Neytendur

Pössuðu ekki nógu vel upp á far­angurinn og þurfa að greiða bætur

Atli Ísleifsson skrifar
Hjónin þurftu að ná flugi til Frakklands og höfðu því ekki tíma til að leysa málið að fullu með starfsmanni hótelsins.
Hjónin þurftu að ná flugi til Frakklands og höfðu því ekki tíma til að leysa málið að fullu með starfsmanni hótelsins. Getty

Ónefnt hótel á Íslandi þarf að greiða hjónum sem greiddu þar fyrir gistingu um 170 þúsund krónur í bætur eftir að farangri hjónanna var stolið af hótelinu.

Þetta er niðurstaða kærunefndar vöru- og þjónustukaupa. Í úrskurðinum kemur fram að hjónin hafi bókað gistingu á hótelinu í eina nótt í ágúst 2022. Á brottfarardeginum hafi hjónin óskað eftir því að fá að geyma farangurinn í afgreiðslu hótelsins á meðan þau skoðuðu sig um í Reykjavík.

Starfsmaður hótelsins féllst á það en þegar þegar hjónin komu til baka var farangurinn horfinn og fengu hjónin þær upplýsingar að þar sem engin læst farangursgeymsla væri á hótelinu hafi farangurinn verið geymdur á gangi, á bak við afgreiðsluna og án nokkurs eftirlits.

Hjónin þurftu að ná flugi til Frakklands og höfðu því ekki tíma til að leysa málið að fullu með starfsmanni hótelsins sem fullyrti þó að hjónin myndu fá farangurinn bættan eftir að hjónin hefðu gefið skýrslu hjá lögreglu.

Svöruðu ekki ítrekuðum tölvupóstum

Í úrskurðinum kemur fram að hjónin hefði fylgt leiðbeiningum starfsmannsins og gefið skýrslu hjá lögreglu en hótelið hefði hins vegar hvorki bætt þeim tjónið sé svarað ítrekuðum tölvupóstum. 

Eiginkonan leitaði þá til kærunefndarinnar og fór fram á skaðabætur að fjárhæð 1.206 evrur, sem samsvarar um 170 þúsund krónur, vegna hins stolna farangurs. Lögðu hjónin meðal annars fram kvittanir vegna fatnaðs sem hafi verið keyptur hérlendis og verið í töskunni.

Vanræktu tillitsskyldu

Nefndin telur sem svo að þar sem munnlegt samkomulag hafi verið gert um geymslu farangursins og að farangurinn hafi svo verið geymdur án eftirlits, auk þess að hjónin hafi ekki verið upplýst um þann geymslumáta, þá hafi hótelið vanrækt tillitsskyldu með saknæmum hætti og skapað sér skaðabótaskyldu.

Forsvarsmenn hótelsins sendu hvorki fram andsvör í málinu né reyndu að hnekkja kröfufjárhæðinni og féllst nefndin því á að hótelinu bætri að greiða bæri hjónunum 1.206 evrur í skaðabætur.





Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur.

Fleiri fréttir

Sjá meira


×