Viðskipti innlent

Hagnaður Lands­bankans 33 milljarðar á síðasta ári

Atli Ísleifsson skrifar
Lilja Björk Einarsdóttir, bankastjóri Landsbankans. segir bankann vera vel fjármagnaðan og kostnaðarhlutfallið með því lægsta sem gerist í bankaþjónustu.
Lilja Björk Einarsdóttir, bankastjóri Landsbankans. segir bankann vera vel fjármagnaðan og kostnaðarhlutfallið með því lægsta sem gerist í bankaþjónustu. Vísir

Hagnaður Landsbankans á árinu 2023 nam 33,2 milljörðum króna eftir skatta og var arðsemi eiginfjár 11,6 prósent. Bankaráð hyggst leggja til við aðalfund bankans að bankinn greiði 16,5 milljarða króna í arð á árinu 2024.

Þetta kemur fram í tilkynningu frá Landsbankanum, en til samanburðar nam hagnaðurinn 17 milljarðar króna árið 2022.

Helstu atriði úr rekstri og efnahag árið 2023

Rekstur:

  • Hagnaður á árinu 2023 nam 33,2 milljörðum króna eftir skatta, samanborið við 17,0 milljarða króna á árinu 2022.
  • Arðsemi eigin fjár eftir skatta var 11,6% samanborið við 6,3% arðsemi árið áður.
  • Hreinar vaxtatekjur námu 57,6 milljörðum króna á árinu 2023 samanborið við 46,5 milljarða króna á árinu 2022.
  • Vaxtamunur í hlutfalli af meðalstöðu heildareigna var 3,0% árið 2023 samanborið við 2,7% árið 2022.
  • Hreinar þjónustutekjur námu 11,2 milljörðum króna á árinu 2023 samanborið við 10,6 milljarða króna á árinu 2022.
  • Aðrar rekstrartekjur voru jákvæðar um 5,1 milljarð króna en voru neikvæðar um 3,8 milljarða króna árið 2022. Virðisbreyting útlána og krafna var neikvæð um 3,1 milljarð króna árið 2023 samanborið við jákvæða virðisbreytingu upp á 2,5 milljarða króna árið 2022.
  • Laun og launatengd gjöld námu 15,9 milljörðum króna á árinu 2023, samanborið við 14,5 milljarða króna árið áður.
  • Rekstrarkostnaður að frátöldum launum og tengdum gjöldum nam 12,4 milljörðum króna samanborið við 11,4 milljarða króna árið 2022.
  • Kostnaður sem hlutfall af tekjum (K/T) var 33,7% árið 2023 samanborið við 46,8% árið 2022.
  • Tekjuskattur á árinu 2023 nam 12,4 milljörðum króna samanborið við 10,4 milljarða króna á árinu 2022.
  • Meðalstöðugildi ársins voru 849 en voru 843 árið 2022. Stöðugildi í árslok 2023 voru 817.

Efnahagur:

  • Eigið fé í árslok 2023 var 303,8 milljarðar króna, sem er 24,7 milljörðum krónum hærra en í árslok 2022.
  • Á árinu 2023 greiddi Landsbankinn 8,5 milljarða króna í arð til hluthafa.
  • Eiginfjárhlutfall bankans (e. total capital ratio) í lok árs 2023 var 23,6% en var 24,7% í lok árs 2022. Það er verulega umfram 20,2% eiginfjárkröfu fjármálaeftirlits Seðlabanka Íslands.
  • Heildareignir bankans námu 1.961 milljarði króna í lok árs 2023 og hækkuðu um 9,7% á milli ára.
  • Útlán jukust um 5,6% á milli ára, eða um 86,5 milljarða króna. Útlán til einstaklinga jukust um 29 milljarða króna og útlán til fyrirtækja jukust um 63 milljarða króna, en vegna gengisáhrifa að fjárhæð 5,5 milljarð króna er heildaraukning um 58 milljarða króna.
  • Innlán viðskiptavina jukust um 8,3% á árinu 2023, eða um 80,7 milljarða króna. Innlán frá fjármálafyrirtækjum námu 30,0 milljörðum í árslok 2023.
  • Bankinn fylgist náið með og stýrir lausafjáráhættu sinni í heild, í erlendum myntum og í íslenskum krónum. Lausafjárhlutfall bankans (e. liquidity coverage ratio) var 181% í lok árs 2023 samanborið við 134% í lok árs 2022.
  • Á árinu 2023 hækkaði liðurinn eignir til sölu um 353 milljónir króna.
  • Heildarvanskil fyrirtækja og heimila voru 0,3% af útlánum í árslok 2023 samanborið við 0,2% í árslok 2022.
Nýjar höfuðstöðvar Landsbankans í miðborg Reykjavíkur. Vísir/Vilhelm

Bankinn vel fjármagnaður

Haft er eftir Lilju Björk Einarsdóttur, bankastjóra Landsbankans, að bankinn hafi skilað traustri afkomu á árinu 2023. Bankinn sé vel fjármagnaður, kostnaðarhlutfallið sé með því lægsta sem gerist í bankaþjónustu í heiminum og bankinn hafi sterka arðgreiðslugetu.

