Skoðun

Er ein­hver að hlusta?

Hópur 143 Seyðfirðinga skrifar

Á morgun göngum við til kosninga og nýtum lýðræðislegan rétt okkar til að kjósa þá flokka sem spegla hvað best gildi okkar og það samfélag sem við viljum byggja upp. Forsenda þess að lýðræði virki er að almenningur taki þátt í kosningum og velji fulltrúa sína. Þátttaka almennings í kosningum og í umræðu sem snýr að því sem stendur samfélögum næst, er forsenda fyrir trausti okkar á lýðræðið.

En til þess að rödd okkar heyrist, verður einhver að hlusta. Seyðfirðingar hafa hrópað hátt í baráttu sinni gegn sjókvíaeldi í firðinum. Við fylltumst baráttuhug þegar skoðanakönnun á vegum Múlaþings, sem Seyðisfjörður heyrir nú undir, sýndi ótvíræða andstöðu meirihluta íbúa fjarðarins (75%) gegn sjókvíaeldi. En þegar hvorki meirihluti Múlaþings né þingheimur hlustar, þá grefur undan trausti okkar á lýðræðið.

Vilji meirihluta heimamanna hefur verið skýr hvað varðar fyrirhugað sjókvíaeldi í firðinum. Við sögðum, segjum og munum segja, NEI TAKK! Við höfum sent inn sannreyndan undirskriftalista, við höfum gert athugasemdir við strandsvæðaskipulag og bent á ýmsa ágalla er snúa að innviðum samfélagsins og þjóðarinnar. Við höfum endurtekið ítrekað við hlutaðeigandi stofnanir ríkisins, mikilvægi þess að öryggi vegna ofanflóðahættu, siglinga og fjarskipta sé haft að leiðarljósi, -fremur en sérhagsmunir eins fyrirtækis.

Það er ískalt mat okkar að það sé alvarlegt að taka þá áhættu sem fylgir umræddu sjókvíaeldi. Siglingaleið inn fjörðinn, sem í dag telst örugg, myndi verða varhugaverð, sem er raunverulegt mat reyndra sjófarenda sem hafa siglt langan og þröngan fjörðinn áratugum saman. Vistkerfið mun verða fyrir óafturkræfum áhrifum, bleikjustofninn í ám Seyðisfjarðar mun skaðast og eins og dæmin sýna, mun hætta á erfðablöndun við villta laxastofninn aukast verulega. Slíkar breytingar ógna líffræðilegum fjölbreytileika, ógn sem steðjar að allri jörðinni um þessar mundir og krefst hugrekkis að berjast gegn.

Atvinnutækifæri - já takk

Eins og aðrir landsmenn, vilja Seyðfirðingar aukin atvinnutækifæri til framtíðar í byggðarlagið sitt. Slík tækifæri verða að vera á forsendum náttúru og íbúa, svo þau snúist ekki upp í andhverfu sína. Það var mikið högg fyrir samfélagið þegar fiskvinnslan lokaði fyrr á árinu og rúmlega 30 störf hurfu úr bænum. Í samfélagi, þar sem hvert einasta starf skiptir máli, er mikilvægt að taka ekki afdrifaríkar ákvarðanir á röngum forsendum.

Ný atvinnutækifæri þurfa að vera sjálfbær og skapandi, byggja bæði á verkviti og hugviti og vera fjölbreytt og metnaðarfull. Þau þurfa að spretta af áhuga og reynslu íbúa og vera á forsendum samfélagsins til framtíðar. Efla þarf nýsköpun og styðja við það frumkvæði sem fyrir er. Það er mikilvægt að fækka ekki opinberum störfum heldur bæta við og fjölga störfum án staðsetningar og auka hvata fyrirtækja til að flytja störf á landsbyggðina.

Sérkenni Seyðisfjarðar

Með siglingum Norrænu síðan 1975 er Seyðisfjörður í þeirri einstöku aðstöðu að vera næst stærsta gáttin inn í landið fyrir ferðamenn. Ferðaþjónustan reiðir sig því að miklu leyti á örugga siglingaleið inn fjörðinn. Bærinn hefur átt því láni að fagna að sjá ferðatímabilið lengjast og atvinnugreinina verða stöðugri. Verðmætasköpun ferðaþjónustuaðila og hafnarinnar hefur aukist mikið með auknum skipakomum á undanförnum árum. Í þessu liggja mikil verðmæti fyrir lítið bæjarfélag. Þó að margt hafi áunnist, leynast mikil tækifæri í að skapa enn fjölbreyttari störf og bæta upplifun ferðamanna og þar með íbúa.

