum. Hvalur neitaði á sínum tíma að skila veiðidagbókum fyrir veiðitímabilið 2014-2018, þrátt fyrir skyldu til þess skv. veiðileyfi - það var eitt af eindregnum og skýrum skilyrðum leyfisins -, og komst reyndar upp með það, eins og önnur lögbrot, en það er auðvitað vísbending um, að annað hvort hafi hrikalegar meiðingar og limlestingar átt sér stað á þessu veiðitímabili, sem enginn mátti sjá, eða þá, að veiðimenn hafi skotið, og sært eða drepið, alfriðaða steypireyði. Eitthvað leyndist þar svo illt og brennandi hættulegt fyrir Kristján Loftsson, að hann lét frekar ganga yfir sig sakfellingu fyrir sakadómi Lögreglustjórans á Vesturlandi, fyrir þetta brot, skv. sakamálakæru okkar í Jarðarvinum, heldur en að afhenda bækurnar. Vilhjálmur og allir aðrir sjá því og vita vel, að hrikalegar meiðingar og limlestingar eru og verða fastur liður í hvalveiðum. En, líka hjá Vilhjálmi, eins og mörgum öðrum - oft hægrimenn og íhaldsmenn í pólitík, Vilhjámur virðist undarlegt nokk vera kominn í þann hóp -, eru það peningarnir sem telja og gilda; skítt með kvalræði saklausra og varnarlausra dýra, hér friðsamra og háþróaða risa úthafanna, spendýra, sem kenna hvert öðru, vinna saman og bindast nánum vina- og fjölskylduböndum. Inn í þess mynd kemur svo sú staðreynd, að hvalirnir spila stóra rullu ekki bara í lífríki hafsins, heldur líka jarðarinnar og lofthjúps. Þeir eru í reynd ómissandi hluti af lífríkinu, en einn hvalur tekur til sín og geymir kolvetni á við 1.500 tré, og úrgangur og hræ hvala leggja neðstu lögum hafanna til grundvallar næringu, sem svif og aðrar frumverur þar lifa á og þróast svo í að vera grunnnæring hratt vaxandi fiska. Alþjóðlegi gjaldeyrissjóðurinn lagði mat á verðgildi hvala, út frá bæði vistfræðilegum og efnahagslegum sjónarmiðum, og komst að þeirri niðurstöðu, að hver hvalur væri USD 2ja milljóna virði; 270 milljóna. Aðeins 10 lifandi hvalir hafa því það verðgildi, sem Hvalur hf fékk fyrir að drepa og selja hundruð hvala í fyrra, eftir að hafa misþyrmt og limlest mörgum þeirra, kvalið þá til dauða, af tilfinningaleysi og grimmd. Hvalir ekki auðlind Íslendinga Sú hugmyndafræði Vilhjálms, reyndar líka Bjarna Benediktssonar, þrefallds ráðherra, þrátt fyrir vanhæfi til ráðherradóms fyrir ári síðan, að langreyðar séu náttúruauðlind Íslendinga, eru byggðar á grunnhyggju og vanþekkingu. Flestir hvalir fæðast við vestur strönd Afríku og flakka svo um heimshöfin. Langreyðar eru hér við land aðeins í par mánuði á ári, og tilheyra Íslendingum ekkert frekar eða meir en tugum annarra þjóða sitt hvoru megin Atlantsála, ef þeir þá tilheyra mönnum yfir höfuð. Það er í raun forneskjulegt og siðlaust sjónarmið, að önnur, háþróðuð og merkileg spendýr tilheyri okkur mönnum; hver gaf okkur þau, hvernig eignuðumst við þau, hver gaf okkur réttinn til að nota þau, nýta og misnota, líka með kvalræði og limlestingum? Auðvitað eiga önnur spendýr - við menn erum líka bara spendýr, reyndar þau gráðugustu og grimmustu -, rétt á að fá að lifa sínu eigin, sjálfstæðu og náttúruegu lífi, í friði fyrir djöfulgangi manna. Ég hnýtti hér að ofan nokkuð í hægrimenn og íhaldsmenn. Því miður er það ekki af tilefnislausu. Það hefur marg sannast, líka hér, að einmitt í þeim hópi hafa margir litla tilfinningu fyrir dýrum, náttúru og lífríki, þó að, án þess að þetta allt sé verndað og varðveitt, mun mannkynið ekki komast af. Skammvinnur gróði gildir. Í Katalóníu á Spáni var tekizt á um það 2010, hvort að banna ætti nautaat. Hægri- og íhaldsflokkarnir, voru á móti banni, en miðju og vinstri öfl með. Þar snérist málið líka um stórfelldar tekjur, störf, skatta og skyldur, sem mikill hópur manna, frá ræktendum nautanna til eigenda nautaatsleikvanganna höfðu haft og vildu hafa. Þúsundir starfa í húfi. Þar réðu sömu sjónarmið og hjá Vilhjálmi Birgissyni. Peningurinn gildir. Skítt með kvalræði saklausra dýra, en, sem betur fer sigruðu Vilhjálmarnir ekki, heldur mannúð, virðing og velvild til dýra og náttúru, lífríkisins og, í víðari skilningi, jarðarinnar okkar. Norðmenn stunduðu loðdýrahald í 100 ár. Þar voru allt að 300 minnka- og refabú, þar sem