„Góð afkoma var af öllum þáttum starfseminnar og arðsemi eiginfjár var 11,6% sem er umfram langtíma arðsemismarkmið bankans. Hærri ávöxtun á lausafé, viðsnúningur á hlutabréfamörkuðum, útlánaaukning og breytt samsetning efnahags eru meginskýringarnar á auknum hagnaði frá fyrra ári. Það er ánægjulegt að sjá að þrátt fyrir hátt vaxtastig á landinu helst vaxtamunur heimila stöðugur.

Traustur rekstur til margra ára og kröftug stefna sem snýst um að einfalda viðskiptavinum lífið hefur breytt bankanum. Við erum einstaklega stolt af því að fimmta árið í röð var Landsbankinn efstur á bankamarkaði í Íslensku ánægjuvoginni. Viðskiptavinum hélt áfram að fjölga og mælist markaðshlutdeild bankans á einstaklingsmarkaði nú 40,5%, hærri en nokkru sinni fyrr.

Mikil ánægja er með Landsbankaappið og aðrar stafrænar lausnir. Viðskiptavinir kunna líka vel að meta að hjá okkur getur þú fengið ráðgjöf og aðstoð í 35 útibúum og afgreiðslum um allt land, auk þess að hafa aðgang að einstaklega öflugu Þjónustuveri. Við höfum gert starfsfólki í útibúum um allt land kleift að veita ráðgjöf og þjónustu í gegnum síma, tölvupóst og á fjarfundum, óháð búsetu viðskiptavina. Með þessu styrkjum við starfsemina um allt land, jöfnum álag og aukum þjónustuna en sem dæmi má nefna að á árinu 2023 sáu útibú á landsbyggðinni um rúmlega 80% af allri ráðgjöf sem var veitt á fjarfundum og 70% af ráðgjöf sem var veitt í gegnum síma,“ segir Lilja Björk.

3.600 íbúðir

Lilja Björk segir að Landsbankinn hafi stutt vel við Grindvíkinga í þeirri óvissu sem ríki vegna áframhaldandi jarðhræringa og eldgosahættu. „Það sýndi sig hversu gott er að hafa traust net af frábærum ráðgjöfum þegar bankinn hafði samband við alla viðskiptavini sína í Grindavík sem voru með íbúðalán og aðstoðaði þá við að nýta sér úrræði um greiðsluskjól og niðurfellingu vaxta og verðbóta.

Bankinn er sterkur á fyrirtækjamarkaði og leiðandi á mörgum sviðum, m.a. sjávarútvegi og á byggingarmarkaði. Nú eru um 3.600 íbúðir í byggingu sem eru fjármagnaðar af bankanum en samkvæmt okkar mati samsvarar það um helmingi af öllum yfirstandandi byggingarframkvæmdum. Árið var mjög gott hjá fyrirtækjaráðgjöf bankans og færsluhirðing Landsbankans hefur fengið frábærar viðtökur síðan þjónustunni var hleypt af stokkunum árið 2022. Við munum áfram leggja áherslu á að auka þjónustuframboð bankans og fjölga tekjustofnum.

Bankinn er leiðandi í að opna bankakerfið í samræmi við PSD2-löggjöfina sem ætlað er að stuðla að aukinni samkeppni á fjármálamarkaði. Viðskiptavinir njóta þessa tæknilega forskots meðal annars með því að í Landsbankaappinu er nú hægt að framkvæma aðgerðir sem eru hvergi í boði annars staðar. Þróunin heldur áfram og fljótlega munum við kynna nýjungar sem munu gera lántöku og endurfjármögnun íbúðalána enn einfaldari.

Vel heppnuð skuldabréfaútgáfa bankans á árinu sýnir að bankinn nýtur mikils trausts á erlendum og innlendum fjármálamörkuðum. Nýjasta græna skuldabréfaútgáfa bankans, þar sem eftirspurn var fimmföld, heppnaðist einstaklega vel og er nú hátt í 50% af erlendri fjármögnun bankans græn.

Óvissa í efnahagslífinu hefur síst minnkað á síðustu mánuðum. Öll finnum við fyrir áhrifum af þrálátri verðbólgu og háum vöxtum, sem einnig þyngja róður fyrirtækja í auknum mæli. Í því ljósi er ánægjulegt að sjá að auknar kröfur til fjármálafyrirtækja hafa ekki leitt til aukins kostnaðar við bankaþjónustu. Þvert á móti er margra ára vinna við að einfalda og gera starfsemi bankans skilvirkari að skila bankanum einu lægsta kostnaðarhlutfalli sem sést í bankarekstri í heiminum. Þetta hefur meðal annars stuðlað að því að vaxtamunur heimila hefur lækkað. Einnig er mikilvægt að hafa í huga að vaxandi efnahagsreikningur gerir bankanum kleift að veita stærstu fyrirtækjum landsins samkeppnishæf kjör og þjónustu. Þannig styðjum við kröftugt efnahagslíf á Íslandi og áframhaldandi verðmætasköpun sem er undirstaða lífskjara hér á landi. Landsbankinn er traustur banki fyrir farsæla framtíð og ætlar að vera áfram í fararbroddi í bankaþjónustu á Íslandi,“ er haft eftir Lilju Björk. 





Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur.

Fleiri fréttir

Sjá meira


×