Viðskipti innlent

Lands­bankinn hagnaðist um 7,9 milljarða á þriðja árs­fjórðungi

Atli Ísleifsson skrifar
Lilja Björk Einarsdóttir er bankastjóri Landsbankans.
Lilja Björk Einarsdóttir er bankastjóri Landsbankans. Vísir/Vilhelm

Hagnaður Landsbankans á fyrstu níu mánuðum ársins 2023 var 22,4 milljarðar króna, þar af 7,9 milljarðar króna á þriðja ársfjórðungi.

Þetta kemur fram tilkynningu frá Landsbankanum þar sem fjallað er um uppgjör Landsbankans fyrir fyrstu níu mánuði ársins.

Þar kemur fram að arðsemi eiginfjár á fyrstu níu mánuðum ársins hafi verið 10,5 prósent en var 10,9 prósent. á þriðja ársfjórðungi.

'Í uppgjörinu kemur einnig fram: 

  • Stefna Landsbankans er að greiða um 50% af hagnaði hvers árs í arð.
  • Hreinar þjónustutekjur jukust um 2,7% á milli ára.
  • Hreinar vaxtatekjur jukust um 27,3% vegna betri ávöxtunar á lausafé, stærra útlánasafns og hærra vaxtastigs.
  • Hlutfall kostnaðar af tekjum (K/T) var 34,6%.
  • Innlán hafa aukist um 10,1% frá áramótum og sífellt fleiri nýta sér hagstæðasta óverðtryggða sparnaðarreikninginn okkar með því að spara í appinu.
  • Landsbankinn gaf í september út græn skuldabréf fyrir 300 milljónir evra í vel heppnaðri útgáfu.
  • Í Landsbankaappinu geta viðskiptavinir nú séð stöðuna á reikningum sem þeir eiga í öðrum bönkum og við munum fljótlega kynna þann möguleika að nota Landsbankaappið til að millifæra af þessum reikningum.
  • Vanskil eru sem fyrr nálægt sögulegu lágmarki og framlag vegna virðisrýrnunar er í samræmi við áætlanir bankans.

Rekstrarkostnaður bankans var 20,4 milljarðar króna á tímabilinu en var 18,7 milljarðar króna á sama tímabili árið áður. Þar af voru laun og launatengd gjöld 11,5 milljarðar króna samanborið við 10,5 milljarða króna á sama tímabili árið áður. Annar rekstrarkostnaður var 7,1 milljarður króna samanborið við 6,7 milljarða króna á sama tímabili árið áður.

Nýjar höfuðstöðvar Landsbankans í miðborg Reykjavíkur.Vísir/Vilhelm

Kostnaður sem hlutfall af tekjum (K/T) á fyrstu níu mánuðum ársins 2023 var 34,6%, samanborið við 48,9% á sama tímabili árið 2022.

Heildareignir bankans hækka um 195,4 milljarða króna á tímabilinu og námu 1.982 milljörðum króna 30. september 2023. Útlán jukust um 55,5 milljarða króna á fyrstu níu mánuðum ársins 2023. Í lok september 2023 námu innlán frá viðskiptavinum 1.065,2 milljörðum króna, samanborið við 967,9 milljarða króna í árslok 2022, og höfðu því aukist um 97,3 milljarða króna.

Eigið fé Landsbankans var 293 milljarðar króna þann 30. september sl. og eiginfjárhlutfall alls var 23,7%.

Aðalfundur Landsbankans, sem haldinn var 23. mars 2023, samþykkti tillögu bankaráðs um að greiða arð til hluthafa vegna reikningsársins 2022 sem næmi 0,36 krónum á hlut og að arðgreiðslan verði tvískipt. Arðgreiðslurnar, hvor um sig 0,18 krónur á hlut, voru inntar af hendi þann 29. mars og 20. september sl. Arðgreiðslur á árinu nema alls 8.504 milljónum króna en frá árinu 2013 nema arðgreiðslur bankans samtals 175,2 milljörðum króna,“ segir í tilkynningunni.

Helstu atriði úr rekstri á þriðja ársfjórðungi (3F) 2023

Rekstur: 

