Handbolti

Ís­land komið á­fram áður en leikur hefst?

Sindri Sverrisson skrifar
Aron Pálmarsson og Arnar Freyr Arnarsson voru skiljanlega glaðir eftir sigurinn sæta gegn Svartfellingum.
Aron Pálmarsson og Arnar Freyr Arnarsson voru skiljanlega glaðir eftir sigurinn sæta gegn Svartfellingum. VÍSIR/VILHELM

Það eru ýmsir möguleikar í stöðunni fyrir lokadaginn í C-riðli EM karla í handbolta á morgun. Örlögin eru í höndum Íslands sem með sigri á Ungverjum stæði uppi með fullkomna draumaniðurstöðu en ef allt fer á versta veg er liðið fallið úr keppni.

Ungverjaland er efst í C-riðli með 4 stig og öruggt áfram í milliriðilinn í Köln. Ísland er með 3 stig, Serbía 1 og Svartfjallaland 0. Tvö efstu liðin fara áfram, og taka með sér úrslitin úr innbyrðis leik sínum.

Þetta þýðir að ef að Serbía vinnur ekki Svartfjallaland í fyrri leik dagsins á morgun, í Ólympíuhöllinni í München, þá er Ísland komið áfram sama hvernig fer gegn Ungverjum síðar um kvöldið.

Staðan í riðli Íslands á EM fyrir lokaumferðina á morgun. Serbía mætir þá Svartfjallalandi áður en Ísland og Unverjaland mætast.Vísir

Hvort þessi hjálparhönd Svartfellinga býðst verður sem sagt ljóst þegar strákarnir okkar stíga á svið.

Ungverjar eru búnir að tryggja sig áfram í milliriðilinn en þeir vilja samt vinna Ísland til að tryggja að þeir fari með tvö stig í farteskinu.

Strákarnir okkar vilja sömuleiðis bara sigur og ef það tekst er niðurstaða liðsins í riðlinum fullkomin, því liðið fer þá með tvö stig í milliriðil og Serbía, eitt af liðunum sem Ísland berst við um sæti í forkeppni Ólympíuleikanna, væri úr leik.

Jafntefli Íslands og Ungverjalands myndi þýða að bæði þessi lið færu upp úr C-riðlinum, með eitt stig hvort.

Nánast engin von ef Serbar vinna og Ísland tapar

Ef að Serbía vinnur hins vegar Svartfjallaland, og Ísland tapar gegn Ungverjalandi, enda Serbía og Ísland jöfn að stigum. Þá mun heildarmarkatala þeirra úr þessum jafna riðli ráða því hvort liðanna endar í 2. sæti og heldur áfram keppni.

Því miður myndi þetta nær örugglega þýða að Serbía næði 2. sætinu, því eftir leikina í gær er Ísland með +1 í markatölu og Serbía -1. Í þessu tilviki væri eina von Íslands því að Serbía ynni bara eins marks sigur og að Ísland tapaði bara með einu marki, því að öðrum kosti væri Serbía komin með betri markatölu.

Næsti leikur Íslands á EM er við Ungverjaland á morgun klukkan 19.30. Öflugt teymi Vísis er á staðnum og fjallar ítarlega um mótið í máli og myndum.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×