dýrin voru haldin kvalarhaldi í litlum vírabúrum alla ævi og svo kæfð til dauða með eiturgasi. Yfir ein milljón dýra var drepin árlega og skinn seld. Feykilegir fjárhagslegir hagsmunir, störf og afkoma á landsbyggðinni í húfi. En þar urðu Vilhjálmarnir líka undir, Guði sé lof. Síðasta loðdýrabúi Noregs var lokað 1. janúar í fyrra. Þessi lokaorð: Vilhjálmur, heldurðu ekki, að Akurnesingar séu nægilega klárir og duglegir til að spjara sig, jafnvel vel án þess að byggja afkomu sína á dýraníði!? Það gengur bara býsna vel hjá öðrum landsmönnum. Höfundur er stofanandi og formaður Jarðarvina, samtaka um dýra-, náttúru- og umhverfisvernd. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Ole Anton Bieltvedt Mest lesið Hamfarir Hildar Haraldur F. Gíslason Skoðun Sjálflærðir sérfræðingar í leikskólamálum Ingibjörg Sólrún Ágústsdóttir Skoðun Lægri húsnæðisvextir með evru (staðfest) Dagur B. Eggertsson Skoðun Nýr golfvöllur í Reykjavík Magnea Gná Jóhannsdóttir Skoðun Vatnsaflsvirkjanir eru æði Þorgerður María Þorbjarnardóttir Skoðun Hvar er forgangsröðun ríkisstjórnarinnar? Dagmar Valsdóttir Skoðun Foreldrahús Kristín Davíðsdóttir Skoðun Íslensk orka er svarið við olíukrísunni Jóhann Páll Jóhannsson Skoðun Innritun í framhaldsskóla – samspil fagmennsku og sanngirni Magnús Þór Jónsson Skoðun Styrkjum heilsubæinn Hveragerði Maria Araceli,Berglind Ósk Guttormsdóttir Skoðun Skoðun Skoðun Mitt uppáhalds stefnumál? Systkinaforgangur Bjarnveig Birta Bjarnadóttir skrifar Skoðun Ekki benda á mig Guðmundur Stefán Gunnarsson skrifar Skoðun Vönduð niðurstaða Feneyjanefndarinnar Pawel Bartoszek skrifar Skoðun Horfumst í augu við staðreyndir Eyþór Fannar Sveinsson skrifar Skoðun Hafa skal náttúruvernd í heiðri allar stundir! Elva Rakel Jónsdóttir,Guðmundur Þ. Guðmundsson,Rakel Garðardóttir,Rán Flygenring,Stefán Jón Hafstein skrifar Skoðun Vatnsaflsvirkjanir eru æði Þorgerður María Þorbjarnardóttir skrifar Skoðun Innritun í framhaldsskóla – samspil fagmennsku og sanngirni Magnús Þór Jónsson skrifar Skoðun Hamfarir Hildar Haraldur F. Gíslason skrifar Skoðun Græna gangan - göngum fyrir hafið Guðrún Hallgrímsdóttir,Maríanna Traustadóttir skrifar Skoðun 10 loforð til ungs fólks á besta stað í heimi, Hafnarfirði Viktor Pétur Finnsson skrifar Skoðun Lýðheilsa er undirstaða sterks samfélags Kolbrún Magnúsdóttir skrifar Skoðun Sjálflærðir sérfræðingar í leikskólamálum Ingibjörg Sólrún Ágústsdóttir skrifar Skoðun Ég lofa að líta ekki undan Ingibjörg Magnúsdóttir skrifar Skoðun Nýr golfvöllur í Reykjavík Magnea Gná Jóhannsdóttir skrifar Skoðun Þegar bygging er ekki orðin að húsi: Ný nálgun í tryggingum framkvæmda Heiður Huld Hreiðarsdóttir skrifar Skoðun Lýðfullveldi Aðalstein Júlíus Magnússon skrifar Skoðun Árangur á vakt Framsóknar í Suðurnesjabæ Anton Guðmundsson skrifar Skoðun Hvar er forgangsröðun ríkisstjórnarinnar? Dagmar Valsdóttir skrifar Skoðun Lægri húsnæðisvextir með evru (staðfest) Dagur B. Eggertsson skrifar Skoðun Foreldrahús Kristín Davíðsdóttir skrifar Skoðun Börn án verndar: ofbeldi milli systkina sem fellur á milli kerfa Þórdís Bjarnleifsdóttir skrifar Skoðun Íslensk ofbeldismenning og réttarríkið Hjörvar Sigurðsson skrifar Skoðun Lykill að jöfnum tækifærum Isabel Alejandra Diaz skrifar Skoðun Jöfnuður, ábyrgð og uppbygging Stefán Þór Eysteinsson skrifar Skoðun „Selfies“ eru ekki hagsmunagæsla Jóhann Ingi Óskarsson skrifar Skoðun Dónaskapur Reykjavíkurborgar Lárus Blöndal Sigurðsson skrifar Skoðun Sterkari saman Sindri S. Kristjánsson skrifar Skoðun Popúlismi formanns VR Sólveig Anna Jónsdóttir skrifar Skoðun Snúum Reykjavík við Björg Magnúsdóttir skrifar Skoðun #ÉGLOFA að láta ekki allt brenna til kaldra kola Alfa Jóhannsdóttir skrifar Sjá meira
Skoðun Hafa skal náttúruvernd í heiðri allar stundir! Elva Rakel Jónsdóttir,Guðmundur Þ. Guðmundsson,Rakel Garðardóttir,Rán Flygenring,Stefán Jón Hafstein skrifar
Skoðun Þegar bygging er ekki orðin að húsi: Ný nálgun í tryggingum framkvæmda Heiður Huld Hreiðarsdóttir skrifar
Skoðun Börn án verndar: ofbeldi milli systkina sem fellur á milli kerfa Þórdís Bjarnleifsdóttir skrifar