Verbúðin í boði VG! Lilja Rafney Magnúsdóttir skrifar 23. júní 2024 07:31 Ég segi mig úr VG vegna svika flokksins við eigin sjávarútvegsstefnu! VG er að færa Grásleppuna yfir í gjafakvótakerfið í nafni sérhagsmuna og almannahagsmunir og og stjórnarskrávarin atvinnuréttindi eru fótum troðin. Ekkert í verndun fiskistofna kallar á kvótasetningu með framsali né heldur það að fénýta sameiginlega auðlind þjóðarinnar í þágu fjármagnseigenda. Ekkert gert til að efla smábátaútgerð og byggðafestu. Þar tók steininn úr þegar VG samþykkti við þinglok frumvarp um kvótasetningu og framsal á Grásleppu og tók þar með upp stefnu Sjálfstæðisflokks og Framsóknarflokks í sjávarútvegsmálum. Vinstri græn hafa verið með Matvælaráðuneytið þetta kjörtímabil og ekkert hefur verið gert til þess að styrkja Strandveiðar eða efla félagslega hluta kerfisins heldur þvert á móti tíminn nýttur í vinnu fjölmennrar Auðlindanefndar sem ekkert kom út úr fyrir þá minnstu í kerfinu og félagslega hlutann og Strandveiðarnar. Heldur var þar lagt til að hækka enn frekar kvótaþakið fyrir stórútgerðina í stað þess að taka á þeim veruleika að í mörg ár hefur verið gagnrýnt að þar væru kross eignatengsl og allt benti til þess að útgerðir væru komnar yfir leyfilega aflahlutdeild. Trúverðugleiki VG í sjávarútvegsmálum brostinn. Frá því að VG hafði forystu um að koma Strandveiðum á árið 2009 þá höfum við í VG talað fyrir því að styrkja félagslega hluta kerfisins og það er stefna flokksins. Kjósendur sem hafa viljað meira réttlæti í fiskveiðistjórnarkerfið til hagsbóta fyrir brothættar sjávarbyggðir hafa lagt traust sitt á VG og þekki ég það mjög vel eftir 12 ára setu á Alþingi búandi á Vestfjörðum og með þekkingu á þessum málaflokki . Það fer ekki á milli mála hvað það viðhorf og traust til VG hefur hrunið að undanförnu þó VG hafi haft málaflokkinn á sinni könnu frá árinu 2021. Áhersla á kvótasetningu með samþjöppun veiðiheimilda. Þess í stað hefur verið lögð áhersla á kvótasetningu og framsal veiðiheimilda, veiðar með öflugri botnvörpur á grunnslóð að hækka kvótaþak stórútgerða og að hafa ótímabundin leyfi í lagareldi sem er með ólíkindum að hafi verið lagt til. Í anda stefnu VG hefði verið gæfulegra að einbeita sér að afmörkuðum þáttum sem margoft hefur verið bent á að hægt sé að lagfæra bæði fyrir lítil og meðalstórar útgerðir og styrkja þar með veikari sjávarbyggðir og koma í veg fyrir enn meiri samþjöppun aflaheimilda til stórútgerða með tilheyrandi byggðaröskun og eignatilfærslu eins og hefur verið að gerast undanfarin ár og á bara eftir að versna með kvótasetningu á Grásleppu. Hvað kemur næst ? Kvótasetning á Strandveiðar ? Það er búið að gefa vont fordæmi. Þverpólitískri vinnu kastað fyrir róða. Það var lögð mikil þverpólitísk vinna í að efla Strandveiðar á síðasta kjörtímabili undir minni forystu sem formanns Atvinnuveganefndar árin 2017 til 2021 og hafði maður vonast til þess að Matvælaráðherra