Jól

„Ég verð meira jóla­barn með hverju árinu sem líður“

Svava Marín Óskarsdóttir skrifar
Salka Sól kemur fram með Stórsveit Reykjavíkur þriðja árið í röð.
Salka Sól kemur fram með Stórsveit Reykjavíkur þriðja árið í röð. Aðsend

Salka Sól Eyfeld tónlistarkona segist verða meira jólabarn með hverju árinu sem líður. Hún þakkar það börnunum sínum tveimur og segist kunna að meta jólahefðir foreldra sinna enn betur. Laufabrauðsgerð sé órjúfanlegur þáttur í aðdraganda jóla.

„Þegar ég eignaðist sjálf fjölskyldu fór ég að meta hefðirnar sem foreldrar mínir gerðu með okkur systkinum svo ótrúlega mikið,“ segir Salka Sól. 

Hún og eiginmaður hennar, rapparinn Arn­ar Freyr Frosta­son eiga saman tvö börn. Þau heita Una Lóa og Frosti. 

Salka Sól og Una Lóa.Aðsend

Að sögn Sölku er laufabrauðsgerð ómissandi hluti af jólaundirbúningnum. Fjölskyldan hittist öll hjá foreldrum hennar. Salka segir að þar eigi þau notalega stund saman á hverju einasta ári. 

„Við höfum gert laufabrauð svo lengi sem ég man eftir mér. Síðan skreytum við gamalt jólatré sem fjölskylda pabba átti þegar hann var barn,“ segir Salka.

Una Lóa ánægð með gamla jólatréð.Aðsend

Jólatónleikar Stórsveitar Reykjavíkur ný hefð

Að sögn Sölku er tónlistin mikilvægur þáttur af aðventunni. Síðastliðin tvö ár hefur hún komið fram á jólatónleikum Stórsveitar Reykjavíkur í Hörpu sem hún lýsir sem yndislegri fjölskyldustund.

„Ég var alveg komin á steypirinn í kringum jólin með bæði börnin,“ segir Salka sem eignaðist börnin í desember 2019 og janúar 2022.

„Mér þykir einstaklega vænt um að núna í þriðja sinn er ég að syngja með uppáhalds hljómsveitinni minni, Stórsveit Reykjavíkur á jólatónleikum sem eru ætlaðir allri fjölskyldunni,“ segir Salka og tekur fram að það sé velkomið að dansa og syngja með, koma sér rækilega í jólafíling.

Salka Sól ásamt Stórsveit Reykjavíkur.Aðsend


Tengdar fréttir

Frægir fjölguðu sér árið 2022

Það er ávallt mikið gleðiefni þegar börn koma í heiminn. Lífið hefur greint reglulega frá því þegar þekktir einstaklingar eignast börn. Hér að neðan má sjá yfirferð yfir nokkur kríli sem komu í heiminn á árinu 2022 og Vísir greindi frá.








×