Skoðun

Flokkar sem vara við sjálfum sér

Þorbjörg S. Gunnlaugsdóttir skrifar

Við í Viðreisn höfum lagt áherslu á jákvæða kosningabaráttu. Við finnum meðbyr. Fólk vill breytingar.

Við höfum verið að hitta fólk um land allt og hlustað á það sem fólk hefur að segja.

Ákall kjósenda er alls staðar það sama. Að hér verði mynduð ríkisstjórn sem er samhent og vinnur sameiginlega að hagsmunum fólksins í landinu.

Stefna Viðreisnar er skýr, hópurinn er samhentur og gleðin við völd.

Sjálfstæðisflokkurinn varar við sjálfum sér

Því miður hefur þetta ekki verið raunin hjá flokkum sem óttast nú mjög um fylgi sitt. Flokkum sem hvorki virðast geta rekið kosningabaráttu á árangri né á eigin stefnu. Þá eru spunavélarnar ræstar í von um að hægt sé að rugla kjósendur í ríminu.

Einna skýrast er þetta hjá Sjálfstæðisflokknum. Þeirra helstu stefnumál er að allt sé öðrum að kenna. Söguskýringar eru margar hverjar frumlegar eins og að öll vandamál heimsins séu fundin upp í Reykjavíkurborg.

Sjálfstæðisflokkurinn varar nú ákaft við vinstri beygjum eftir að hafa sjálfur setið í heil sjö ár í stjórn sem Vinstri græn leiddu lengst af. Mælingar sýndu líka að Sjálfstæðismenn voru ánægðari með formann VG en sinn eigin í stóli forsætisráðherra.

Svikin loforð

Sjálfstæðisflokkurinn talar um að Viðreisn ætli að þvinga þjóðina í ESB. Viðreisn óttast ekki kjósendur eins og reyndin virðist í Valhöll. Afstaða okkar er einfaldlega að þjóðin fái sjálf að kjósa um hvort við tökum aftur upp aðildarviðræður við Evrópusambandið. Það verður enginn þvingaður í aðildarviðræður. Þessa ákvörðun tekur íslenska þjóðin sjálf.

Sjálfstæðisflokkurinn gleymir líka alltaf að nefna að þau lofuðu þjóðinni fyrir kosningar 2013 að kjósa um áframhaldandi viðræður við ESB. Þau sviku það við fyrsta tækifæri.

Valkvætt minni vinstri flokkanna

Nýja Samfylkingin og flokkar vinstra megin við hana hafa sagt að Viðreisn sé á leið í hægristjórn með tveimur íhaldsflokkum. Flokkum sem treysta hvorki þjóðinni til að taka ákvörðun um eigin framtíð né konum til að ráða yfir eigin líkama. Samfylkingin nefnir þó helst ekki að hún hefur sjálf myndað ríkisstjórn með Sjálfstæðisflokknum.

Þau gagnrýna líka Viðreisn fyrir að standa með félögum á borð við SÁÁ, Ljósið, Reykjalund, Fæðingarheimilið í Reykjavík, Krabbameinsfélagið og svo mætti lengi áfram telja. Stuðningur Viðreisnar við þessi fallegu félagasamtök kalla þau einkavæðingu.

Þetta sýnir ákveðin vandræði flokkanna við að fóta sig í umræðunni. Og að taugakerfi þeirra er missterkt þegar á reynir.

Skýr framtíðarsýn

Viðreisn hefur valið jákvæða nálgun.

Við erum með skýra stefnu um að mynda samhenta ríkisstjórn út frá miðjunni sem nær niður vöxtum, svo fólk geti keypt íbúð. Og keypt í matinn á einhverju eðlilegu verði.

Við ætlum að skapa grundvöll fyrir nauðsynlegum fjárfestingum í innviðum landsins. Það er nauðsynlegt að taka betur utan um unga fólkið okkar, tryggja betri skilyrði fyrir börn að þroskast, fræðast og líða betur. Það gerum við ekki síst með því að efla heilbrigðisþjónustu, styðja við kennara landsins sem vinna oft við erfiðar aðstæður og lélegan aðbúnað.

Við erum vön því að vinna saman sem eitt lið. Við ætlum okkur líka að vinna með samstarfsflokkum okkar - en ekki gegn þeim eins og fráfarandi ríkisstjórn.

Viðreisn gengur óbundin til kosninga. Atkvæði greitt Viðreisn er atkvæði greitt Viðreisn. Engum öðrum.

Höfundur er oddviti Viðreisnar í Reykjavíkurkjördæmi suður.




Skoðun

Skoðun

Konur hlusta á konur og karla, karlar hlusta á karla

Ásta Björg Björgvinsdóttir,Elíza Geirsdóttir Newman,Helga Ragnarsdóttir,Katla Vigdís Vernharðsdóttir,Lára Rúnarsdóttir,Lilja Sól Helgadóttir,Sóley Stefánsdóttir,Steinunn Camilla Stones skrifar

Skoðun

Enginn á að vera hryggur um jólin

Aldís Amah Hamilton,Hulda Jónsdóttir Tölgyes,Klara Ósk Elíasdóttir,Ragnheiður Gröndal,Rósa Líf Darradóttir,Valgerður Árnadóttir skrifar

Sjá meira


×