Rautt spjald eftir þrjátíu sekúndur en unnu samt úrslitaleikinn Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 1. desember 2024 11:03 Marlon Freitas hjá Botafogo hleypur hér um með Copa Libertadores bikarinn ásamt liðsfélögum sínum. Sögulegur dagur fyrir brasilíska félagið. Getty/Buda Mendes Brasilíska félagið Botafogo er Suðurameríkumeistari félagsliða í fótbolta eftir sigur á Atlético Mineiro í úrslitaleik Copa Libertadores keppninnar.
Botafogo vann leikinn 3-1 sem var spilaður á Estadio Monumental leikvanginum í Buenos Aires í Argentínu. Leikmenn Botafogo voru manni færri nær allan leikinn því leikmaður þeirra, Gregore, fékk rauða spjaldið eftir aðeins þrjátíu sekúndur. Gregore var sendur í sturtu eftir ljótt brot á Fausto Vera en það blæddi úr hausnum á Vera eftir þessa fljúgandi tæklingu Gregore. Botafogo komst samt í 1-0 á 35. mínútu þegar Luiz Henrique skoraði. Liðið fékk síðan vítaspyrnu sjö mínútum síðar þar sem Alex Telles, fyrrum leikmaður Manchester United, kom þeim í 2-0. Mineiro minnkaði muninn í upphafi seinni hálfleiks þegar Eduardo Vargas skallaði inn hornspyrnu Hulk. Botofogo stóðs pressuna og Junior Santos innsiglaði sigurinn í uppbótatíma. Botafogo tryggði sér um leið sæti í Heimsmeistarakeppni félagsliða í sumar. Brasilíumenn áttu bæði liðin í úrslitaleiknum og hafa nú unnið keppnina sex ár í röð. Þetta var líka þriðja árið í röð sem bikarinn fer til Rio de Janeiro því Fluminense vann keppnina 2023 og Flamengo vann hana 2022.
Brasilía Mest lesið Ítalinn ungi hágrét eftir sögulegan heimsmeistaratitil Formúla 1 Fremsta afreksfólk Íslands fær 600 þúsund í verktakalaun Sport Sjáðu mark Havertz og „augljósa vítið“ sem ekki var dæmt Enski boltinn Halldór tekinn til starfa með nýja teyminu Íslenski boltinn Eiður fann til með Liverpool Enski boltinn Ísland náði fram hefndum og fagnaði titlinum Sport Tryggvi hafði betur gegn Rubio Körfubolti „Viss um að við gerðum alla ákaflega stolta“ Enski boltinn Tómas riðaði eftir höfuðhögg og endaði á sjúkrahúsi Fótbolti Hansen með freistandi tilboð frá Akureyri Íslenski boltinn Fleiri fréttir Markvörður ársins náði að stöðva Orra Tómas riðaði eftir höfuðhögg og endaði á sjúkrahúsi Halldór tekinn til starfa með nýja teyminu Sjáðu mark Havertz og „augljósa vítið“ sem ekki var dæmt „Viss um að við gerðum alla ákaflega stolta“ Góðar fréttir fyrir landsliðið og Mikael Egill á uppleið Meistararnir á toppnum eftir langþráðan sigur á Anfield Júlíus með ný skilaboð til landsliðsþjálfarans Real heldur sig nálægt Barcelona Eiður fann til með Liverpool Hansen með freistandi tilboð frá Akureyri Eiður með gæsahúð á Anfield Ída Marín og Guðrún skoruðu í stórsigri Marc McAusland tekur við Njarðvík Ekki unnið á Anfield í 14 ár Pálmi Rafn tekur hanskana af hillunni og semur við Njarðvík Hildur skoraði í sigri Fabregas hafði betur gegn Þóri Í hvínandi gír í Noregi Emelía tryggði Köge sigur Segir félagið í skítnum Piers Morgan baunar á Carragher Klefinn þagnaði: „Eiginlega bara mjög óþægilegt“ Sjáðu mörkin og rauðu spjöldin: Skoraði sitjandi og neyðarlegt sjálfsmark Tvær tvennur þegar Börsungar tættu gestina í sig Bilun hjá Suzuki skipti sköpum Moreira stal senunni í slagnum um Mílanó og hélt Alberti á toppnum Sú belgíska lék ljótan leik en Víðir valdi Putellas og Rodri Andreulegt upplegg í sigri Anderlecht Dramatík í stórleiknum í Þýskalandi Sjá meira