LungA hátíðin er sjálfsprottið og landsþekkt framtak skapandi Seyðfirðinga, sem fæddi síðar af sér LungA lýðskólann sem hefur starfað í rúman áratug og er enn í vexti. Nemendurnir glæða samfélagið lífi yfir vetrarmánuðina og ungt fólk myndar tengsl við bæinn til framtíðar. Framlag Seyðisfjarðar til menningar á Austurlandi og víðar er óumdeilt. Í bænum er ein þriggja menningarmiðstöðva fjórðungsins og að auki er í bænum öflugt safnastarf, kvikmyndahús, listahátíðir og myndlistarsýningar. Fjöbreytt menningarlíf hefur skapað sterk tengsl langt út fyrir Ísland og mun eiga stóran þátt áfram í mannlífi, hugmyndaauðgi og framtíðartækifærum staðarins.

Hér drögum við línuna

Aðdjúp höfn Seyðisfjarðar hefur í aldanna rás verið uppspretta uppbyggingar, tækifæra og samskipta við umheiminn. Við undirrituð, biðlum til stjórnvalda að þröngva ekki upp á okkur sjókvíaeldi, -gegn vilja meirihluta íbúa. Við óskum eftir samstarfi um mótun metnaðarfullrar atvinnustefnu fyrir samfélagið, þar sem hugsað er til framtíðar, samgöngurnar bættar og sögu okkar og vistkerfinu sýnd full virðing.

Seyðfirðingar drógu línu í sjóinn 12. október 2024 og skilaboðin eru skýr: Hér er línan og yfir hana má ekki fara. (hlekkur hér: Við drögum línu í sjóinn, baráttumynd og fundur í Herðubreið

Um leið og við sem búum og/eða störfum á Seyðisfirði óskum landsmönnum öllum til hamingju með kjördag á morgun, biðlum við til allra þeirra, sem hafa um málið að segja, - að hlusta.

Gleðilegar kosningar!

