Greiðsluáskorun Skatturinn 16. nóvember 2023 05:18 Innheimtumenn ríkissjóðs skora hér með á gjaldendur eftirtalinna gjalda að gera skil nú þegar eða í síðasta lagi innan 15 daga frá dagsetningu áskorunar þessarar: Gjöldin eru: Staðgreiðsla tekjuskatts, útsvars og tryggingagjalds sem fallið hefur í eindaga til og með 15. nóvember 2023, virðisaukaskattur sem fallið hefur í eindaga til og með 6. nóvember 2023 og önnur gjaldfallin álögð gjöld og ógreiddar hækkanir er fallið hafa í eindaga til og með 15. nóvember 2023, á staðgreiðslu tekjuskatts, útsvars og tryggingagjalds, virðisaukaskatti, virðisaukaskatti í tolli, vanskilum launagreiðenda á gjöldum í og utan staðgreiðslu, fjármagnstekjuskatti á skilaskylda aðila, áfengisgjaldi, bifreiðagjaldi, úrvinnslugjaldi, olíugjaldi, kílómetragjaldi, gistináttaskatti, fjársýsluskatti, vinnueftirlitsgjaldi, vörugjaldi af innlendri framleiðslu, vörugjaldi af ökutækjum, eftirlitsgjöldum, árgjöldum, aðflutningsgjöldum, skilagjaldi á umbúðir, fasteignagjöldum, skipulagsgjaldi, skipagjöldum, jarðarafgjaldi, sektum skattrannsóknarstjóra, ofgreiddri uppbót á eftirlaun, ofgreiðslu stuðnings úr ríkissjóði vegna greiðslu hluta launakostnaðar á uppsagnarfresti, eftirlitsgjaldi Fjármálaeftirlitsins, árgjaldi handhafa markaðsleyfis, veiðigjaldi og álögðum þing- og sveitarsjóðsgjöldum, sem eru: Tekjuskattur og útsvar ásamt álagi á ógreiddan tekjuskatt og útsvar, útvarpsgjald, gjald í framkvæmdasjóð aldraðra, slysatryggingagjald vegna heimilisstarfa, auðlegðarskattur og viðbótar auðlegðarskattur, fjármagnstekjuskattur ásamt álagi á ógreiddan fjármagnstekjuskatt, ógreiddur tekjuskattur af reiknuðu endurgjaldi ásamt álagi, búnaðargjald, sérstakur fjársýsluskattur, sérstakur skattur á fjármálafyrirtæki, jöfnunargjald alþjónustu, ofgreiddar barnabætur og ofgreiddar vaxtabætur. Fjárnáms verður krafist án frekari fyrirvara að þeim tíma liðnum fyrir vangoldnum eftirstöðvum gjaldanna ásamt dráttarvöxtum og öllum kostnaði, sem af innheimtu skuldarinnar kann að leiða, á kostnað gjaldenda. Athygli skal vakin á því að auk óþæginda hefur fjárnám í för með sér verulegan kostnað fyrir gjaldanda. Fjárnámsgjald í ríkissjóð er 13 þúsund kr. fyrir hvert fjárnám. Eru gjaldendur hvattir til að gera full skil sem fyrst til að forðast óþægindi og kostnað. Þá mega þeir gjaldendur, sem skulda staðgreiðslu, staðgreiðslu tryggingagjalds, vörugjald, afdreginn fjármagnstekjuskatt, áfengisgjald, fjársýsluskatt, gistináttaskatt og virðisaukaskatt, búast við því að starfsemi þeirra verði stöðvuð án frekari fyrirvara, þeir gjaldendur er skulda bifreiðagjöld og kílómetragjald mega eiga von á að skráningarnúmer verði tekin af ökutækjum þeirra án frekari fyrirvara og þeir gjaldendur sem skulda gjöld þar sem lögveð fylgir mega búast við að send verð út sérstök greiðsluáskorun fyrir gjaldföllnum kröfum. Greiðsluáskorunin hefur ekki áhrif á þessi innheimtuúrræði þannig að fyrrgreindur 15 daga frestur frá dagsetningu áskorunar þessarar gildir ekki í þessum tilvikum. Reykjavík, 16. nóvember 2023 Ríkisskattstjóri Sýslumaðurinn á Vesturlandi Sýslumaðurinn á VestfjörðumSýslumaðurinn á Norðurlandi vestra Sýslumaðurinn á Norðurlandi eystra Sýslumaðurinn á Austurlandi Sýslumaðurinn á Suðurlandi Sýslumaðurinn í Vestmannaeyjum Sýslumaðurinn á Suðurnesjum Skattar og tollar Mest lesið Trump-tollarnir hafa tekið gildi Viðskipti innlent Fylgdu ekki fyrirmælum um að skýra skrópgjaldið betur og fá sekt Neytendur Atvinnuleysi 2,8 prósent í júní Viðskipti innlent Fyrsta íslenska grænkera ostagerðin í hættu Viðskipti innlent Ráðin framkvæmdastjóri Magio – viðburðasmiðju Viðskipti innlent Ísland klemmist á milli í alþjóðlegu tollastríði Viðskipti innlent Vonbrigði með makrílinn en síldin og loðnan veki von Viðskipti innlent Alaska Airlines hefur daglegt flug til Keflavíkur næsta sumar Viðskipti innlent Trúa varla að tollahækkanirnar séu að skella á Viðskipti innlent Á ég að greiða inn á lánið eða spara? Viðskipti innlent Fleiri fréttir Greiðsluáskorun „Ávísun á ánægjuleg viðskipti“ Sjá meira
Ríkisskattstjóri Sýslumaðurinn á Vesturlandi Sýslumaðurinn á VestfjörðumSýslumaðurinn á Norðurlandi vestra Sýslumaðurinn á Norðurlandi eystra Sýslumaðurinn á Austurlandi Sýslumaðurinn á Suðurlandi Sýslumaðurinn í Vestmannaeyjum Sýslumaðurinn á Suðurnesjum
Skattar og tollar Mest lesið Trump-tollarnir hafa tekið gildi Viðskipti innlent Fylgdu ekki fyrirmælum um að skýra skrópgjaldið betur og fá sekt Neytendur Atvinnuleysi 2,8 prósent í júní Viðskipti innlent Fyrsta íslenska grænkera ostagerðin í hættu Viðskipti innlent Ráðin framkvæmdastjóri Magio – viðburðasmiðju Viðskipti innlent Ísland klemmist á milli í alþjóðlegu tollastríði Viðskipti innlent Vonbrigði með makrílinn en síldin og loðnan veki von Viðskipti innlent Alaska Airlines hefur daglegt flug til Keflavíkur næsta sumar Viðskipti innlent Trúa varla að tollahækkanirnar séu að skella á Viðskipti innlent Á ég að greiða inn á lánið eða spara? Viðskipti innlent Fleiri fréttir Greiðsluáskorun „Ávísun á ánægjuleg viðskipti“ Sjá meira