  • Hagnaður Landsbankans á 3F 2023 nam 7,9 milljörðum króna samanborið við hagnað upp á 5,8 milljarða króna á sama ársfjórðungi árið 2022.
  • Arðsemi eiginfjár var 10,9% á 3F 2023, samanborið við 8,5% á sama ársfjórðungi árið á undan.
  • Hreinar vaxtatekjur á ársfjórðungnum voru 15,2 milljarðar króna en þær námu 12,2 milljörðum króna á 3F 2022.
  • Virðisbreyting útlána og krafna var neikvæð um 248 milljónir króna á 3F 2023 samanborið við jákvæða virðisbreytingu upp á 2,6 milljarða króna á 3F 2022.
  • Hreinar þjónustutekjur námu 2,3 milljörðum króna en voru 2,5 milljarðar króna á 3F 2022. 
  • Vaxtamunur í hlutfalli af meðalstöðu eigna var 3,1% á 3F 2023 en var 2,8% á sama tímabili árið áður.
  • Laun og launatengd gjöld námu 3,2 milljörðum króna samanborið við 3,1 milljarð króna á sama ársfjórðungi 2022.
  • Rekstrarkostnaður að frátöldum launum og launatengdum gjöldum nam 2,4 milljörðum króna á 3F 2023 samanborið við 2,1 milljarð króna á sama ársfjórðungi 2022.
  • Kostnaður sem hlutfall af tekjum (K/T) á 3F 2023 var 31,5% samanborið við 43,2% á sama ársfjórðungi árið á undan.
  • Stöðugildi hjá Landsbankanum þann 30. september 2023 voru 818 en voru 824 á sama tíma fyrir ári. 

Efnahagur:

  • Eigið fé Landsbankans nam 293 milljörðum króna í lok september 2023.
  • Eiginfjárhlutfall bankans (e. total capital ratio) þann 30. september 2023 var 23,7% en var 24,7% í lok árs 2022. Það er verulega umfram 20,2% eiginfjárviðmið Fjármálaeftirlits Seðlabankans.
  • Heildareignir bankans námu 1.982 milljörðum króna í lok september 2023.
  • Útlán jukust um 55,5 milljarða króna á fyrstu níu mánuðum ársins 2023. Útlán til einstaklinga jukust um 19,5 milljarða króna og útlán til fyrirtækja um 47 milljarða króna en á móti kemur 11 milljarða króna lækkun vegna gengisáhrifa. Nettóaukning fyrirtækjalána er því 36 milljarðar króna.
  • Innlán viðskiptavina námu 1.065 milljörðum króna í lok september 2023, samanborið við 968 milljarða króna í lok árs 2022.
  • Bankinn fylgist náið með og stýrir lausafjáráhættu sinni í heild, í erlendum myntum og í íslenskum krónum. Lausafjárhlutfall bankans (e. liquidity coverage ratio) var 238% í lok september 2023 samanborið við 134% í lok árs 2022.
  • Heildarvanskil fyrirtækja og heimila voru 0,3% af útlánum.

Eigið fé töluvert umfram lágmarkskröfur

Haft er eftir Lilju Björk Einarsdóttur, bankastjóra Landsbankans, að rekstrarniðurstaðan fyrir fyrstu níu mánuði ársins sé góð og til marks um góðan árangur og stöðugleika í rekstri bankans. 

„Arðsemi bankans á árinu er í samræmi við langtímamarkmið bankans um að skila yfir 10% arðsemi á eigið fé en hafa ber í huga að eigið fé bankans er töluvert umfram lágmarkskröfur.

Fjármögnun bankans er traust, bæði í krónum og erlendri mynt, sem er mikilvægt við þær krefjandi aðstæður sem nú ríkja. Útgáfa bankans á grænum skuldabréfum að fjárhæð 300 milljón evrur í september tókst mjög vel, en mikil umframeftirspurn var í útboðinu og kjörin betri en höfðu sést í sambærilegum útgáfum um nokkra hríð. Útgáfa sem þessi er mikilvæg forsenda þess að bankinn geti stutt við útflutningsgreinar og viðtökurnar eru til marks um að bankinn hefur góðan aðgang að erlendum fjármagnsmörkuðum.

Á þessu ári hefur nýjum fyrirtækjum og félögum í viðskiptum fjölgað um 20% og markaðshlutdeild bankans á einstaklingsmarkaði er áfram sterk, eða um 40%. Á næstunni munu fastir vextir á óverðtryggðum íbúðalánum hjá mörgum viðskiptavinum okkar losna og að óbreyttu mun greiðslubyrði lánanna hækka umtalsvert. Eins og kemur fram í kynningunni sem fylgir þessu uppgjöri eru ýmsar leiðir til að lækka greiðslubyrði með því að breyta lánsformi. Við hvetjum viðskiptavini til að hafa samband við okkur og ræða þá möguleika sem eru í boði. Við leggjum mikla áherslu á að veita viðskiptavinum góða ráðgjöf um hvaða leiðir standa til boða í lánum og sparnaði. Aðgengi að ráðgjöf og þjónustu hjá bankanum er mjög gott og starfsfólk okkar um land allt tekur vel á móti öllum.

Samhliða hækkandi vaxtastigi hefur bankinn markvisst unnið að því að lækka vaxtamun húsnæðislána og ef miðað er við meginvexti Seðlabankans hefur munurinn aldrei verið minni. Samkeppni um innlán hefur aukist og mikil sókn er í sparnað í appi, þar sem Landsbankinn býður bestu óbundnu vextina. Munur á óbundnum, breytilegum innlánsvöxtum og breytilegum húsnæðisvöxtum er í dag 2 prósentustig,“ segir Lilja Björk.





Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur.

Fleiri fréttir

Sjá meira


×