Viðskipti erlent

Musk sjö og hálfri billjón króna fá­tækari

Samúel Karl Ólason skrifar
Elon Musk er töluvert fátækari í kvöld en hann var í morgun.
Elon Musk er töluvert fátækari í kvöld en hann var í morgun. AP/Kirsty Wigglesworth

Auðjöfurinn Elon Musk mátti ekki fá 55 milljarða dala greiðslu frá fyrirtæki sínu Tesla, í formi kaupréttar árið 2018. Dómari í Delaware í Bandaríkjunum lýsti þessu yfir í kvöld, fimm árum eftir að hluthafar í fyrirtækinu höfðuðu mál vegna greiðslunnar, sem gerði Musk að einum ríkasta manni heims.

Á gengi dagsins í dag samsvara 55 milljarðar dala um 7,5 billjónum króna (7.500.000.000.000).

Hluthafi sem höfðaði málið sagði stjórn Tesla hafa farið gegn skyldum sínum og afvegaleitt hluthafa. Hann sagði einnig að viðræðurnar um kauprétt Musks hafi verið sviksamar, þar sem meðlimir stjórnarinnar heyrðu undir Musk sjálfan og væru of nánir honum til að geta samið við hann.

Samkvæmt frétt CNN héldu lögmenn Richards Tornetta, hluthafa í Tesla, því einnig fram að árangursviðmiðin sem Tesla þurfti að ná svo Musk fengi kaupréttinn hefðu verið í samræmi við innri spár fyrirtækisins og því hefði ekki verið um neins konar framúrskarandi frammistöðu hans að ræða sem stjórnanda.

Musk á þrettán prósent í Tesla og er því stærsti hluthafi í fyrirtækinu. Hann seldi hluta hlutabréfa sinna árið 2022 til að kaupa Twitter. Undanfarnar vikur hefur hann reynt að styrkja tak sitt á fyrirtækinu og sagt að hann vilji eiga fjórðung í því.

Elon Musk birti færslu á samfélagsmiðli sínum X (áður Twitter) í kvöld þar sem hann skrifaði bara eina setningu: „Ekki skrá fyrirtæki ykkar í Delaware.“

Mörg af stærstu fyrirtækjum Bandaríkjanna eru skráð í Delaware þar sem ríkið er með lægri skattbyrði á fyrirtæki en flest önnur.

Lögmenn Musks sögðu 73 prósent hluthafa Tesla, að honum sjálfum og bróður hans undanskildum, hafa samþykkt kaupréttarsamninginn í atkvæðagreiðslu. Þeir segja einnig að virði hlutabréfa hluthafa hafi aukist til muna og að Musk hefi ekki greitt sér nein laun eða bónusa að öðru leyti.

Dómarinn Kathaleen McCormick tók þó ekki undir þann málflutning og sagði að hlutabréf Musks í Tesla væru virði tuga milljarða dala, svo ekki væri rétt að hann hefði ekki fengið neitt fyrir störf sín hjá fyrirtækinu.

Hún sagði að ferlið varðandi kaupréttarsamninginn innan Tesla hafi verið verulega gallað.

Ekki liggur fyrir hvort úrskurðinum verði áfrýjað.


Tengdar fréttir

Segir tolla á kínverska rafmagnsbíla nauðsynlega

Auðjöfurinn Elon Musk, sem meðal annars á rafmagnsbílaframleiðandann Tesla, samfélagsmiðilinn X (áður Twitter) og geimfyrirtækið SpaceX, segir nauðsynlegt að setja tolla á kínverska rafmagnsbíla. Annars muni kínverskir bílaframleiðendur valta yfir önnur fyrirtæki í heiminum sem framleiða rafmagnsbíla.

Hafa tvöfaldað auð sinn á fjórum árum

Fimm ríkustu menn í heimi hafa rúmlega tvöfaldað auð sinn frá árinu 2020. Á sama tíma hefur staða sextíu prósenta jarðarbúa versnað, en það eru næstum því fimm milljarðar manna. 

Musk býður Alex Jones velkominn á X

Elon Musk, auðjöfur og eigandi samfélagsmiðilsins X, hefur boðið bandaríska fjölmiðlamanninn og samsæriskenningasmiðinn Alex Jones velkominn á miðilinn í kjölfar kosningar sem Musk hélt á X-síðu sinni. 





Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur.

Fleiri fréttir

Sjá meira


×