Chelsea hjálpaði Totten­ham með því að ná í stig gegn Villa

Runólfur Trausti Þórhallsson skrifar
Úr leik kvöldsins.
Úr leik kvöldsins. EPA-EFE/TIM KEETON

Aston Villa og Chelsea gerðu 2-2 jafntefli í síðasta leik dagsins í ensku úrvalsdeild karla í fótbolta. Tvö mörk voru dæmd af Chelsea í leiknum.

Heimamenn í Villa komust yfir strax á fjórðu mínútu þegar Marc Cucurella þvældist fyrir sendingu John McGinn með þeim afleiðingum að boltinn endaði í netinu og staðan orðin 1-0 Villa í vil.

Gestirnir héldu að þeir hefðu jafnað metin eftir rúman stundarfjórðung þegar Nicolas Jackson skilaði boltanum í netið. Markið var hins vegar dæmt af eftir að myndbandsdómari leiksins fór yfir það. Jackson var rangstæður í aðdragandanum.

Undir lok fyrri hálfleiks tvöfaldaði Morgan Rogers forystu heimamanna eftir sendingu Matty Cash. Tók Rogers vel á móti boltanum innan vítateigs og skilaði honum niðri í vinstra hornið. Staðan 2-0 í hálfleik.

Heimamenn gerðu einu breytingu í hálfleik, markvörðurinn Emiliano Martínez fór af velli og Robin Olsen kom inn í hans stað.

Þegar rúm klukkustund var liðin minnkaði Noni Madueke muninn með góðu skoti eftir sendingu frá Conor Gallagher. Þegar níu mínútur lifðu leiks voru þeir aftur á ferðinni, Madueke lagði boltann þá á Gallagher sem þrumaði honum í netið og staðan orðin 2-2.

Þegar fimm mínútur voru komnar fram yfir venjulegan leiktíma þá skoraði Axel Disasi það sem virtist vera sigurmark Chelsea. Aftur var markið dæmt af eftir að myndbandsdómari leiksins skoðaði það betur. Benoit Badiashile taldist hafa brotið á Diego Carlos í aðdraganda marksins.

Jafnteflið þýðir að Villa er með 67 stig í 4. sæti eftir 35 leiki. Tottenham Hotspur er sæti neðar með 60 stig að loknum 32 leikjum. Efstu fjögur sæti ensku úrvalsdeildarinnar komast í Meistaradeild Evrópu á næstu leiktíð.

Bein lýsing

Leikirnir






    Fleiri fréttir

    Sjá meira