VG tæki upp keflið þar sem frá var horfið og fylgdi þeirri vinnu áfram í anda stefnu VG en það var því miður öðru nær. Ég hef sem varaþingmaður VG frá árinu 2021 og sem fyrrum þingmaður til 12 ára verið í miklum samskiptum við talsmenn lítilla og meðalstórra fyrirtækja og forystu hagsmuna aðila í Strandveiðum s.s. Landssamband smábátaeigenda og Strandveiðifélagið og lagt mig fram um að tala máli landsbyggðarinnar og lítilla og meðalstórra útgerða og við forystu VG og á fundum VG undanfarin ár en það hefur ekki borið tilætlaðan árangur síðustu 3 ár. Kvótasetning Grásleppu veikir Strandveiðikerfið. Samspil Grásleppuveiða og Strandveiða er mikið og ef annað kerfið fer í kvóta og framsal þá veikir það enn frekar Strandveiðikerfið og nóg er nú samt þegar Strandveiðar eru stöðvaðar um mitt sumar. Það bíða eflaust margir spenntir eftir því að fá að selja frá sér Grásleppukvóta í boði VG og annara fylgifiska í Sjálfstæðisflokki og Framsókn . Þeir sem bíða eftir að fá gjafakvótann og selja gleðjast nú mjög og fá þar með mikla fjármuni sem annars væru ekki í boði á meðan aðrir hrökklast úr greininni og nýliðun verður einungis hjá þeim sem eru fjármagnseigendur/stærri útgerðir og samþjöppunin heldur áfram á kostnað sjávarbyggðanna. En þetta er langt í frá sjávarútvegsstefnu VG heldur er verið að þjóna sérhagsmunum á kostnað almannahagsmuna og svíkja kjósendur VG. Einnig hefur verið bent á að ríkið geti skapað sér skaðabótakröfur af hálfu þeirra sem muna vara illa út úr kvótasetningu á Grásleppu. Að leiðarlokum með VG. Ég kveð VG með sorg í hjarta en er þakklát fyrir margt gott sem VG hefur staðið fyrir og komið í verk sem ekki er sjálfgefið í ólgusjó stjórnmálanna þau12 ár sem ég sat á Alþingi . Ég var ein af stofnfélögum Vinstrihreyfingarinnar græns framboðs og hef lagt mitt af mörkum í flokksstarfinu síðustu 25 árin en finn að ég á ekki samleið lengur með flokksforystunni þó stefna VG sé um margt mjög góð. Ég óska fyrrum félögum mínum alls góðs en þegar maður finnur sig ekki lengur eiga samleið með flokki sínum þó stefnan sé heilt yfir góð þá fer ekki saman hljóð og mynd. Þá er best að kveðja í stað þess að daga uppi ósátt talandi út í tómið Höfundur er fyrrum þingmaður VG. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Lilja Rafney Magnúsdóttir Mest lesið Halldór 03.10.2026 Halldór Veggjöld eru viðurstyggð — refsistefna ríkisstjórnar Einar Steingrímsson Skoðun Hvað gerðist áður en hjúkrunarheimilið varð lausnin? Rannveig Tenchi Ernudóttir Skoðun Innantómt hjóm við hátíðlegt tækifæri? Guja Sandholt Skoðun „... ekki alltaf sammála um allt“ ? Álfheiður Ingadóttir Skoðun Stórútgerðin fær svigrúm, smábátar fá skuldabagga Kjartan Sveinsson Skoðun Eru hjúkrunarheimili biðsalur eða heimili? Ragnhildur Þórarinsdóttir Skoðun Áskorun til dómsmálaráðherra, nú ert þú í dauðafæri Þorbjörg Jón Þorvaldur Heiðarsson Skoðun Er skynjari á vaktinni í bústaðnum? Ágúst