Lífið

Jógvan bað Ey­þór að yfir­gefa bílinn

Íris Hauksdóttir skrifar
Friðrik Ómar, Jógvan Hansen, Eyþór Ingi og Gissur Páll birtu skemmtilegt myndband frá ferðalagi sínu um landið.
Friðrik Ómar, Jógvan Hansen, Eyþór Ingi og Gissur Páll birtu skemmtilegt myndband frá ferðalagi sínu um landið.

Stórsöngvararnir Friðrik Ómar, Jógvan Hansen, Eyþór Ingi og Gissur Páll eiga það sameiginlegt, fyrir utan sönginn að vera fanta fyndnir.  

Þeir undirbúa nú jólatónleikana Heima um jólin og birtu í gær stórskemmtilegt myndband þar sem þeir ferðast um landsbyggðina.

Fantafyndnir húmoristar

Í upphafi ferðar sinnar voru þeir staddir á höfuðborgarsvæðinu en á leið á Selfossi þar sem fram undan eru tónleikar í jólatónleikaröð þeirra félaga, Heima um jólin. Þeir hituðu ærlega upp fyrir tónleikana í bílnum. 

Augljóslega er gaman á bílaflandri með þeim félögum enda mikið hlegið í bílnum þar sem fjórmenningarnir eru allir miklir húmoristar.

Sjón er sögu ríkari.

Klippa: Lífhræddur Jógvan bað Eyþór um að yfirgefa bílinn

Tengdar fréttir

Enginn drauma­prins sjáan­legur í firðinum

Friðrik Ómar Hjörleifsson var nánast búinn að keyra sig í kaf með mikilli vinnu fyrr í sumar en hann segir haustið hafa sömuleiðis verið hressandi. Framundan taki nú við útgáfa nýrrar plötu, jólatónleikar og flutningar. 






Fleiri fréttir

Sjá meira


×