Lífið

Stjörnulífið: Bumbumyndir, boltinn og bombur í brekkunni

Dóra Júlía Agnarsdóttir skrifar
Handboltinn, skíðaferðir, árshátíðir, þorrablót og meðgöngumyndatökur voru áberandi síðastliðna viku.
Handboltinn, skíðaferðir, árshátíðir, þorrablót og meðgöngumyndatökur voru áberandi síðastliðna viku. SAMSETT

Skemmtanalífið var upp á sitt allra besta um helgina með fjöldanum öllum af þorrablótum, árshátíðum og öðrum boðum. Stjörnur landsins skinu skært hvort sem það var í skíðagallanum í brekkunni eða glimmergallanum á dansgólfinu. 

Arion banki hélt glæsilega árshátíð í Hörpu á laugardagskvöld og var öllu til tjaldað. Rapparinn og stjarnan Emmsjé Gauti var meðal þeirra sem kom fram og birti hann myndband af sér þar sem hann tók almennilega dýfu inn í áhorfendahópinn og flaut ofan á árshátíðargestum. 

Þorrablótin fóru hátt um helgina hjá félögum á borð við ÍA og Aftureldingu. Sömuleiðis var Þorrablót á Selfossi þar sem Hjálmar Örn var meðal skemmtikrafta og segist hafa snert píanó í fyrsta skipti síðan 1984. 

Ef Instagram færslurnar birtast ekki er ráð að endurhlaða (e. refresh) síðunni. 

Með forsetahjónunum í Hörpu

Tvíeykið og skemmtikraftarnir Eva Ruza og Hjálmar Örn stóðu fyrir viðburði í Hörpu í gær til styrktar Krafti Cancer. Þar gat fólk mætt til að perla „Lífið er núna“ armbönd og minnir Eva á að lífið sé sannarlega núna. Þá segist hún koma til með að sjá eftir forseta og forsetafrú sem mættu á viðburðinn og birti Eva mynd með þeim. 

Verðandi mamma og pabbi

Það styttist óðfluga í að raunveruleikastjarnan og markaðsstjórinn Birgitta Líf Björnsdóttir eignist frumburð sinn ásamt sambýlismanni sínum Enok Jónssyni. Þau fóru í paramyndatöku hjá Ínu Maríu sem er með Birgittu í þáttunum LXS.

Skíðaskvísur

Fatahönnuðurinn Andrea Magnúsdóttir skelli sér í skíðaferð til Saalbach-Hinterglemm ásamt góðum vinum og birti myndaseríu af sér í smart skíðaklæðnaði. Lífið virðist sannarlega hafa leikið við þessa skvísu í brekkunni.

Áslaug Arna Sigurbjörnsdóttir, háskóla-, iðnaðar- og nýsköpunarráðherra Íslands, kíkti til Siglufjarðar með vinkonum sínum og fór að sjálfsögðu á skíði. Hún skartaði bláum heilgalla en það virðist ekki fara á milli mála að hún er hrifin af bláa litnum. 

Ofurhlauparinn Mari Jarsk rokkaði upphá bleik moonboots í Bláfjöllum um helgina. Hún skrifaði á Instagram að það bjargi einfaldlega geðheilsunni sinni að fara út að leika. 

Leikkonan Kristín Pétursdóttir naut sín vel í vikufríi á skíðasvæði í Speiereck með kærastanum sínum Þorvari Bjarma Harðarsyni ásamt góðum vinum á borð við markaðsstjórann Ásthildi Báru Jensdóttur og yfirbarþjóninn Odd Atlason. 

Glamúr og gleði

Fótboltakappinn Garðar Gunnlaugsson gerði sér dagamun og mætti á óperuna ásamt bræðrum sínum, konu og vinum í Iðnó um helgina. Tónleikagestir skörtuðu sínu allra fínasta pússi. 

Skvísan og áhrifavaldurinn Hildur Sif Hauksdóttir klæddist svörtu og hvítu á árshátíð í Hörpu um helgina. 

Svokallað Mob-wife (mafíu-eiginkonu) tísku æði hefur gripið samfélagsmiðla að undanförnu og áhrifavaldar á borð við Sunnevu Einars og Heiði Ósk hafa deilt myndum af sér í þessum mob-wife stíl. Ljósmyndarinn og listakonan Saga Sigurðardóttir er hrifin af stílnum og birti myndir af sér um helgina í þeim anda. 

Danskennarinn og áhrifavaldurinn Ástrós Traustadóttir er sömuleiðis komin á mob-wife vagninn. 

Stjórnmálakonan Kristrún Frostadóttir mætti í þakkarboð Dags B. Eggertssonar í Borgarleikhúsinu á laugardaginn. Hún skrifaði færslu á Instagram þar sem hún þakkar Degi fyrir störf sín sem borgarstjóri.

Gummi Kíró náði að hlaða batteríin vel um helgina. 

Íslendingar í sólinni

Vinkonurnar Hulda Halldóra og Þórhildur Þorkelsdóttir njóta lífsins saman á Tenerife um þessar mundir. Fleiri Íslendingar sækja í sólina á þessum dimmu og köldu tímum en söngvarinn Friðrik Ómar tók sér mánaðarfrí eftir jólatónleika törnina og nýtur lífsins í Miami. Á Instagram síðu sinni skrifar hann að hann elski öfgar og því hlýtur að vera gott að hlaða batteríin vel.  

Handboltinn

Margir Íslendingar skelltu sér á leik í Þýskalandi til þess að sjá handboltastrákana okkar keppa. Útvarpsfólkið Kristín Ruth, Rikki G og Egill Ploder skelltu sér en saman sjá þau um morgunþáttinn Brennsluna á FM957. 

Inga Tinna, eigandi Dineout, skellti sér sömuleiðis á leik og segist hafa smitast af handboltabakteríunni. Hún er í sambandi með fyrrum handboltakappanum og athafnarmanninum Loga Geirs. 

Idol

Glamúrinn og tónlistargleðin var í hávegum höfð á föstudagskvöld í live þætti Idolsins. Dómarinn og söngkonan Bríet leggur alltaf mikinn metnað í klæðaburð sinn og var glæsileg í öllu rauðu.

Herra Hnetusmjör var sömuleiðis brattur í ljósbrúnum jakkafötum. 






Fleiri fréttir

Sjá meira


×