Um­fjöllun: Króatía - Ís­land 30-35 | Sterkur sigur án lykil­manna gegn Króatíu

Ágúst Orri Arnarson skrifar
Fagnað dátt í lok leiks
Fagnað dátt í lok leiks vísir / vilhelm

Íslenska landsliðið vann Króatíu með fimm marka mun í milliriðli 1 á EM karla í handbolta. Lokatölur 30-35, eftir jafnan og spennandi leik lengst framan af tók Ísland fram úr undir lok leiks og tryggði sér sinn fyrsta sigur í milliriðlinum.

Ísland var án tveggja lykilmanna en Ómar Ingi Magnússon og Janus Daði Smárason misstu af leiknum í dag vegna veikinda. Þriðji liðsfélaginn úr Magdeburg fór svo meiddur af velli í upphafi leiks.

Þetta var tólfti leikur þjóðanna og í fyrsta skipti sem Ísland vinnur. Ísland hafði áður tapað tíu leikjum og einu sinni náð jafntefli.

Íslenska liðið fór hratt af stað með snöggu gegnumbroti hjá Gísla Þorgeiri Kristjánssyni og þrumuskotum Viggós Kristjánssonar og Arons Pálmarssonar. Króatar svöruðu vel með því að hægja á leiknum, stilltu upp og spiluðu boltanum vel milli sín.

Matej Mandic átti svo fyrstu markvörslu leiksins á 5. mínútu og Króatar komust 5-3 yfir eftir hraðaupphlaup. Tveggja marka forysta sem breyttist fljótt í fjögur eftir tvö misheppnuð skot Viggós í röð.

Það var sama portúgalska dómarateymi sem dæmdi leikinn í dag og dæmdi fyrsta leik Íslands gegn Serbíu. Þar fékk Elliði Snær Viðarsson rautt spjald fyrir kjaftshögg, í þetta skiptið var það Ýmir Örn Gíslason sem var sendur af velli á 10. mínútu.VÍSIR/VILHELM
Gísli Þorgeir byrjaði leikinn af krafti og skoraði 3 af fyrstu 7 mörkum Íslands, hann haltraði svo sárkvalinn af velli skömmu eftir að Ýmir fékk rauða spjaldið. Tveir lykilmenn til viðbótar farnir af velli strax í upphafi leiks. VÍSIR/VILHELM

Ísland spilaði vel þrátt fyrir það, kom boltanum tvisvar út í horn á Bjarka Má Elísson og Aron skaut svo góðu gólfskoti til að minnka muninn í eitt mark, Króatar tóku í kjölfarið leikhlé um miðjan fyrri hálfleik. Luka Cindric tapaði boltanum í sókninni sem þjálfarinn teiknaði upp og Viggó Kristjánsson jafnaði leikinn 11-11 í fyrsta sinn síðan 3-3.

Aron spilaði vel og Ísland náði mest upp tveggja marka forystu, 13-15, en Krótarar svöruðu með fimm mörkum í röð áður en Ísland kom marki að á síðustu sekúndu hálfleiksins, staðan 18-16 þegar liðin gengu til búningsherbergja.

Aron Pálmarsson átti frábæran leik og skoraði sex mörk. VÍSIR/VILHELM

Óðinn Þór Ríkharðsson skoraði annað mark með skoti fyrir aftan bak og jafnaði leikinn 19-19 snemma í seinni hálfleik, það var svo markvörðurinn Björgvin Páll Gústavsson sem kom Íslandi yfir með skoti yfir allan völlinn í autt mark Króata. Aron skoraði svo sitt sjötta mark með þrumuskoti áður en Króatar kölluðu leikhlé.

Ísland varðist vel og sótti ágætlega, liðin skiptust jafnt á mörkum þar til í stöðunni 25-25 með um fimmtán mínútur eftir, þá hrökk Björgvin í gang og fór að verja vel. Ísland tók í kjölfarið sex marka áhlaup og Króatar áttu ekki afturkvæmt eftir það.

Björgvin Páll varði í heildina fimmtán skot, vinstri hornamaðurinn Bjarki Már Elísson var markahæstur með átta mörk. Hægri hornaðurinn Óðinn Þór Ríkharðsson og fyrirliðinn Aron Pálmarsson fylgdu honum eftir með sex mörk.

Björgvin Páll átti frábæran leik og varði 12 skotvísir / vilhelm

Ísland þurfti nauðsynlega að vinna í dag til að eiga möguleika á sæti í undankeppni Ólympíuleikana. Nú þarf liðið að treysta á önnur úrslit, vona að Austurríki tapi fyrir Frakklandi næst, svo þarf Ísland að vinna Austurríki og vona að Ungverjaland tapi ekki báðum leikjum sínum gegn Þýskalandi og Frakklandi.

Gangi þetta allt saman upp verður Egyptaland að verða Afríkumeistari, og Ísland kemst þá í undankeppni Ólympíuleikana.


Tengdar fréttir

Gísli fer í myndatöku

Gísli Þorgeir Kristjánsson varð að fara meiddur af velli eftir um tíu mínútna leik gegn Króatíu á EM í handbolta í dag.

Bein lýsing

Leikirnir






    Fleiri fréttir

    Sjá meira