Mogensen Skoðun Vill ráðherra veikja lífeyriskerfið? Finnbjörn A Hermannsson Skoðun Skoðun Skoðun Innantómt hjóm við hátíðlegt tækifæri? Guja Sandholt skrifar Skoðun Mildum höggið Ingibjörg Isaksen skrifar Skoðun Skattahækkun á baðlón þarf að meta út frá heildaráhrifum Þórir Garðarsson skrifar Skoðun Stórútgerðin fær svigrúm, smábátar fá skuldabagga Kjartan Sveinsson skrifar Skoðun Ljótt er ef satt er Bryndís Víglundsdóttir skrifar Skoðun Mælistika lífsins Sigurður Árni Reynisson skrifar Skoðun „... ekki alltaf sammála um allt“ ? Álfheiður Ingadóttir skrifar Skoðun Hvað gerðist áður en hjúkrunarheimilið varð lausnin? Rannveig Tenchi Ernudóttir skrifar Skoðun Mikið uppnám fyrir lítið innihald Hjálmar Bogi Hafliðason skrifar Skoðun Er skynjari á vaktinni í bústaðnum? Ágúst Mogensen skrifar Skoðun Veggjöld eru viðurstyggð — refsistefna ríkisstjórnar Einar Steingrímsson skrifar Skoðun Eru hjúkrunarheimili biðsalur eða heimili? Ragnhildur Þórarinsdóttir skrifar Skoðun VSK á baðlón: Vandinn er ekki skatturinn heldur fyrirvarinn Guðmundur Björnsson skrifar Skoðun Tækifærið í Stofnun atvinnuveganna Karl Steinar Óskarsson skrifar Skoðun Áskorun til dómsmálaráðherra, nú ert þú í dauðafæri Þorbjörg Jón Þorvaldur Heiðarsson skrifar Skoðun Heggur sá er hlífa skyldi Rósa Guðbjartsdóttir skrifar Skoðun Sporin í snjónum Arnar Sigurðsson skrifar Skoðun Stórefla þarf kjarnahlutverk ASÍ Arnaldur Grétarsson skrifar Skoðun Fullorðið fatlað fólk á rétt á áframhaldandi ráðgjöf og greiningu Atli Már Haraldsson Zebitz skrifar Skoðun Við í Ölfusi höfum ekki beðið eftir öðrum, við erum leiðandi Grétar Ingi Erlendsson skrifar Skoðun Hvernig get ég fundið ró þegar barnið mitt er í uppnámi? Sigrún Þóra Sveinsdóttir skrifar Skoðun Vill ráðherra veikja lífeyriskerfið? Finnbjörn A Hermannsson skrifar Skoðun Iceland Is Better Off than Switzerland Carl Baudenbacher skrifar Skoðun Nýr meirihluti tók við leikskólakerfi í stórsókn Steinunn Gyðu- og Guðjónsdóttir,Bjarnveig Birta Bjarnadóttir skrifar Skoðun Góð þjónusta kostar, slök þjónusta kostar meira Laufey E. Gissurardóttir skrifar Skoðun Kostnaðurinn við nei Sigvaldi Einarsson skrifar Skoðun Hver stal kökunni úr krúsinni? Gunnar Valur Sveinsson skrifar Skoðun Stríð Rússlands gegn utanríkisviðskiptum Úkraínu er stríð gegn fæðuöryggi heimsins Clara Ganslandt skrifar Skoðun Sjónvarpið 60 ára: Þögnin segir líka sögu Gunnar Salvarsson skrifar Skoðun Takk Hörður Jóhann Páll Jóhannsson skrifar Sjá meira
Skoðun Áskorun til dómsmálaráðherra, nú ert þú í dauðafæri Þorbjörg Jón Þorvaldur Heiðarsson skrifar
Skoðun Fullorðið fatlað fólk á rétt á áframhaldandi ráðgjöf og greiningu Atli Már Haraldsson Zebitz skrifar
Skoðun Nýr meirihluti tók við leikskólakerfi í stórsókn Steinunn Gyðu- og Guðjónsdóttir,Bjarnveig Birta Bjarnadóttir skrifar
Skoðun Stríð Rússlands gegn utanríkisviðskiptum Úkraínu er stríð gegn fæðuöryggi heimsins Clara Ganslandt skrifar