Íslenski boltinn

Besta-spáin 2024: Alkemistinn Gylfi

Íþróttadeild Vísis og Stöðvar 2 Sports spáir Val 1. sæti Bestu deildar karla í sumar.

Ingvi Þór Sæmundsson skrifar
Gylfi Þór Sigurðsson þreytir frumraun sína í íslenska boltanum í sumar. vísir/hulda margrét

Íþróttadeild Vísis og Stöðvar 2 Sports spáir Val 1. sæti Bestu deildar karla í sumar.

Íþróttadeild Vísis og Stöðvar 2 Sports spáir að venju fyrir um gengi liðanna í Bestu deild karla með árlegri spá sinni fyrir mótið. Keppni í deildinni hefst með leik Íslandsmeistara Víkings og Stjörnunnar í dag, laugardaginn 6. apríl.

Íþróttadeild spáir Val 1. sæti Bestu deildarinnar í sumar og liðið verði Íslandsmeistari eftir að hafa lent í 2. sæti í fyrra.

Eftir slakt sumar 2022 svaraði Valur fyrir sig í fyrra, fór upp um fjögur sæti og endaði í 2. sæti Bestu deildarinnar, á fyrsta tímabilinu undir stjórn Arnars Grétarssonar. Valsmenn stóðu Víkingum þó langt að baki og fengu ellefu stigum minna en Íslandsmeistararnir. Þetta var í þriðja sinn sem lið undir stjórn Arnars endaði í 2. sæti efstu deildar.

„Sumir á, sumir á, sumir á bomsum ... “vísir/hulda margrét

Framan af vetri fékk Valur unga og efnilega leikmenn til liðsins en eftir því sem á leið bættust kanónur við. Fyrst kom Jónatan Ingi Jónsson og svo í síðasta mánuði lönduðu Valsmenn stóra fiskinum, sjálfum Gylfa Þór Sigurðssyni. Bjarni Mark Duffield bættist svo í hópinn í síðustu viku.

Koma Gylfa breytir öllu fyrir Val og landslaginu í Bestu deildinni. Fyrir það fyrsta eykst athyglin á deildina til mikilla muna og sömuleiðis kröfurnar og væntingarnar til Valsliðsins. Allt annað en Íslandsmeistaratitill yrðu gríðarleg vonbrigði fyrir Valsmenn. Leikmannahópur þeirra er settur saman til að vinna og vinna núna, enda er liðið með marga leikmenn röngu megin við þrítugt.

grafík/gunnar tumi

Til marks um það hversu sterkur leikmannahópur Vals er, þá eru til að mynda fimm í honum sem hafa farið á heimsmeistaramót: Gylfi, Aron Jóhannsson, Hólmar Örn Eyjólfsson, Birkir Már Sævarsson og Frederick Schram. Þá eru ótaldir leikmenn sem hafa lengi verið í fremstu röð í deildinni hér heima, eins Patrick Pedersen, Tryggvi Hrafn Haraldsson, Sigurður Egill Lárusson og Kristinn Freyr Sigurðsson.

Það er valinn maður í hverju rúmi, raunar öllu nema einu. Hlynur Freyr Karlsson, sem var einn besti leikmaður Bestu deildarinnar á síðasta tímabili, er farinn til Noregs og hann skilur eftir sig stórt skarð aftast á Valsmiðjunni. 

grafík/gunnar tumi

Arnar hefur reynt ýmsar leiðir til að fylla það, til dæmis með Elfari Frey Helgasyni, Jakob Franz Pálssyni og jafnvel Aroni. Bjarni Mark mun líklega spila talsvert í þessari mikilvægu stöðu. Hún er þó stærsta spurningarmerkið hjá Val fyrir tímabilið.

Síðan er einnig spurning hvernig Gylfa gengur í sumar en hann hefur lítið sem ekkert spilað í tæp þrjú ár og er að verða 35 ára. En ef hann sýnir brotabrot af fyrri getu verður hann besti leikmaður deildarinnar. Þetta er nú einu sinni markahæsti leikmaður í sögu íslenska landsliðsins, 67 marka og fimmtíu stoðsendinga maður í ensku úrvalsdeildinni og einn af þremur bestu fótboltamönnum sem Ísland hefur alið.

Patrick Pedersen vantar eitt mark til að komast í hundrað marka klúbbinn í efstu deild.vísir/hulda margrét

Valsmenn eru til alls líklegir og væntingarnar til liðsins eru skrúfaðar í botn. Og það skiljanlega. Horfið bara á hópinn. En leikir vinnast ekki á pappír og Arnar hefur aldrei unnið stóran titil sem þjálfari. Hann hefur safnað silfri en vonast til að alkemistinn Gylfi breyti því í gull í sumar.


Tengdar fréttir






×