Jólagjöfin sem kemur sér alltaf vel Bónus 6. desember 2024 12:53 Kristín Sigurðardóttir, sérfræðingur hjá Bónus segir inneignar- og gjafakortin fra Bónus jólagjöf sem nýtist öllum vel. „Inneignar- og gjafakortin okkar eru stórsniðug jólagjöf. Þau njóta alltaf mikilla vinsælda á hverju ári, sem starfsmannagjafir fyrirtækja en kortin eru ekki síður vinsæl gjöf hjá einstaklingum,“ segir Kristín Sigurðardóttir, sérfræðingur hjá Bónus.
Einfalt og aðgengilegt Hægt er að kaupa inneignar- og gjafakortin á afgreiðslukössum allra Bónusbúða landsins. Kortið sjálft kostar ekkert, einungis er greitt fyrir þá upphæð sem á að fara inn á kortið og fæst það afhent í gjafaumbúðum. Kortið virkar eins og debetkort, eigandinn þarf ekki að nota alla upphæðina í einu og kortið rennur ekki út. Ekkert árgjald er á inneignar- og gjafakorti Bónus og engin færslugjöld. Hægt er að fylla aftur inn á kortið þegar inneignin er búin. Betri yfirsýn yfir heimilisbókhaldið „Margir nota kortin til að halda utan um matarinnkaupin og leggja til dæmis inn á það um hver mánaðamót ákveðna upphæð sem á að nota til heimilisins. Svo er auðvelt að fylgjast með stöðunni með því að skanna kóða á kortinu eða slá inn númeri kortsins inni á Bonus.is,“ útskýrir Kristín. Veist til hvers kortið er notað Bónus er ein stærsta matvörukeðja landsins með yfir þrjátíu verslanir um allt land. Bónus hefur ávallt lagt áherslu á lágt vöruverð og sama verð allsstaðar og því er kortið hagnýt jólagjöf sem nýtist hverjum sem er. Kortið gildir að sjálfsögðu í öllum verslunum Bónus. „Við erum með gjafavöru eins og kerti og fleira og auðvitað árstíðabundnar vörur, eins og bækur fyrir jólin og páskavörurnar. Þá er ein stór ástæða þess að fólk gefur kort frá okkur í jólagjafir að við seljum ekki tóbak,“ segir Kristín. „Ömmur og afar kaupa gjarnan Bónus-gjafakort handa unglingunum sem þau vita ekkert hvað þau eiga að gefa og foreldrar úti á landi sem eru með ungt fólk í skóla fjarri heimilinu gefa þeim Bónus-kort til að kaupa í matinn. Fylla svo reglulega á þau. Þá vita þau í hvað peningarnir fara,“ segir Kristín sposk. Gleður fjölbreyttan hóp Inneignar- og gjafakortin hafa notið mikilla vinsælda gegnum árin í jólagjafir fyrirtækja til starfsmanna. Kristín er ekki hissa á því. Það geti verið snúið að finna eitthvað eitt sem henti ólíkum einstaklingum en inneign í Bónus komi sér alltaf vel. „Til að þakka fólkinu þínu vel unnin störf og þá viltu að gefa eitthvað sem nýtist hverjum og einum og kortið gerir það svo sannarlega.“
Jól Jólagjafir fyrirtækja Mest lesið Stefán nýr útvarpsstjóri Sýnar Viðskipti innlent Keyptu Björgólf strax út úr Heimum Viðskipti innlent Dæmdur skattsvikari beri enga ábyrgð á fjármálum fyrirtækisins Viðskipti innlent Kvika segir hvorugt tilboð nægilega gott Viðskipti innlent Kastrup opnar á ný eftir karp við heilbrigðiseftirlitið Viðskipti innlent Að takast á við sjokkerandi breytingar í vinnunni Atvinnulíf Stólaleikur í Svörtuloftum Viðskipti innlent Sigríður Theódóra til Aton Viðskipti innlent Loka fyrir færslur á Workplace í haust Viðskipti erlent Enn færri komast að í HR en vilja Viðskipti innlent Fleiri fréttir Steinkast og rispur? Ekki lengur vandamál með lakkvarnarfilmu frá Bónsvítunni Tímamótasamningar í íslensku sjónvarpi Topp fimm tólin í verkfærakistuna Yfir 20.000 viðskiptavinir og tíföldun gengis á fimm árum Topplúgan kom á óvart á annars praktískum ferðatrukk Hálf öld af ástríðu og kappsemi – Bílabúð Benna fagnar 50 ára afmæli Hver verður Iðnaðarmaður ársins 2025 - kosning Þjónustudagur Toyota Greiðsluáskorun Myglulaust, einangrandi og hagkvæmt byggingarefni Sjá meira