Neytendur

Breytingarnar séu stór­hættu­legar og á kostnað launa­fólks

Kolbeinn Tumi Daðason skrifar
Finnbjörn Hermannsson er formaður ASÍ.
Finnbjörn Hermannsson er formaður ASÍ. Vísir/Vilhelm

Alþýðusamband Íslands telur með öllu óviðunandi að stjórnvöld stefni beinlínis að því að skerða kjör launafólks og neytenda með stórhættulegum breytingum á búvörulögum. Jafnframt er vakin athygli á að sú hringamyndun og verðstýring sem stefnt er að með frumvarpinu vinnur beinlínis gegn nýgerðum kjarasamningum á almennum vinnumarkaði. 

Þetta kemur fram í tilkynningu frá ASÍ. Forsaga máls er sú að matvælaráðherra lagði fram drög að frumvarpi sem kynnt var í samráðsgátt og síðan lagt fram á Alþingi. Frumvarpið verður tekið til þriðju umræðu á þinginu í dag.

„Nú hefur meirihluti atvinnuveganefndar lagt fram svo róttækar breytingar á frumvarpinu að fullyrða má að ekki er á ferð sama mál og ýmsir hagaðilar tjáðu sig um í umsagnarferlinu,“ segir í tilkynningu frá ASÍ.

Alþýðusambandið tekur fram að beiðni um umsögn barst því ekki og ekkert samráð var haft við verkalýðshreyfinguna við vinnslu málsins.

Aðför að kjörum fólks í landinu

„Eftir breytingar atvinnuveganefndar er frumvarpið bein aðför að kjörum fólksins í landinu sem gert verður að sæta því að hagsmunaaðilar hafi með sér samráð umverka­skipt­ingu, verðlagn­ingu og fleira. Vart þarf að taka fram að slík framganga telst ólögmæt og refsiverð í öðrum atvinnugreinum. Til að tryggja lögmæti samráðs og hringamyndunar eru felld niður ákvæði um eftirlit Sam­keppnis­eft­ir­lits­ins og eft­ir at­vik­um bann við óheim­il­um samn­ing­um eða ákvörðunum fram­leiðenda, sem voru í upp­haf­legu frum­varpi ráðherra,“ segir í tilkynningu ASÍ.

Félag atvinnurekenda, Samtök verslunar og þjónustu, VR og Neytendasamtökin vöruðu við sama frumvarpi í tilkynningu í morgun.

„Fyrir liggur að breytingar þær sem meirihluti atvinnuveganefndar vill gera ganga miklu lengra en þekkist í nágrannalöndum og efasemdir hljóta að vakna um að þessi gjörningur stæðist skoðun samkvæmt EES-reglum.“ 

Að öðru leyti taki ASÍ undir þau sjónarmið sem fram koma í áliti Samkeppniseftirlitsins sem telur málið allt til mikillar óþurftar.

Vinni gegn markmiði um lægri verðbólgu

„Fyrir skemmstu var skrifað undir sögulega kjarasamninga á almennum vinnumarkaði sem hafa það einkum að markmiði að vinna gegn verðbólgu til að þannig megi færa niður vaxtastig í landinu. Samningunum fylgir mikilvæg yfirlýsing stjórnvalda um aðkomu þeirra næstu fjögur ár,“ segir í tilkynningu ASÍ.

Vilji meirihluta atvinnuveganefndar vinni beinlínis gegn þessu markmiði og vekji vægast sagt mikla furðu að kjörnir fulltrúar almennings hyggist ganga fram með þessu móti.

„ASÍ telur alla meðferð málsins með miklum ólíkindum og hvetur þingmenn til að huga að afleiðingum gjörða sinna. Ólíðandi er með öllu að vélað sé um hagsmuni fólksins í landinu með svo ófyrirleitnum hætti, nánast í skjóli nætur, í bakherbergjum Alþingis.“

Bændur ánægðir

Trausti Hjálmarsson, formaður Bændasamtaka Íslands, tjáði Mbl.is í morgun að með frumvarpinu sé loks að nást áfangasigur til hagsbóta fyrir landbúnað og neytendur.

„Ég sé þetta ekki öðru­vísi en þannig að það sé verið að gera okk­ur Íslend­ing­um kleift að reka okk­ar land­búnað og bæta sam­keppn­is­stöðu okk­ar með þessu móti og færa okk­ur nær því sem geng­ur og ger­ist vítt og breytt í lönd­un­um í kring­um okk­ur,“ seg­ir Trausti við Mbl.

Samvinna og samráð muni draga úr framleiðslukostnaði sem allir hljóti að fagna. Hann vonast til að frumvarpið verði samþykkt á þinginu sem fyst.





Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur.

Fleiri fréttir

Sjá meira


×