  • Andrés Filippusson, bóndi
  • Anna Margrét Ólafsdóttir, myndlistarmaður
  • Aðalheiður Borgþórsdóttir, mamma LungA og fyrrum bæjarstjóri Seyðisfjarðarkaupstaðar
  • Apolline Fiara, myndlistarmaður
  • Arnar Klemensson, starfsmaður Vegagerðarinnar
  • Árni Geir Lárusson, tónlistarkennari Seyðisfirði
  • Ásrún Mjöll Stefánsdóttir, smiður og sveitarstjórnarfulltrúi
  • Avantí Pétursdóttir, hjúkrunarfræðingur
  • Bára Mjöll Jónsdóttir og jógakennari
  • Benedikta Guðrún Svavarsdóttir, framkvæmdastýra Haföldunnar hostels
  • Björt Sigfinnsdóttir, verkefnisstjóri og frumkvöðull
  • Celia Harrison, forstöðukona Skaftfells
  • Daði Sigfússon, starfsmaður íþróttamiðstöðvar
  • Damian Luczak. hönnuður og smiður
  • Daníel Örn Gíslason, ljósmyndari
  • Davíð Kristinsson, sjúkraflutningamaður og hóteleigandi
  • Diljá Jónsdóttir, innritunarstjóri Smyrilline
  • Dóra Sigfúsdóttir, vinnuvélakona
  • Dusan Mercak, fjallaleiðsögumaður og ferðaþjónustuaðili
  • Dýri Jónsson, hóteleigandi
  • Einar Roth, byggingarverktaki
  • Elfa Hlín Pétursdóttir, forstöðukona tækniminjasafns Austurlands
  • Elfa Rúnarsdóttir, hjúkrunarfræðingur
  • Elín Ramette, kvikmyndagerðakona
  • Elísabet Maren Guðjónsdóttir leiðsögukona
  • Elvar Már Kjartansson, smiður
  • Emil Smári Guðjónsson, forstöðumaður félagsmiðstöðvarinnar
  • Erna Helgadóttir, verslunareigandi
  • Erna Rut Rúnarsdóttir, sjúkraliði
  • Eva Jasmin, leikskólastarfsmaður
  • Freyr Andrésson, verkamaður
  • Garðar Bachman, kokkur og rekstraraðili Skaftfells bistro
  • Glenn Jackson, kafari
  • Guðjón Egilsson, kokkur
  • Guðlaug Sigfúsdóttir, öryrki
  • Guðlaugur Kristinn Óttarsson, Draugabani og Öreindafræðingur
  • Guðmundur Gunnar Gunnarsson, smiður
  • Guðrún Ásta Tryggvadóttir, kennari Seyðisfjarðarskóla
  • Guðrún Katrín Árnadóttir, fyrrum kennari
  • Guðrún Tinna Thorlacius, verslunareigandi Steinholt og co
  • Guðrún Veturliðadóttir, tónlistarkona og deildarstjóri listadeild
  • Hafþór Harðarson, ferðaþjónustueigandi
  • Halla Dröfn Þorsteinsdóttir, hjúkrunarfræðingur Fossahlíð
  • Hanna Christel Sigurkarlsdóttir, myndlistarkona
  • Harry Caunter, verslunarstjóri
  • Heiðdís Hólm Guðmundsdóttir, myndlistarmaður og verkefnastjóri Lunga skólans
  • Hildur Þórisdóttir, sveitarstjórnarfulltrúi Múlaþingi
  • Hilmar Guðjónsson - brautarstjóri LungA skólans
  • Hilmar Harðarson, ferðaþjónustueigandi
  • Hörður Hilmarsson, bifvélavirki
  • Hugrún Einarsdóttir, starfsmaður við aðhlynningu og nemi
  • Ioana Popovici, myndlistarmaður
  • Ingibjörg Grétarsdóttir, verkefnisstjóri
  • Ingvi örn Þorsteinsson, grafískur hönnuður og ferðaþjónustuaðili
  • Ísold Gná Sigríðar Ingvadóttir, móttökuritari og nemi
  • Ívar Andrésson, sjómaður
  • Óli Jóhannes Gunnþórsson, rafvirki
  • Jafet Bjarkar Björnsson, forritari
  • Jailka Milly Correia, þjónustustúlka
  • Jessica Auer, ljósmyndari
  • Jessica Carolina Stocks, fornleifafræðingur
  • Jóhann Grétar Einarsson, fyrrum stöðvarstjóri
  • Jóhann Jóhannsson, málari
  • Jóhann Sveinbjörnsson, fyrrum bæjargjaldkeri
  • Jón Halldór Guðmundsson, skrifstofumaður
  • Jón Hilmar, rafvirki
  • Jón Sigfinnsson, VFX listamaður
  • Jóna Björg Guðmundsdóttir
  • Juanjo Ivaldi Zaldívar, ljósmyndari
  • Justyna Materna, veitinga og ferðaþjónustueigandi
  • Kamilla Gylfadóttir, verkefnisstjóri hjá Skaftfelli myndlistarmiðstöð
  • Karl Svavarsson, póstfulltrúi
