Ný leið fyrir fyrirtæki til að rafvæða bílaflotann Hentar 5. júní 2024 08:31 „Meðal helstu kosta sem viðskiptavinir okkar leita eftir er engin fjárbinding, fyrirsjáanleiki, sveigjanleiki í formi styttri eða lengri leigusamninga og ekki síst að öll þjónusta sé innifalin hvort sem það er viðhald á bílnum, tryggingar eða bifreiðagjöld," segir Björn Ingi Pálsson, framkvæmdastjóri Hentar. Hentar ehf. hefur verið starfrækt í tvö ár og býður upp á rekstrarleigu á ökutækjum þar sem áhersla er lögð á nýja rafbíla með fjölbreyttu úrvali af ökutækjum sem Bílaumboðið Askja býður upp á. „
Við viljum að rekstur ökutækja sé einfaldur og þægilegur,“ segir Björn Ingi Pálsson, framkvæmdastjóri Hentar. „Flestir þekkja formið langtímaleiga en langtímaleiga er ekkert annað en eitt form rekstrarleigu þar sem viðhald og fastur rekstrarkostnaður bílsins er innifalið í leiguverði. Meðal helstu kosta sem viðskiptavinir okkar leita eftir er engin fjárbinding, fyrirsjáanleiki, sveigjanleiki í formi styttri eða lengri leigusamninga og ekki síst að öll þjónusta sé innifalin hvort sem það er viðhald á bílnum, tryggingar eða bifreiðagjöld. Það þarf því engar áhyggjur að hafa út af viðhaldi og endursölu bíla.“ Rekstrarleiga er í boði bæði fyrir einstaklinga og fyrirtæki og segir Björn ánægjulegt að sjá hvað einstaklingar eru í auknum mæli að óska eftir langtímaleigu frekar en að kaupa bíla. „Fyrirtæki sem eru í viðskiptum við okkur eru allt frá litlum verktakafyrirtækjum yfir í stærri heildsölur. Flest þeirra velja rafmagnið með hreinum rafbílum eða tengiltvinnbílum sem hafa mikla drægni. Þar hafa Hentar og Askja marga möguleika bæði í fólks- og atvinnubílum en þess má geta að Hentar er systurfyrirtæki Öskju en bæði fyrirtækin eru í eigu móðurfélagsins Vekra.“ Rekstrarleigusamningar eru í boði frá 12 til allt að 60 mánaða og geta viðskiptavinir valið þann kost sem best hentar þeirra þörfum. „Sérstök áhersla er lögð á nýja rafbíla, bæði fólks- og atvinnubíla. Rekstarleigulausnir Hentar eru m.a. hugsaðar sem ein leið fjármögnunar fyrir viðskiptavini Öskju og getur því hentað vel fyrir fyrirtæki sem vilja taka sín fyrstu skref í að rafvæða bílaflotann sinn án mikils kostnaðar eða áhættu fyrir reksturinn. Við sjáum aukna eftirspurn eftir þessari lausn fjármögnunar hjá viðskiptavinum okkar.“ Fyrirtæki sem nýta sér rekstrarleigu Hentar fá aðgang að nýjustu ökutækjunum og tryggja þannig að starfsfólk þeirra hafi aðgang að áreiðanlegum og umhverfisvænum bílum. „Þetta stuðlar ekki aðeins að lægri rekstrarkostnaði heldur einnig að bættri ímynd fyrirtækisins hvað varðar samfélagsábyrgð og umhverfisvernd.“ Nánari upplýsingar og ráðgjöf má finna á heimasíðu Hentar.
Bílar Vistvænir bílar Mest lesið Karl Wernersson opnar sig Viðskipti innlent Borealis stefnt vegna hundruða milljóna króna leiguskuldar Viðskipti innlent Uppbygging umdeilds hótels í uppnámi Viðskipti innlent Sektað fyrir að láta gesti skanna QR-kóða til að sjá verðið Viðskipti innlent Hvar á sonur minn að geyma húsnæðissparnaðinn sinn? Viðskipti innlent Yfir hundrað prósenta munur á verði fyrir umfelgun Neytendur Segja Adomat reyna að koma höggi á Borealis Viðskipti innlent Vinkonur í bissness: Búnar að yfirtaka bílskúr foreldranna Atvinnulíf Róar áhyggjufulla Hafnfirðinga Viðskipti innlent 281 sagt upp í fimm hópuppsögnum Viðskipti innlent Fleiri fréttir Eigin samastaður í Reykjavík án þess að kaupa heila íbúð Ný bók varpar ljósi á réttindabrot og skaðlega vinnustaðamenningu Ný tækni gjörbreytir öryggi heimila og fyrirtækja Nýr iX3: Tæknibomba sem kann gamla BMW-takta EX60: Sumarást eða samband til frambúðar Nýtt gæðakerfi Michelin Expert center hjá N1 Nýr kafli hafinn hjá NOMY Ert þú með hugmynd sem gæti bætt heilsu fólks? Sjá meira