Lífið

Af vængjum fram: Borðaði vængi með hníf og gaffli og sagðist vera saddur

Oddur Ævar Gunnarsson skrifar
„Ég skal gera það fyrir þig að smakka þennan væng hérna,“ segir Ástþór meðal annars eftir að hafa verið grátbeðinn um að smakka.
„Ég skal gera það fyrir þig að smakka þennan væng hérna,“ segir Ástþór meðal annars eftir að hafa verið grátbeðinn um að smakka. vísir

Ástþór Magnússon forsetaframbjóðandi líkir því við að spila á fiðlu á Titanic meðan skipið sekkur að fá sér kjúklingavængi á tímum líkt og þessum þegar kjarnorkusprengja gæti skollið á Íslandi hvenær sem er. Hann segir ekki eðlilegt að sitja undir ásökunum um að vera svikahrappur vegna happdrættis sem sé framkvæmt með leyfi frá sýslumanni og úrdráttur þess undir opinberu eftirliti.

Þetta er meðal þess sem fram kemur í fimmta þætti Af vængjum fram, nýjum skemmtiþætti á Vísi í tilefni af forsetakosningum. Þar setjast forsetaframbjóðendur niður og gæða sér á sífellt sterkari kjúklingavængjum á milli þess sem þeir ræða lífið og tilveruna í einlægu spjalli. Von er á öllum forsetaframbjóðendum í þáttinn næstu vikur.

Klippa: Af vængjum fram - Ástþór Magnússon

Hnífur og gaffall

Ástþór gæðir sér í þættinum á vængjum með hníf og gaffli, einn frambjóðenda. Hann segist þurfa vængi til þess að fljúga inn á Bessastaði, þar sem hann hafi verk að vinna í þágu friðarmála. 

Ástþór ræðir meint brot gegn þjóðaröryggi Íslands og mistök í samskiptum við Rússa og í Úkraínu. Þá krefur hann þáttastjórnanda um svör við því hvort honum standi alveg á sama um það þó ráðist verði á Ísland með kjarnorkuvopnum?

Hann óskar líka eftir fiðlutónlist til að hafa með undir þættinum, ræðir flugmannsferilinn og skrítnasta áfangastaðinn. Ástþór svarar líka spurningum um umdeilt happdrætti sitt og rifjar upp þegar hann hellti tómatsósu yfir sig allan í mótmælaskyni.

Horfa má á fleiri þætti af skemmtiþættinum Af vængjum fram á sjónvarpsvef Vísis. 


Tengdar fréttir

Bíllinn í happdrætti Ástþórs úr hans eigin smiðju

Fyrsti vinningur í happdrætti Ástþórs Magnússonar forsetaframbjóðanda, rafbíll af gerðinni Hupmobile, er ekki enn til. Einu ummerkin um Hupmobile á veraldarvefnum eru vefsíða framleiðandans, sem skráð er á Islandus group, fyrirtæki Ástþórs. Ástþór segir það enga tilviljun, hann eigi merkið.

Af vængjum fram: „Krakkar, ekki gera þetta heima“

Viktor Traustason forsetaframbjóðandi á nokkuð auðvelt með að borða sterkan mat. Hann sýnir einstakt töfrabragð sem hann lærði af götuhundum í Grikklandi og lýsir því hvað honum finnst um að tala um fjölskylduna sína.

Af vængjum fram: Búlgörsku mafíunni að mæta yrði Ásdísi dömpað

Ásdís Rán Gunnarsdóttir forsetaframbjóðandi segist vera afar hrifin af sterkum mat. Hún nefnir leiðinlegustu Hollywood stjörnuna og segist hafa verið afar stressuð fyrir forsetaframboði, þó henni hafi liðið eins og Michael Jackson endurrisnum í miðbæ Reykjavíkur eftir kappræður á RÚV. Spurning hennar til Katrínar Jakobsdóttur hafi átt að vera táknræn. 






Fleiri fréttir

Sjá meira


×