Viðskipti erlent

Epic Games vinna mikinn sigur á Google

Samúel Karl Ólason skrifar
Forsvarsmenn Google gætu verið þvingaðir til að gera miklar breytingar á Android-stýrikerfinu.
Forsvarsmenn Google gætu verið þvingaðir til að gera miklar breytingar á Android-stýrikerfinu. AP/Peter Morgan

Google hefur misnotað aðstöðu sína til að kreista fé úr framleiðendum og takmarka samkeppni á sviði forrita fyrir snjalltæki sem nota Android-stýrikerfi Google. Þessari niðurstöðu komust kviðdómendur í máli Epic Games gegn Google að í San Francisco í gær en niðurstaðan gæti haft mikil á áhrif á stýrikerfið, sem notað er út um allan heim.

Forsvarsmenn Epic Games, sem er hvað þekktast fyrir hinn sívinsæla leik Fortnite, höfðuðu mál gegn Google árið 2020 og sökuðu tæknifyrirtækið um að misnota aðstöðu sína til að kreista fé úr framleiðendum forrita fyrir Android.

Málið byggir á því að Google tekur hluta allra tekna sem framleiðendur forrita afla í gegnum Google Play, forritamarkað Android. Google tekur fimmtán prósent tekna fram að einni milljón dala og þrjátíu prósent af tekjum umfram það. Þá tekur Google fimmtán prósent allra áskriftargjalda gegnum Google Play.

Eftir mánaðarlöng réttarhöld, í kjölfar um þriggja ára lagabaráttu, tók það kviðdómendur ekki nema rúmar þrjár klukkustundir að komast að samhljóma niðurstöðu að Google hefði misnotað aðstöðu sína. Að einokun tæknifyrirtækisins hefði komið niður á Epic Games.

Niðurstaðan gæti leitt til þess að reglum Play Store, forritamarkaðs Android, verði breytt á þann veg að fleiri fyrirtæki mega bjóða upp á sambærilega markaði innan stýrikerfisins, samkvæmt frétt New York Times.

Lögmenn Google hafa opinberið að niðurstöðunni verði áfrýjað.

Tim Sweeney, stofnandi og forstjóri Epic, fagnaði úrskurðinum í morgun.

Epic í krossferð gegn risunum

Epic hefur einnig höfðað mál gegn Apple sem í stuttu máli sagt snýr að því að Apple lokaði á Fortnite í síma-stýrikerfi sínu eftir að Epic byggði eigið greiðslukerfi inn í tölvuleiknum. Apple krefst þrjátíu prósenta þóknunar af öllum keyptum snjallforitum í gegnum þjónustu fyrirtækisins sem heitir App Store og keyptum vörum innan þeirra forrita.

Ókeypis er að spila Fortnite en spilarar geta keypt nýja búninga fyrir persónuna sem þeir spila. Epic hefur grætt fúlgur fjár á þessum kaupum spilara.

Sjá einnig: Fortnite er enn arðbærasti leikur heims

Apple vann það mál, að mestu leyti, en lögmenn bæði Apple og Epic eru að reyna að áfrýja þeim úrskurði, en af mismunandi ástæðum.

Ekki eina lögsóknin

Forsvarsmenn Google standa einnig frammi fyrir lögsókn fjölmargra ríkissaksóknara Bandaríkjanna sem hafa sakað fyrirtækið um að brjóta samkeppnislög með reglum Google Play. Þeir segja Google þvinga fólk til að selja forrit gegnum þjónustu fyrirtækisins og taka hluta af tekjum þeirra.

Í þessari málsókn segja saksóknararnir að Google beiti yfirburðastöðu sinni til að koma í veg fyrir samkeppni þegar kemur að forritum fyrir tæki sem keyra á Android-stýrikerfinu.

Epic hefur ekki krafist skaðabóta frá Google en hefur þess í stað krafist þess að tæknifyrirtækinu verði gert að gera breytingar á Android og opna stýrikerfið betur.

Wilson White, einn yfirmanna Google, sagði eftir að úrskurðurinn í San Francisco varð ljós, að Android og Google Play væru opnari en önnur stýrikerfi og forritamarkaðir fyrir snjalltæki og að forsvarsmenn fyrirtækisins myndu berjast fyrir viðskiptamódelinu sem þeir hafi byggt upp.

Forsvarsmenn Google hafa ávallt haldið því fram að þeir séu ekki í einokunarstöðu á markaði snjalltækjaforrita í Bandaríkjunum, þar sem tæki Apple og stýrikerfi Apple séu mun vinsælli þar.

Dómari mun ákveða á næsta ári hver refsing Google á að vera en eins og áður segir stendur til að áfrýja úrskurðinum.





Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur.

Fleiri fréttir

Sjá meira


×