Ný og glæsileg Icebreaker deild opnar í dag GG Sport 30. maí 2024 11:48 Í dag, fimmtudaginn 30. maí, opnar GG Sport, nýja og glæsilega Icebreaker deild í verslun sinni við Smiðjuveg 8 í Kópavogi. Kíktu við og skoðaðu glæsilegt vöruúrval. Icebreaker ullarvörurnar eru gæðaflíkur frá Nýja-Sjálandi sem hafa svo sannarlega slegið í gegn á Íslandi og víðar undanfarin ár.
Ullin er einstaklega mjúk viðkomu og hentar jafnvel þeim sem eru með viðkvæma húð enda stingur hún ekki. „Tilfinningin er nánast eins og þú sért í bómull, mýktin er slík,“ segir Lóa Guðrún Kristinsdóttir, markaðsfulltrúi í GG Sport. Lóa Guðrún Kristinsdóttir er markaðsfulltrúi í GG Sport. „Icebreaker ullin er þeim eiginleikum gædd að þræðir ullarinnar eru einstaklega fíngerðir. Því fínni sem þræðirnir eru því minni líkur eru á að það séu faldar bakteríur í ullinni. Vörurnar hafa meðal annars verið gríðarlega vinsælar í ýmis konar ferðalög, þar sem þær draga síður í sig lykt, þökk sé eiginleikum ullarinnar, og eru bæði léttar og meðfærilegar. Punkturinn yfir i-ið er svo að það má í raun þvo Icebreaker á hefðbundinn hátt, þú þarft ekki að þvo á sérstöku ullarprógrammi.“ Í dag, fimmtudaginn 30. maí, opnar GG Sport, nýja og glæsilega Icebreaker deild í verslun sinni við Smiðjuveg 8 í Kópavogi. „Hingað komu þaulreyndir sérfræðingar frá Icebreaker og hjálpuðu okkur að setja upp deildina og við erum í skýjunum með útkomuna. Deildin er litrík og björt, enda eru sumarlitirnir einstaklega skemmtilegir í ár. Að sjálfsögðu eru klassísku litirnir áfram til staðar og eru þeir fáanlegir allan ársins hring. En það er skemmtilegt að fá litadýrðina inn með sumrinu. Við hlökkum til að fá föstu viðskiptavini okkar til að skoða úrvalið og tökum fagnandi á móti nýjum andlitum. Hingað eru allir velkomnir.“ Vörulína Icebreaker er afar breið og býður upp á vörur fyrir alla fjölskylduna. „Frá upphafi höfum við boðið upp á gott úrval af Icebreaker fatnaði en þó bætist reglulega eitthvað sniðugt við. Við erum með allt frá sokkum, nærfatnaði, peysum og föðurlandi í lambhúshettur, buff og vettlinga. Hvort sem ætlunin er að velja sér ullarfatnað fyrir næsta útivistarævintýri eða fyrir sumarbústaðarferðina, bakpokaferðalagið á erlendri grundu eða vinnufatnað til notkunar dags daglega, þá ættu allir að geta fundið sér sína uppáhalds Icebreaker flík ... já eða flíkur,“ segir Lóa hlæjandi. „Við fáum reglulega að heyra að Icebreaker ullin sé ávanabindandi vegna þægindanna.“ Icebreaker barnalínan hefur einnig vakið mikla athygli en hún er fáanleg fyrir börn frá 2 ára aldri. „Barnavörurnar eru mjög vinsælar yfir sumartímann enda mjög þægilegt fyrir þau yngstu að vera í þessari mjúku ull sem Icebreaker er, hvort sem þau eru í vagninum í göngutúr með mömmu og pabba eða að hnoðast og leika sér í garðinum.“ GG Sport er stöðugt að taka inn nýjar vörur í hús frá Icebreaker. „Reglulega koma inn nýjar vörur og núna var til dæmis sumarlínan að lenda hjá okkur sem hefur sjaldan verið glæsilegri. Við fengum stuttermaboli á bæði dömur og herra í miklu úrvali, einnig hlýraboli, en hvoru tveggja hentar frábærlega vel yfir sumarið. Jafnvel þegar fólk fer erlendis í mikinn hita, því Icebreaker ullin er þeim kostum gædd að hafa mikla öndun og í raun hitastjórnar hún eftir því sem þarf hverju sinni. Hún hentar því vel hvort sem er í hita eða kulda. Þegar líður að hausti fara svo vetrarvörurnar að koma smátt og smátt og jólalínan er alltaf mjög vegleg enda mjög vinsæl í jólapakkana.“ Hjá GG Sport er lögð rík áhersla á að auðvelda fólki að skapa sér skemmtilegar minningar í útivistinni að sögn Lóu. „Því viljum við bjóða upp á gott úrval af traustum vörum á góðu verði. Hvort sem stefnan er tekin á útilegu í sumar, gönguferðir um landið okkar fallega, ævintýraferð um hálendið, sumarbústaðarferð eða að skella sér á kajak eða standbretti, þá hvetjum við alla til þess að gera sér ferð til okkar og hafa GG Sport sem viðkomustað á leiðinni í skemmtilegar samverustundir.“
Heilsa Verslun Mest lesið Andri Þór hættir sem forstjóri Ölgerðarinnar Viðskipti innlent „Algjörir B-menn og kreistum hverja mínútu sem okkur gefst“ Atvinnulíf Gugga fer í fyrirtækjarekstur Viðskipti innlent Bíllinn sem rúllaði upp vetrardrægniprófi NAF Samstarf Munaðarlausi apinn í Japan farinn að hafa áhrif á Íslandi Viðskipti innlent Lilja nýr markaðs- og upplifunarstjóri hjá Högum Viðskipti innlent Sýn skilaði hagnaði á fjórða ársfjórðungi Viðskipti innlent Boðar aðgerðir á allra næstu dögum gegn verðbólgu Viðskipti innlent Icewear Garn opnar í Kringlunni Samstarf Paramount sigrar Netflix í baráttunni um Warner Bros. Viðskipti erlent Fleiri fréttir Icewear Garn opnar í Kringlunni Bíllinn sem rúllaði upp vetrardrægniprófi NAF Íþróttaálfurinn reynir við Íslandsmet á fjölskylduhátíð BL Sætur borgarbíll þar til kíkt er í skottið Bílanaust flytur í sérhannaðar höfuðstöðvar að Álfabakka 4 G-vítamín eru litlu skrefin sem breyta miklu Nýjar áskriftarleiðir að Heimavörn bylting á öryggismarkaði Hreingerningafyrirtæki brýtur blað í fræðslumálum Hjálpar skiptastjórum að greina eignaundanskot Bestu íslensku vörumerkin 2025: viðurkenningarhátíð í Hörpu Margborgar sig að gera við stjörnu í rúðu: Carglass hefur opnað á Íslandi Stærsti Ímarkdagurinn í 40 ár: Alþjóðlegar stjörnur markaðsmála mæta EX60 gerbreytir veruleika rafökumanna Sjá meira