Breytingarnar séu stórhættulegar og á kostnað launafólks Kolbeinn Tumi Daðason skrifar 21. mars 2024 11:53 Finnbjörn Hermannsson er formaður ASÍ. Vísir/Vilhelm Alþýðusamband Íslands telur með öllu óviðunandi að stjórnvöld stefni beinlínis að því að skerða kjör launafólks og neytenda með stórhættulegum breytingum á búvörulögum. Jafnframt er vakin athygli á að sú hringamyndun og verðstýring sem stefnt er að með frumvarpinu vinnur beinlínis gegn nýgerðum kjarasamningum á almennum vinnumarkaði.
Þetta kemur fram í tilkynningu frá ASÍ. Forsaga máls er sú að matvælaráðherra lagði fram drög að frumvarpi sem kynnt var í samráðsgátt og síðan lagt fram á Alþingi. Frumvarpið verður tekið til þriðju umræðu á þinginu í dag. „Nú hefur meirihluti atvinnuveganefndar lagt fram svo róttækar breytingar á frumvarpinu að fullyrða má að ekki er á ferð sama mál og ýmsir hagaðilar tjáðu sig um í umsagnarferlinu,“ segir í tilkynningu frá ASÍ. Alþýðusambandið tekur fram að beiðni um umsögn barst því ekki og ekkert samráð var haft við verkalýðshreyfinguna við vinnslu málsins. Aðför að kjörum fólks í landinu „Eftir breytingar atvinnuveganefndar er frumvarpið bein aðför að kjörum fólksins í landinu sem gert verður að sæta því að hagsmunaaðilar hafi með sér samráð umverkaskiptingu, verðlagningu og fleira. Vart þarf að taka fram að slík framganga telst ólögmæt og refsiverð í öðrum atvinnugreinum. Til að tryggja lögmæti samráðs og hringamyndunar eru felld niður ákvæði um eftirlit Samkeppniseftirlitsins og eftir atvikum bann við óheimilum samningum eða ákvörðunum framleiðenda, sem voru í upphaflegu frumvarpi ráðherra,“ segir í tilkynningu ASÍ. Félag atvinnurekenda, Samtök verslunar og þjónustu, VR og Neytendasamtökin vöruðu við sama frumvarpi í tilkynningu í morgun. „Fyrir liggur að breytingar þær sem meirihluti atvinnuveganefndar vill gera ganga miklu lengra en þekkist í nágrannalöndum og efasemdir hljóta að vakna um að þessi gjörningur stæðist skoðun samkvæmt EES-reglum.“ Að öðru leyti taki ASÍ undir þau sjónarmið sem fram koma í áliti Samkeppniseftirlitsins sem telur málið allt til mikillar óþurftar. Vinni gegn markmiði um lægri verðbólgu „Fyrir skemmstu var skrifað undir sögulega kjarasamninga á almennum vinnumarkaði sem hafa það einkum að markmiði að vinna gegn verðbólgu til að þannig megi færa niður vaxtastig í landinu. Samningunum fylgir mikilvæg yfirlýsing stjórnvalda um aðkomu þeirra næstu fjögur ár,“ segir í tilkynningu ASÍ. Vilji meirihluta atvinnuveganefndar vinni beinlínis gegn þessu markmiði og vekji vægast sagt mikla furðu að kjörnir fulltrúar almennings hyggist ganga fram með þessu móti. „ASÍ telur alla meðferð málsins með miklum ólíkindum og hvetur þingmenn til að huga að afleiðingum gjörða sinna. Ólíðandi er með öllu að vélað sé um hagsmuni fólksins í landinu með svo ófyrirleitnum hætti, nánast í skjóli nætur, í bakherbergjum Alþingis.“ Bændur ánægðir Trausti Hjálmarsson, formaður Bændasamtaka Íslands, tjáði Mbl.is í morgun að með frumvarpinu sé loks að nást áfangasigur til hagsbóta fyrir landbúnað og neytendur. „Ég sé þetta ekki öðruvísi en þannig að það sé verið að gera okkur Íslendingum kleift að reka okkar landbúnað og bæta samkeppnisstöðu okkar með þessu móti og færa okkur nær því sem gengur og gerist vítt og breytt í löndunum í kringum okkur,“ segir Trausti við Mbl. Samvinna og samráð muni draga úr framleiðslukostnaði sem allir hljóti að fagna. Hann vonast til að frumvarpið verði samþykkt á þinginu sem fyst.
Alþingi Landbúnaður Verðlag ASÍ Ríkisstjórn Katrínar Jakobsdóttur Mest lesið Sorglegt að þurfa að hætta rekstri eftir 38 ár í Hveragerði Viðskipti innlent Starbucks opnaði á Laugavegi í dag Viðskipti innlent Krefja nýjan rektor um að skólinn fari að lögum Viðskipti innlent Svikarar nýti sumarfrí til að blekkja fyrirtæki til að millifæra háar upphæðir Viðskipti innlent Oft slegist um innstungurnar á tjaldsvæðunum Neytendur Ná að spara hver mánaðarmót en hvað svo? Viðskipti innlent Sjónvarpsstöðin Sýn verður í opinni dagskrá Viðskipti innlent Ekki flaska á að undirbúa sumarfríið þitt í vinnunni Atvinnulíf Einungis áfengi í boði hjá Heimkaupum Viðskipti innlent Tillaga Vilhjálms felld með nánast öllum atkvæðum Viðskipti innlent Fleiri fréttir Oft slegist um innstungurnar á tjaldsvæðunum Gátu ekki fært sönnur á fullyrðingar um virkni sveppadropa og dufts Kvartanir borist vegna aflýstra flugferða Olíuefni í Bugles sem eiga ekki að vera í snakkinu Opinn fundur HMS um endurmat brunabótamats Kalla inn geislavirka límmiða Verðlagssæti Íslands enn eitt árið komi ekki á óvart Konur geta tryggt sig á meðgöngu í fyrsta sinn Rukkaðar fyrir sætin: Blöskrar græðgi vertsins, sem segir gjaldið sjálfsagt Nóa-nammið hækkar í stórum skrefum Rækja fannst í skinkusalati „Það er svo mikið rugl í gangi“ Húsgagnahöllin sektuð fyrir ósanngjarnar auglýsingar Fleiri bílastæðafyrirtæki til skoðunar hjá Neytendastofu Bílastæðafyrirtæki fá á baukinn Tókst ekki að sýna fram á galla og situr uppi með körfuboltaskóna Gera fjölmargar breytingar á kílómetragjaldinu Tveggja ára skjár fæst ekki bættur vegna „dauðs depils“ Björn Berg svarar lesendum: Eyðir alltaf neyðarsjóðnum í vitleysu Sjá meira