  • Katla Rut Pétursdóttir, frumkvöðull og listamaður
  • Kevan Rudd, smiður
  • Kolbeinn Agnarsson, eldri borgari
  • Kristín Sigurðardóttir, hjúkrunarfræðingur
  • Kristinn Már jóhannesson, verkfræðingur
  • Lasse Hogenhoff, myndlistarmaður og kennari við Lunga skólann
  • Lilja Finnbogadóttir, sjúkraliði og sjúkraflutningakona
  • Lilja Ívarsdóttir, skrifstofukona
  • Linus Lohman, myndlistarmaður
  • Ljósbrá Guðmundsdóttir, Fyrrverandi verkakona og nú eldri borgari
  • Lukka S. Gissurardóttir, ljósmóðir og hjúkrunarfræðingur
  • Magnús Guðmundsson, stjórnarmaður hjá Vá félags um vernd fjarðar
  • Magnús Snæþór Stefánsson, verkamaður
  • Mariana Murcia, kennari við Lunga skólann
  • Mark Rohtmaa-Jackson, skólastjóri Lunga skólans
  • Martin Fabry, veitinga og ferðaþjónustueigandi
  • Miška Weber, starfsmaður Hótel Öldunnar
  • Monica Maria Rohtmaa-Jackson, starfsmaður vínbúðinni
  • Monika Fryčová, myndlistarkona
  • Paul Allen, eigandi Steinholt og co
  • Nelson Cartas, starfsmaður hjúkrunarheimilinu Fossahlíð
  • Nick Kaasschieter, bókunarstjóri
  • Oddur Roth, byggingarverktaki
  • Ólafía María Gísladóttir, lyfjatæknir og sjúkraliði
  • Paul Vrijlandt, veitingastjóri
  • Pétur Kristjáns fyrrum forstöðumaður tækniminjasafnsins
  • Pétur Jónsson, húsasmiðameistari
  • Ragnheiður Billa Árnadóttir, sjúkraliði
  • Rakel Snorradóttir, leikskólakennari
  • Rúnar Loftur Sveinsson, fyrrum starfsmaður síldarvinnslunnar
  • Sandra Mjöll Jónsdóttir, listakona
  • Sesselja Hlín Jónasardóttir, viðburðarstjóri
  • Sigfinnur Mikaelsson fyrrum framkvæmdastjóri
  • Sigfús Gunnarsson, fyrrum starfsmaður síldarvinnslunnar
  • Signý Jónsdóttir, kennari við Lunga skólann og frumkvöðull
  • Sigríður Heiðdal, starfsmaður grunnskólans á Seyðisfirði
  • Sigríður Rún Tryggvadóttir, guðfræðingur og prestur
  • Sigríður Viktoria Sigurðardóttir, sjúkraliði
  • Sigríður Þórstína Sigurðardóttir, húsmóðir
  • Sigrún Hólmgeirsdóttir, forstjóri
  • Sigrún Ingibjörg Jóhannsdóttir, starfsmaður í aðhlynningu
  • Sigrún Ólafsdóttir, hjúkrunarfræðingur og æðavarpsbóndi
  • Sigurbergur Sigurðsson, bóndi og verktaki
  • Sigurður Filippusson, bóndi Dvergasteini
  • Sigurður Gunnarsson, eigandi Lónsleiru
  • Sigurður Snæbjörn Stefánsson, fornleifafræðingur
  • Soffía Margrét Ívarsdóttir, bóndi Dvergasteini
  • Snorri Emilsson, bílstjóri
  • Sóley Rún Jónsdóttir, sjúkraliði
  • Sólrún Fiðbergs, förðunarfræðingur
  • Sólveig Sigurðardóttir, fyrrum bókavörður
  • Søren Bjørnshave Taul, stálsmiður
  • Stefán Smári Magnússon, líffæraþegi
  • Tess Rivorola, listakona
  • Vera Kapitóla Finnbogadóttir, húsmóðir
  • Vilborg Borgþórsdóttir, starfsmaður í grunnskóla
  • Zuhaitz Akizu, ströndin studio Seyðisfjörður
  • zygmunt Antczak, smiður
  • Þorkell Helgason, smiður
  • Þóra Guðmundsdóttir, arkitekt og eigandi Haföldunnar
  • Þóra Ingvaldsdóttir, hjúkrunarfræðingur
  • Þórarinn Andrésson, listamaður
  • Þórbergur Torfason, sjómaður og eigandi Austursiglingar
  • Þorbjörg Alma Cecilsdóttir, sjúkraliðanemi
  • Þorgeir Sigurðsson bóndi og verktaki
  • Þórir Dan Friðriksson, fyrrum sjómaður
  • Þórunn Hrund Óladóttir, skólastjóri
  • Þórir Freyr Höskuldsson, kennari við Lunga skólann
  • Þórunn Sigurðardóttir, landbúnaðarfræðingur, dýralæknir og bóndi Dvergasteini
  • Þrándur Roth, kennari við Lunga skólann



Skoðun

Skoðun

Nálgunarbann

Fjölnir Sæmundsson,Sonja Ýr Þorbergsdóttir skrifar

Sjá meira


×