Jól

Segir engin jól án sörubaksturs

Svava Marín Óskarsdóttir skrifar
Sörur eru ómissandi fyrir marga á aðventunni.
Sörur eru ómissandi fyrir marga á aðventunni.

Elenóra Rós Georgesdóttir bakari birti klassíska uppskrift að sörum sem hún hefur bakað á hverju ári með móður sinni frá því að hún var lítil. Hefðin hefur síðan verið hennar eftirlætis á aðventunni.

„Ég geri þær enn á hverju ári á meðan ég hlusta á jólalög og gæða mér á heitu súkkulaði. Ég hef meira að segja búið til þær með mínum eigin vinahópi undanfarin ár. Það er fyndið að verða „fullorðinn“ og byrja að búa til sínar eigin hefðir og minningar,“ segir Elenóra. 

Hráefni

Sörubotnar

  • 240 g eggjahvítur
  • 500 g möndlumjöl
  • 420 g flórsykur

Krem

  • 120 g eggjarauður
  • 320 g mjúkt smjör
  • 150 g sýróp
  • 30 g kakó
  • 15 g instant kaffi
  • 1 tsk vanilludropar

Hjúpur

200 g suðusúkkulaði

Elenóra Rós

Aðferð

  • Stífþeytið eggjahvíturnar
  • Sigtið flórsykurinn og möndlumjölið og blandið varlega saman við eggjahvíturnar með sleif.
  • Setjið deigið á plötu annað hvort með sprautupoka eða tveim teskeiðum.
  • Bakið í 10 til 12 mínútur við 180 gráður á blæstri.
  • Næst er kremið búið til. Byrjið á að þeyta eggjarauðurnar þar til ljósar og loftkenndar.
  • Hitið sýrópið og hellið í mjórri bunu út í eggjarauðurnar á meðan hrærivélin er í gangi. Hrærið þar til skálin er köld við snertingu.
  • Bætið smjörinu saman við í nokkrum skömmtum og hrærið vel á milli.
  • Að lokum er kaffinu, kakói og vanilludropum bætt saman við. Þeytið þar til kremið er orðið silkimjúkt.
  • Smyrjið kreminu á kalda sörubotnana og kælið eða frystið þar til kremið hefur harðnað.
  • Að lokum er súkkulaðið brætt yfir vatnsbaði og sörunum dýpt í.

Tengdar fréttir

„Ég var aldrei heilsuhrædd fyrr en allt hrundi“

Líf Elenoru Rósar hefur aldrei verið auðvelt en hún fæddist með fæðingargallann Omphalocele. Þrátt fyrir einelti í æsku og langvinn veikindi lét hún ekkert stöðva sig og lét drauminn um að verða kökugerðarkona rætast. Hún er í dag metsöluhöfundur, búsett í London og og gerði nýverið samning við einn stærsta sælgætisframleiðanda Íslands.

Lúxus heitt súkkulaði með kanilkeim og súkkulaðirjóma

Elenora Rós Georgesdottir bakari deildi girnilegri uppskrift af heitu súkkulaði fyrir jólin. Uppskriftin er sannköllluð lúxus útgáfa þar sem hún inniheldur kanill, bismark, möndlur, og salt karamella. Jól í bolla!








×